Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
Forsætisráðherra segir að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar verði virt en ekki komi til greina að loka á Evrópu eða grafa undan EES-samningnum. Orð hennar falla á sama tíma og stjórnarandstaðan vill staðfestingu á stöðu aðildarumsóknarinnar og frumvarp um bókun 35 liggur aftur fyrir Alþingi.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir ekki koma til greina að loka á Evrópu eða grafa undan EES-samningnum þótt þjóðin hafi hafnað því að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju. Stefna Samfylkingarinnar og ríkisstjórnarinnar sé að styrkja samninginn í sessi.
Þetta kom fram í ræðu Kristrúnar, formanns Samfylkingarinnar, á flokksstjórnarfundi í Sandgerði í Suðurnesjabæ í dag.
„Þó að við virðum niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um að hefja ekki aðildarviðræður að nýju við Evrópusambandið – þá lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu eða gröfum undan samningnum um Evrópska efnahagssvæðið,“ sagði hún.
Hún áréttaði að þjóðaratkvæðagreiðslan hefði ekki snúist um EES-samstarfið.
„Það kemur ekki til greina. Enda var ekki kosið um neitt slíkt. Þvert á móti er það stefna Samfylkingar og ríkisstjórnar að við stöndum okkur nú í stykkinu og styrkjum EES-samninginn enn frekar í sessi,“ sagði hún.
ESA í mál vegna bókunar 35
Áhersla Kristrúnar á EES-samninginn kemur á sama tíma og ESA, …