Hin fimmtuga Pike lifði af tvær banvænar sprautur sem hún fékk á miðvikudaginn í síðustu viku í Tennessee í Bandaríkjunum. Hún komst aftur til meðvitundar á þriðjudaginn síðastliðinn en dvaldi á sjúkrahúsi þar til í dag. Sagt er að Pike standi frammi fyrir löngu bataferli verði ekki aftur reynt að taka hana af lífi.
Lögmenn Pike hafa ítrekað farið fram á að dómi hennar verði breytt í lífstíðarfangelsi í kjölfar misheppnuðu aftökunnar. Enn er óljóst hver eftirmál þessa atviks muni vera enda sé hún fyrst fanga til þess að lifa af aftökutilraun sem þessa.
Lögmenn Pike segja hana þakkláta viðbragðsaðilum og læknateymi fyrir umönnunina við þessar óvenjulegu aðstæður, að því er kemur fram í umfjöllun breska ríkisútvarpsins.
Pike var dæmd til dauða fyrir aðkomu sína að morði á skólafélaga sínum. Pike var þá um átján ára þegar hún ásamt kærasta sínum pyntaði og drap Colleen Slemmer, sem þá var nítján ára. Pike var fyrsta konan sem átti að taka af lífi í Tennessee-ríki í yfir 200 ár.
Enn hefur fangelsismálastofnun Tennessee ekki greint frá því hvers vegna aftakan hafi misheppnast.