Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi, segir líflína fólks á Gaza að fólk muni eftir þeim, fjármagni hjálp sem það þurfi og ýti á stjórnmálamenn að tryggja frið.
Mikil neyð ríkir á Gaza.
„Þó krísur séu í veldisvexti í heiminum þá erum við þarna með tvær milljónir manna sem eru í landfræðilegu búri sem er stöðugt verið að minnka og gera aðstæður þeirra ómennskari,“ segir hún.
Fyrir ári í dag var vopnahléi lýst yfir á Gaza. Þann dag voru sýndar í fréttum myndir af tugþúsundum Palestínumanna á leið heim í norðurhluta Gaza, eftir að Ísraelsher hafði hrakið þá til suðurs.
Fólk kom að heimilum sínum sem voru rústir einar. Þá höfðu Ísraelar gert harðar árásir í tvö ár og verið sakaðir um þjóðarmorð.
Sameinuðu þjóðirnar telja að á þeim tólf mánuðum, sem vopnahléið hefur verið í gildi, hafi Ísraelar drepið 1.431 og sært um fimm þúsund.
„Staðan er ekki góð,“ segir Birna. Hún segir unnið að því hörðum höndum að fólk geti þraukað veturinn framundan.
„Nánast allir hafast við í tjöldum eða lélegum skýlum. Við vitum að vatnslagnir eru í algjöru ólagi. Þannig að það verða líklega flóð – bæði vatn og skólp sem mun flæða um svæðið.“