Í gær greindi Trump frá samkomulagi sínu við Vladímír Pútín Rússlandsforseta um að Rússar hefji þegar í stað útflutning á hundruðum þúsunda tonna af dísilolíu. Volódímír Selenskí Úkraínuforseti brást harðlega við samkomulaginu í gær og sagði kaup á rússneskri dísilolíu vera gjöf til Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta og fjárfestingu í áframhaldandi stríði.
Í dag sagði Trump í samtali við fjölmiðla vestanhafs að Selenskí vilji „skapa vandamál fyrir heiminn“ með áframhaldandi árásum Úkraínuhers á rússneskar olíuhreinsunarstöðvar. Úkraína ætti að fá sér nýjan forseta sem gæti „gert samninga“ og bundið enda á stríðið við Rússa.
Trump sagði að Selenskí mætti gera það sem honum sýndist utan þess að ráðast á olíuhreinsunarstöðvar Rússa en það hefði áhrif á olíuverð um heim allan. CNN hefur eftir ónefndum embættismanni að Bandaríkin hafi ítrekað biðlað til Úkraínu um að hætta árásum sínum á rússneskar dílishreinsunarstöðvar án árangurs.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ítrekaði víðtækan stuðning við Úkraínu í færslu á X fyrr í dag.
This week has been one of the deadliest for Ukrainian civilians. We reaffirm our comprehensive support to Ukraine, including the expansive use of sanctions to counter Russia’s illegal war and serial violations of its treaty obligations and international law. Justice must prevail.
— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) October 10, 2026
„Þar á meðal umfangsmikla beitingu refsiaðgerða til að sporna gegn ólögmætu stríði Rússlands og ítrekuðum brotum þess á skuldbindingum sínum samkvæmt sáttmálum og alþjóðalögum. Réttlætið verður að sigra,“ skrifaði Þorgerður Katrín.
Í morgun gerðu Rússar umfangsmikla árás á úkraínsku borgina Saporíssjía. Tuttugu hið minnsta létust, þar af þrjú börn, og átján til viðbótar særðust, segir í umfjöllun Reuters. Óttast er að fleira fólk kunni að vera fast undir rústum íbúðarhúsa.