„Íslensk stjórnvöld voru nýlega meðal 12 ríkja sem sendu frá sér yfirlýsingu um fyrirhugaðar aðgerðir gegn viðskiptum með vörur frá ólöglegum landtökubyggðum Ísraela á hernumdum svæðum Palestínu. Ekkert hefur hins vegar komið fram um hvaða aðgerða Ísland hyggst grípa til til að fylgja yfirlýsingunni eftir,“ segir í tilkynningu frá félaginu Ísland-Palestína.
Alþjóðlegt bandalag fyrir Palestínu boðaði í dag til alþjóðlegs aðgerðadags en hundruð samtaka víða um heim taki þann dag þátt í samræmdum aðgerðum fyrir frjálsri Palestínu.
Ísland-Palestína segir að þrátt fyrir sögulegar hæðir stuðnings almennings við réttindi Palestínumanna hafi aðgerðarleysi stjórnmálafólks og blekking um vopnahlé gert það að verkum að hörmungarástand viðhaldist á Gaza og Vesturbakkanum án afskipta alþjóðasamfélagsins. Félagið kalli eftir aðgerðum en ekki fleiri yfirlýsingum.
„Árásir og eyðilegging Ísraels einskorðast ekki við Gasa. Ofbeldi og landrán landræningja á hernumdum svæðum Palestínu eykst stöðugt. Á meðan ríkisstjórnir heimsins senda frá sér óljósar yfirlýsingar fela börn á Vesturbakkanum sig fyrir áhlaupum landræningja í hnipri á bak við rafmagnsturna. Þetta ofbeldi nýtur fulls stuðnings Ísraelsríkis. Afskiptaleysi og stuðningur vestrænna ríkja við Ísrael skapar skilyrði fyrir þjóðarmorðinu, landráninu og hernáminu í heild sinni.“
Fundarstjóri var Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, fyrrverandi þingkona og framkvæmdastjóri Courage International. Ræðumenn voru Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður, Montaser Dwikat frá Nablus á Vesturbakkanum og Svava Sigbertsdóttir, einkaþjálfari og stofnandi Viking Method. Páll Óskar flutti einnig tónlist í lok fundar.
Þrjú ár voru í vikunni frá því að Hamas-samtökin gerðu mannskæðustu hryðjuverkaárás á Ísrael í sögu landsins. Um 1200 voru myrt í árás Hamas og 251 tekin höndum, af þeim komust aðeins 168 lífs af. Um 74 þúsund Palestínumenn, þar af 21 þúsund barn, hafa verið drepin í árásum Ísraela sem hófust í kjölfar árásar Hamas.