Kennarasamband Íslands boðaði til blaðamannafundar í vikunni þar sem sambandið kynnti stefnumótun og áherslur í menntamálum. Kallaði sambandið eftir samfélagslegu samtali um menntamál og var vefsíðan Mótum framtíðina saman opnuð af þessu tilefni þar sem hægt er að kynna sér stefnuna og almenningur getur sent inn hugleiðingar og þannig lagt sitt af mörkum.
„Við ákváðum að vera ekki þau sem bregðast við heldur vera á þeim stað að benda á það sem við teljum að sé gott að gera. Þá er þetta samfélagslega samtal, sem hefur verið leiðarljós í skólastarfi og stefnum kennarasamtaka víða um heiminn, að við köllum fólk að borðinu. Við vitum um hluti sem við viljum ræða en reiknum alveg með því að fleira verði rætt,“ sagði Magnús Þór Jónsson í viðtali eftir fundinn.
„Oft talað um að við séum með dýrasta skólakerfi í heimi“
Meðal þess sem fjallað var um í framsögu Magnúsar voru rekstraraðstæður skóla. Að sögn Mjallar Matthíasdóttur, formanns Félags grunnskólakennara, þarf samtal að eiga sér stað við rekstraraðila skóla.
„Það er oft talað um að við séum með dýrasta skólakerfi í heimi og við erum að benda á tölurnar að það er ástæða fyrir því. Við erum með marga fámenna skóla. Við höfum ákveðið að hafa landið í byggð og bjóða nemendum nám í heimabyggð. Það kostar og við þurfum að horfast í augu við það sem samfélag,“ segir Mjöll í viðtali við Vísi.
„Ef við ætlum að fara að breyta slíku þá er það eitthvað stærra samtal sem þarf að taka,“ segir hún enn fremur og bætir við að rekstur grunnskóla sé stór liður í rekstri sveitarfélaga um allt land.
„Hvað viljum við hafa? Við vitum að sumar námsgreinar er dýrt að kenna. Þær kalla á sérútbúnar stofur og sértæki og tól og ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji fara að kasta því fyrir róða.“
„Áratugaskuld í að útvega skólum námsefni og námsgögn“
Eftir niðurstöður úr nýjustu PISA-könnuninni hefur umræða um námsefni verið áberandi og sagði Inga Sæland menntamálaráðherra að fjármagni yrði veitt í málaflokkinn.
Síðan þá hafa engar upplýsingar fengist um hvernig það fjármagn verði nýtt og Mjöll segir Félag grunnskólakennara ekki hafa verið hluta af því samtali.
„Nema bara eins og aðrir að benda stanslaust á að það er gríðarlegur skortur á námsgögnum á öllum skólastigum. Þetta fjármagn er ekki fast í hendi enn þá og það er í raun ekki nægjanlegt. Það þarf miklu hærri upphæð ef menn ætla að saxa á innviðaskuldina því það er áratugaskuld að útvega skólum námsefni og námsgögn.“
Meðal þeirra hugmynda sem ræddar hafa verið er að þýða erlendar námsbækur með aðstoð gervigreindar.
„Það er hægt að nota eitthvað slíkt til stuðnings en það verður ekki grunnurinn að því efni sem við þurfum,“ segir Mjöll.