K-kúrfu hagkerfið

K-kúrfu hagkerfið

K-kúrfu hagkerfið

K-kúrfu hagkerfið

Verð­bólga var ekki til­kom­in vegna launa og eyðslu neðri hluta K-leggs­ins í hag­kerf­inu, held­ur vegna að­gerða at­vinnu­lífs­ins og hins op­in­bera.

Á tímum heimsfaraldurs var dregin upp ný tegund línurits fyrir stöðu fólks í hagkerfinu. Þar sem fyrir efri hluta hagkerfisins gengur allt að sólu. Fyrir neðri hluta hagkerfisins hægist leiðin til helvítis þar sem allt hallar undan fæti.

Stærðfræðileg staðreynd í einfaldaðri lýsingu á K-kúrfu hagkerfisins felst í því að ef helmingur er á efri legg og helmingur á neðri legg þá hækka laun að meðaltali þegar efri leggurinn fær launahækkanir umfram kjarasamninga og verðbólgu. Jafnvel þó að neðri leggurinn rýrni einvörðungu með kjarasamningsbundnum hækkunum. Þar sem þær samningsbundnu tölur hafa ekki haldið í við verðlag þá lækkuðu kannski launin um hálft prósent í fyrra og eitt prósent í ár að raunvirði. En meðaltal launa hækkaði því efri helmingurinn hækkaði um meira en þetta eina og hálfa prósent. Um næstu áramót eiga svo samningsbundnu launin að hækka um 3,5% en verðbólga er nú nánast 6%. Jafnvel þó að samið hafi verið með sérákvæðum um að lægstu taxtar hækki um 4,9% um áramótin fyrir neðri hlutann á neðri legg K-sins þá er það í raun kjararýrnun um aðra prósentu.

Mörgum finnst, sérlega hagfræðingum, að þetta ástand sé bara sama gamla sagan um verðbólgu sem hafi alltaf verið svona og muni því alltaf vera þannig áfram. En það er bæði ábyrgðarlaus klisja og andstætt staðreyndunum að japla á þeirri möntru. Því hérlendis hafa samningar verið gildandi í yfir tvö ár, þar sem samið var um minni kjarabætur en þáverandi verðbólga var – einmitt til þess að ná henni niður. En það tókst ekki. Sú verðbólga, umfram viðmiðin, var alls ekki tilkomin vegna verkalýðshreyfingarinnar eða launa og eyðslu neðri hluta K-leggsins í hagkerfinu, heldur vegna aðgerða atvinnulífsins annars vegar, sem hækkaði laun annarra meira og vörur enn meira, og hins opinbera hins vegar, sem hækkaði alls konar þjónustugjöld, sem bitnað hafa mun meira á neðri helmingi K-sins heldur en þeim efri. Merkilegt er að sami maður sat, á ólíkum tímum, bæði í stóli fjármálaráðherra og í forsvari atvinnulífs samtakanna. Sumum gæti því þótt skiljanlegt að hann væri flúinn úr verðbólgulandinu – jafnvel bara til að spila golf í betra veðri en hér í hausthretinu.

Sögulegt samhengi

Fyrir hundrað árum var gerð merkileg félagsfræðileg stúdía í Bandaríkjunum þar sem hugtakið um miðlungsbæinn var búið til (Middletown – A Study in Modern American Culture) en í borginni (sem raunverulega var Muncie í Indiana-ríki) bjó hæfileg blanda verkalýðs og viðskiptalýðs (working class & business class). Svefnvenjur þar voru meðal annars rannsakaðar því verksmiðjurnar opnuðu fyrr heldur en skrifstofurnar. Deilur sköpuðust síðan um sumartíma, þar sem viðskiptalýðurinn vildi gjarnan fá klukkutíma lengur bjart á golfvellinum eftir vinnu á meðan verkalýðurinn taldi sig tapa mikilvægum svefni við að bjart væri lengur væri klukkunni breytt. Stuttu síðar kom kreppan mikla, þó að ekkert orsakasamhengi sé þar á milli.

Einhverjum áratugum seinna var búið til hugtakið um vísitölufjölskylduna hérlendis, sem kannski var forsenda þeirrar miklu útbreiddu verðtryggingar sem hér á landi virðist arfbundin og óbreytanleg. Hins vegar virðist tegund þessarar fjölskyldu vera að deyja út, þar sem einvörðungu efri hlutinn í K-kúrfunni, sem kalla mætti viðskiptalýðinn, hefur efni á því að eignast börn. Neðri leggurinn, sem til einföldunar mætti kalla verkalýðinn, hefur hvorki tíma til né efni á því að eignast börn í núverandi efnahagsástandi. Öldrun þjóðarinnar var þó hafin löngu fyrr en umbreytingar barneignanna urðu.

Jafnvel þó að viðskiptalýðurinn leggi sig fram um að eignast fleiri börn en vísitölufjölskyldan gerði, þá dugar það ekki til og Ísland hrapar nú á síðastliðnum áratug niður í evrópskt meðaltal frjósemi. Samhliða nær atvinnuleysi hérlendis nú evrópsku meðaltali á ógnarhraða, þótt orsakasamhengi þar á milli sé heldur ekkert.

Tilgangur opinberra fjármála

Fyrir tíu árum tóku gildi ný lög um opinber fjármál þar sem sérstök áhersla var lögð á langtímahugsun, stöðugleika, aga við framkvæmd fjárlaga og bætt reikningsskil. Lögin áttu að fela í sér verulegar breytingar á viðteknum verkferlum og verkaskiptingu, umgjörðinni skyldi treyst og skilyrði skyldi skapa fyrir samþættingu markmiða í efnahagsmálum og fjármálum opinberra aðila.

„Fá af þessum fyrirheitum virðast hafa náðst“

Fá af þessum fyrirheitum virðast hafa náðst. Nú á hins vegar að ná verðbólgumarkmiði annarra laga, sem fjalla um Seðlabanka Íslands, með því að leggja áherslu á að eyða fjárlagahallanum sem verið hefur viðvarandi frá því lögin um opinber fjármál voru sett.

Það að ætla síðan líka að ná niður verðbólgunni með því að þrengja vel að neðri leggnum á K-inu til þess að styggja alls ekki þá sem eru betur settir á efri leggnum, því þar megi alls ekki hækka skattana sem þar lenda, er einstaklega þverstæð rökvísi lagasetningar og efnahagsstjórnar.

Að launalækkun, í raun, á neðri leggnum geti einhvern veginn lækkað viðvarandi verðbólgu með því að vinna svo harkalega gegn því að þau lægri laun haldi í við verðhækkanir, er sérlega stór misskilningur á hugmyndinni um hugtakið núll í raun.

Menning og valdmörk

Hin peningalega viðskiptamenning sem ræður ríkjum í íslensku viðskiptalífi og efnahagsstjórn virðist helst eiga sér vissa samlíkingu að finna í stjórnarháttum fasteignarekstrar sem frægur er orðinn af endemum frá Madríd, höfuðborg Spánar. Hömlur sem settar voru á margfalda hækkun húsnæðiskostnaðar og leiddu til þess að þak var sett á leiguna þar hjá gömlu konunni sem borin var út hafði samt þá niðurstöðu að leigan varð fjórðungi hærri en tekjurnar hennar. Svo dó hún.

Fjárlög, sem óumdeilanlega eru mikilvægasta lagasetning hvers þings, skila nú orðið ekki þeim árangri sem til er ætlast. Fjárlagagerð byggir á rótgrónum kerfum sem miða að því að útdeila takmörkuðum gæðum og dreifa þeim byrðum. Það er nauðsynlegt að auka skilning á pólitískri hagfræði fjárlagagerðar og þar með list hins mögulega. Hlutverk kjörinna fulltrúa er að fara með það vald og kljást við úrlausnarefnið.

Því er ískyggilegt þegar ráðherra fjármálaráðuneytis sem ekki er kosinn til þings sendir minnisblað til fjárlaganefndar þess um fylgni við breyttar fjármálareglur sem fengu litla þinglega meðferð og enn minni umfjöllun á sviði stjórnmálanna. Eins er enn ískyggilegra þegar embættismaður í stóli seðlabankastjóra segir það heimskulega hugmynd ríkisstjórnar að reyna að hemja sjálfvirka vísitölubundna hækkun á leigu með frumvarpi sem hann ku ekki hafa lesið, jafnvel þó að það lagafrumvarp sé lagt fram af fyrrum verkalýðsleiðtoga sem kosinn var lýðræðislega til þings.

#hagkerfið #kúrfu


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/27412/k-kurfu-hagkerfid/

📰 Aðrar fréttir

Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 0
Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum - Vísir
Nú fást lausasölulyf að jafnaði í apótekum. Lyfjastofnun getur þó leyft verslunum að selja ákveðin lyf ef meira en tuttugu kílómetrar eru í næsta apót...
Northern Lights: Aurora stun UK down to England's south coast
📅 10.10.2026 👁️ 0
Northern Lights: Aurora stun UK down to England's south coast
The natural phenomenon, known as the Aurora Borealis, is the result of increased solar activity.
Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri
📅 10.10.2026 👁️ 0
Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri
Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi, segir líflína fólks á Gaza að fólk muni eftir þeim, fjármagni hjálp sem það þurfi og ýti á st...
Vill nýjan Úkraínuforseta - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 0
Vill nýjan Úkraínuforseta - Vísir
Í gær greindi Trump frá samkomulagi sínu við Vladímír Pútín Rússlandsforseta um að Rússar hefji þegar í stað útflutning á hundruðum þúsunda tonna af d...
„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“ - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 0
„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“ - Vísir
Kennarasamband Íslands boðaði til blaðamannafundar í vikunni þar sem sambandið kynnti stefnumótun og áherslur í menntamálum. Kallaði sambandið eftir s...
Mestu skiptir að engan sakaði
📅 10.10.2026 👁️ 1
Mestu skiptir að engan sakaði
Innan við tvær klukkustundir tók að slökkva eldinn í álverinu í dag og var kerskáli tekinn úr rekstri á meðan.„Það er ekki vitað að svo stöddu hvað ol...
Frá dísilsamningi við Pútín til ákalls Trumps um nýjan forseta Úkraínu
📅 10.10.2026 👁️ 1
Frá dísilsamningi við Pútín til ákalls Trumps um nýjan forseta Úkraínu
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði við fréttamenn fyrir utan Hvíta húsið í dag að hann teldi kominn tíma til að Úkraína fengi nýjan forseta. Hann la...
Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 2
Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði - Vísir
Lögreglunni barst tilkynning um að maðurinn hefði farið inn á girt svæði klukkan hálf tvö að staðartíma í dag. Í kjölfarið hafi tígrisdýrið ráðist á m...
Erum að horfa á vendipunkt í verðbólgunni
📅 10.10.2026 👁️ 1
Erum að horfa á vendipunkt í verðbólgunni
Hvert einasta sæti var skipað og rúmlega það á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag. Ræða formannsins og forsætisráðherrans bar heitið Styrk hö...
Four dead and thousands without power after Hurricane Isaias lashes US
📅 10.10.2026 👁️ 1
Four dead and thousands without power after Hurricane Isaias lashes US
Roofs were ripped off buildings after Isaias barrelled into the US on Friday evening, before it weakened to a post-tropical cyclone.
Karlmaður lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði
📅 10.10.2026 👁️ 3
Karlmaður lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði
Karlmaður er látinn eftir árás tígrisdýrs í dýragarði skammt frá borginni Doncaster í Jórvíkurskíri á Englandi. Lögregla segir manninn hafa farið inn ...
Vilja bíla­stæðin upp úr skot­gröfunum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 3
Vilja bíla­stæðin upp úr skot­gröfunum - Vísir
Meðal bílastæðanna fimmtán sem verða tekin aftur í notkun eru tvö við Kaffi Babalú á Skólavörðustíg þar sem fréttamaður hitti þær Guðnýju Maríu Jóhann...
Níu létust eftir skot­á­rás - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 3
Níu létust eftir skot­á­rás - Vísir
Lögregla var komin á vettvang aðeins örfáum mínútum eftir að tilkynning barst henni um skothvelli úr íbúðarhúsi. Allir níu voru þegar látnir þegar lög...
Smári og Linda muna vel eftir opnun Smáralindar
📅 10.10.2026 👁️ 3
Smári og Linda muna vel eftir opnun Smáralindar
Verslunarmiðstöðin Smáralind var opnuð á þessum degi fyrir 25 árum. Smári úr Smáraskóla og Linda úr Lindaskóla fengu þann heiður að opna þessa stærstu...
Expedition hopes to find aviator Amelia Earhart's plane on remote island
📅 10.10.2026 👁️ 3
Expedition hopes to find aviator Amelia Earhart's plane on remote island
The team en route to the suspected crash site aim finally to solve the mystery of her 1937 disappearance.
Á annað hundrað sektaðir - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 3
Á annað hundrað sektaðir - Vísir
Um helgina fer fram sýningin Íslenskur landbúnaður 2026 í Laugardalshöll en fagsýningarfyrirtækið Ritsýn stendur fyrir sýningunni. Hátt í hundrað sýne...
New selfie spot in Corralejo made from 100% recycled plastic
📅 10.10.2026 👁️ 3
New selfie spot in Corralejo made from 100% recycled plastic
Visitors to Corralejo have a new place to capture their holiday photographs following the installation of a tourist selfie spot made entirely from rec...
Trump vill að Úkraína skipti um forseta
📅 10.10.2026 👁️ 3
Trump vill að Úkraína skipti um forseta
Donald Trump Bandaríkjaforseti vill að Úkraínumenn velji sér annan forseta sem geti bundið enda á stríð landsins við Rússland.Hann er Volodomyr Zelens...
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
📅 10.10.2026 👁️ 4
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“ For­sæt­is­ráð­herra seg­ir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­un...
Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
📅 10.10.2026 👁️ 3
Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“ For­sæt­is­ráð­herra seg­ir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­un...
Þrír réðust á einn - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Þrír réðust á einn - Vísir
Er þetta meðal þeirra mála sem skráð eru í kerfi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því í dag. Líkamsárásin átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar ...
'Time for Ukraine to get new president,' says Trump after Zelensky condemns diesel deal
📅 10.10.2026 👁️ 4
'Time for Ukraine to get new president,' says Trump after Zelensky condemns diesel deal
Ukraine's leader had said the deal with Russia to release diesel into the US would help Moscow fund the war.
Kirkjugestir mæta í þjóðbúningum
📅 10.10.2026 👁️ 4
Kirkjugestir mæta í þjóðbúningum
Nokkrar þjóðbúningamessur hafa verið haldnar í sunnlenskum kirkjum síðustu ár og hafa þær heppnast einstaklega vel og margir mætt í þjóðbúningum. Pres...
Aftur í fangelsi eftir misheppnaða aftöku
📅 10.10.2026 👁️ 4
Aftur í fangelsi eftir misheppnaða aftöku
Christa Pike, 50 ára bandarísk kona sem lifði af tvær aftökutilraunir með banvænni sprautu í Tennessee-ríki í Bandaríkjunum, hefur verið útskrifuð af ...
Man dies after tiger attack at Yorkshire Wildlife Park
📅 10.10.2026 👁️ 4
Man dies after tiger attack at Yorkshire Wildlife Park
The visitor attraction near Doncaster was evacuated on Saturday and remains closed for the weekend.
Aníta Briem á von á þriðja barninu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Aníta Briem á von á þriðja barninu
Leikkonan Aníta Briem og Hafþór Waldorff, eiga von á sínu öðru barni saman. Fyrir eiga þau dótturina Lúnu, sem fæddist í nóvember 2024. Parið gekk í g...
Á­kvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Á­kvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað - Vísir
„Ég eyddi öllu sumrinu á spítala því ég lenti í því að fá ristilpoka sem sprakk og gerði gat á ristilinn á mér, með tilheyrandi sýkingum og veseni. Ég...
Forsetaframbjóðandi hafnar því að vera handvalinn af Höllu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Forsetaframbjóðandi hafnar því að vera handvalinn af Höllu
Frambjóðendur til forseta Alþýðusambands Íslands hafna því að þeir séu fulltrúar ólíkra fylkinga innan sambandsins.Arnaldur Grétarsson, sérfræðingur í...
Gengu kröfugöngu niður Laugaveg í tilefni alþjóðlegs aðgerðadags fyrir Palestínu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Gengu kröfugöngu niður Laugaveg í tilefni alþjóðlegs aðgerðadags fyrir Palestínu
Fjöldi fólks gekk kröfugöngu frá Hlemmi að Austurvelli í tilefni alþjóðlegs aðgerðadags fyrir Palestínu í dag, 10. október.Í tilkynningu Félagsins Ísl...
Milljónavirði af rauðvíni stolið úr vöruhúsi í Toskana
📅 10.10.2026 👁️ 5
Milljónavirði af rauðvíni stolið úr vöruhúsi í Toskana
Óprúttnir þjófar stálu eðalvínum sem talið er fimm milljóna evra, jafnvirði um 687 milljóna króna, virði úr stærsta vöruhúsi hinnar nafntoguðu Marches...
Aníta Briem og Haf­þór ó­létt á ný - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Aníta Briem og Haf­þór ó­létt á ný - Vísir
Aníta greinir frá málinu í einlægri færslu á samfélagsmiðlinum Facebook. Hún og Hafþór eignuðust dóttur í nóvember 2024 en fyrir átti Aníta eina dóttu...
Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar
📅 10.10.2026 👁️ 5
Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar
Guðmundur Ari Sigurjónsson hefur verið kjörinn varaformaður Samfylkingarinnar – jafnaðarflokks Íslands. Guðmundur Ari var sjálfkjörinn á flokksstjórna...
King Charles warns malicious online actors are evolving their tactics
📅 10.10.2026 👁️ 4
King Charles warns malicious online actors are evolving their tactics
The King spoke of "threats to our international order" in a letter marking the 10th anniversary of the National Cyber Security Centre.
Christa Pike discharged from hospital and returned to prison, her lawyers say
📅 10.10.2026 👁️ 4
Christa Pike discharged from hospital and returned to prison, her lawyers say
The convicted murderer was left in a critical condition after she survived two lethal injections.
Christa Pike discharged from hospital 10 days after failed execution
📅 10.10.2026 👁️ 4
Christa Pike discharged from hospital 10 days after failed execution
Pike's lawyers say she is "grateful" to the medical team who cared for her after she survived two lethal injections last month.
Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í færslu Sólveigar Önnu á samfélagsmiðlinum Facebook. Líkt og fram hefur komið verður nýr forseti ASÍ kjörinn á þin...
Auka þrýsting á alþjóðlegan dómstól og vilja liðsinni bandamanna
📅 10.10.2026 👁️ 4
Auka þrýsting á alþjóðlegan dómstól og vilja liðsinni bandamanna
Bandarísk yfirvöld hafa tilkynnt um nýjar refsiaðgerðir gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum í Haag. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir...
Skoða í þremur ráðuneytum hvort lögnin verður viðurkennd sem almannavarnalögn
📅 10.10.2026 👁️ 5
Skoða í þremur ráðuneytum hvort lögnin verður viðurkennd sem almannavarnalögn
Bæjarráð Vestmannaeyja segir að fyrirtækið sem lagði nýju vatnslögnina þangað hafi viðurkennt í vikunni að tjónið á henni megi rekja til mistaka við l...
„Þú ert ekkert minna merkilegur eða meira merkilegur heldur en Kurt Cobain“
📅 10.10.2026 👁️ 4
„Þú ert ekkert minna merkilegur eða meira merkilegur heldur en Kurt Cobain“
Franz Gunnarsson, gítarleikari í hljómsveitum eins og Ensími og Dr. Spock, hefur reglulega þurft að hugsa aðeins út fyrir kassann á sínum tónlistarfer...
'Serious' tiger enclosure incident shuts Yorkshire Wildlife Park
📅 10.10.2026 👁️ 4
'Serious' tiger enclosure incident shuts Yorkshire Wildlife Park
The attraction near Doncaster says emergency response procedures were "immediately activated".
Man seriously injured in tiger attack at Yorkshire Wildlife Park
📅 10.10.2026 👁️ 4
Man seriously injured in tiger attack at Yorkshire Wildlife Park
The attraction near Doncaster says emergency response procedures were "immediately activated".
Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingarinnar
📅 10.10.2026 👁️ 4
Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingarinnar
Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, hefur verið kjörinn nýr varaformaður flokksins. Þetta gerðist á flokksstjórnarfundi ...
Héldu eftir 876 þúsund krónum vegna glugga – sitja uppi með tveggja milljóna reikning
📅 10.10.2026 👁️ 4
Héldu eftir 876 þúsund krónum vegna glugga – sitja uppi með tveggja milljóna reikning
Kaupendur íbúðar á Klapparstíg 7 í Reykjavík, sem keyptu hana á 112,9 milljónir króna, neituðu að greiða síðasta hluta kaupverðsins vegna glugganna í ...
Guð­mundur Ari nýr vara­for­maður Sam­fylkingar - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Guð­mundur Ari nýr vara­for­maður Sam­fylkingar - Vísir
Guðmundur Ari hefur verið þingmaður Samfylkingarinnar síðan árið 2024 og er núverandi þingflokksformaður en hann hafði áður setið í bæjarstjórn Seltja...
Hundrað tonna bor Veitna kominn í Laugardal
📅 10.10.2026 👁️ 4
Hundrað tonna bor Veitna kominn í Laugardal
Hundrað tonna bor var fluttur frá Hellisheiði að Engjateig í Laugardal í morgun þar sem Veitur tæla að bora fyrir heitu vatni.Brynja Ragnarsdóttir, fo...
India: Why have 'cockroach' protesters been detained in Delhi
📅 10.10.2026 👁️ 4
India: Why have 'cockroach' protesters been detained in Delhi
Thousands of security personnel were deployed in Delhi ahead of the Gen-Z led Cockroach Janta Party protest on Saturday calling for electoral reforms.
Þrjú börn meðal fimm­tán látinna í á­rás á í­búðar­blokkir - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Þrjú börn meðal fimm­tán látinna í á­rás á í­búðar­blokkir - Vísir
Breska ríkisútvarpið hefur eftir Volódímír Selenskí Úkraínuforseta og viðbragðsaðilum að sprengjurnar hafi hæft íbúðarbyggingar í borginni. Selenskí s...
Trump segir íslam og fjöldainnflutning á múslimum tengjast óeirðum í Frakklandi – hörð átök einnig í Brussel
📅 10.10.2026 👁️ 4
Trump segir íslam og fjöldainnflutning á múslimum tengjast óeirðum í Frakklandi – hörð átök einnig í Brussel
Trump segir íslam og fjöldainnflutning á múslimum tengjast óeirðum í Frakklandi – hörð átök einnig í Brussel Fréttin10. október 2026ErlentLeave a Comm...
Forsætisráðherra lokar ekki á Evrópu þrátt fyrir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Forsætisráðherra lokar ekki á Evrópu þrátt fyrir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir hagsmuni Íslands á róstusömum tímum tryggða með þéttri samvinnu við öll bandalagsríki og vinaþjóðir Íslan...
Í beinni: Tölum saman – Hvernig samfélag viljum við skapa saman?
📅 10.10.2026 👁️ 4
Í beinni: Tölum saman – Hvernig samfélag viljum við skapa saman?
Hvernig samfélag viljum við skapa saman? Þessari spurningu verður reynt að svara víða um land í dag.Tölum samtal er sameiginlegt verkefni sem byggir á...