Lögreglunni barst tilkynning um að maðurinn hefði farið inn á girt svæði klukkan hálf tvö að staðartíma í dag. Í kjölfarið hafi tígrisdýrið ráðist á manninn og var hann úrskurðaður látinn á vettvangi, segir í umfjöllun breska ríkisútvarpsins (BBC).
Viðbragðsáætlun var virkjuð samstundis, segir í tilkynningu á síðu garðsins. Hann hafi verið rýmdur í kjölfar atviksins og verði hann áfram lokaður á morgun.
Talsmaður dýragarðsins segir að starfsmenn séu harmi slegnir vegna atviksins.
„Hugur okkar og innilegar samúðarkveðjur eru hjá fjölskyldu og ástvinum þess sem lést,“ er haft eftir honum í umfjöllun BBC. Forsvarsmenn garðsins vinni nú náið með lögreglu og viðeigandi yfirvöldum til að komast til botns í málinu.
Árásin náðist á myndupptöku sem hefur farið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Lögregla hvetur fólk til að deila myndefninu ekki.