Í fréttum af fornleifafundinum í síðustu viku kom fram að menn hafi lengi grunað að þarna væri kirkjurúst frá tímum norrænu byggðarinnar. Sönnunin væri núna fengin með því að fundist hefði kirkjugarður umhverfis kirkjuna og gröf með beinagrind sem bæri ótvíræð merki kristinna greftrunarsiða norrænna manna.
Fornleifarannsóknin er á vegum Þjóðminjasafns og Þjóðskjalasafns Grænlands, Þjóðminjasafns Danmerkur, Háskólasafnsins í Bergen og UNESCO, Menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Rannsakendur vinna enn að greiningu sýna en telja að stærð kirkjunnar og tilhöggnir steinar hennar bendi til að hún sé frá tímabilinu 1100 til 1300.
Kirkjurústin er um tíu kílómetrum innan við þann stað sem núna er opinberlega talinn hafa verið landnámsjörðin og höfðingjasetrið Brattahlíð. Þar byggði Eiríkur rauði bæ sinn þegar hann sigldi úr Breiðafirði árið 985 til að nema Grænland og fylgdi honum fjöldi skipa. Úr varð nýtt norrænt landnám fólks sem aðallega kom frá vestanverðu Íslandi, fólks sem í framhaldinu kannaði lönd í Ameríku undir forystu Leifs Eiríkssonar, Þorfinns Karlsefnis og Guðríðar Þorbjarnardóttur.
Norræna byggðin á Grænlandi lagðist hins vegar í eyði um 450 árum síðar og er mönnum það enn hulin ráðgáta hvað varð um fólkið. Með hvarfi byggðarinnar glataðist vitneskja um samfélagið, eins og um örnefni og staðsetningu bæja.
Í þáttaröðinni Landnemarnir, sem Stöð 2 gerði fyrir áratug, var fjallað um þá óvissu og reikistefnu sem verið hefur um staðsetningu Brattahlíðar. Þannig var hún lengi talin hafa verið við annan fjörð á stað sem menn síðar sannmæltust um að væri biskupssetrið Garðar, eftir að þar fannst biskupsgröf.
Þá þurfti að finna Brattahlíð nýjan stað. Hin opinbera niðurstaða varð sú að staðsetja landnámsbæinn þar sem núna er þorpið Qassiarsuk ekki fjarri Narsarsuaq-flugvelli, sem er handan fjarðar. Meginrökin voru þau að þar hefðu fundist minjar um kirkju enda væru ritaðar heimildir um að Þjóðhildur, kona Eiríks rauða, hefði látið reisa kirkju í Brattahlíð.
Í þætti Landnemanna, sem frumsýndur var árið 2016, kynnti danski fornleifafræðingurinn Ole Guldager, sem búsettur er í Narsarsuaq, þá kenningu sína að Brattahlíð hefði staðið innar í firðinum. Bæði taldi hann þann stað rýma betur við örnefnið Brattahlíð, vegna brattrar hlíðar, en einnig hefði þar fundist kirkjurúst. Tilgáta hans var rakin lauslega í þessari frétt:
Svo vill til að fornleifafundurinn, sem kynntur var í síðustu viku, er einmitt á sama stað og Ole Guldager telur vera hina fornu Brattahlíð. Fréttastofa hafði því samband við hann á ný og spurði hann hverju þetta breytti um hans kenningu og hvort núna væri Þjóðhildarkirkja fundin:
„Já, þetta eru svo sannarlega kirkjurústirnar sem við ræddum um áður,“ sagði Ole Guldager en telur fréttaflutning af „fundi“ kirkjunnar nokkuð ónákvæman.
„Fornleifafræðingateymið frá Þjóðminjasafni Grænlands, sem rannsakaði fornleifarnar, „fann“ þær ekki, þótt það sé orðalagið sem notað hefur verið. Með uppgreftrinum hafa þau sannað að um kirkju er að ræða, rétt eins og ég og aðrir á undan mér höfum haldið fram.
Eina ástæðan fyrir því að ég hef ekki rannsakað málið sjálfur er sú að mér tókst ekki að fá leyfi til uppgraftar frá Þjóðminjasafni Grænlands, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir,“ segir Ole.
„Engu að síður er ég mjög ánægður með þessa nýju niðurstöðu, og ég var reyndar viðstaddur þegar gröfin fannst.
Ég tel núna sannað, án nokkurs vafa, að staðurinn sé Brattahlíð. Hvort um kirkju Þjóðhildar er að ræða er þó óvíst, þar sem hugsanlegt er að enn eldri kirkja hafi verið á staðnum.“
Ole Guldager, sem sjálfur rekur safn í Narsarsuaq, telur hins vegar litlar líkur á að kenning sín, um að þarna hafi Brattahlíð verið, fái miklar undirtektir að sinni.
„Ég geri ráð fyrir því að það muni taka langan tíma fyrir kenninguna um Brattahlíð að ná almennri viðurkenningu. Það eru öfl sem vilja halda hlutunum óbreyttum. Tíminn mun leiða það í ljós,“ segir fornleifafræðingurinn og bætir við að vel geti verið að hann birti grein um kenningu sína síðar meir.