Maður á fimmtugsaldri skaut sjö ættingja sína og fjölskylduvin á heimili í borginni Erie í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í gær, áður en hann tók sitt eigið líf.
Meðal þeirra sem maðurinn drap voru eins árs gömul stúlka, fimm ára drengur og ófrísk kona sem var komin átta mánuði á leið. Hin fórnarlömb mannsins voru konur og menn á aldrinum 19 til 51 árs.
Borgarstjóri Erie, Daria Devlin, sagði samfélagið slegið yfir morðunum – nágrannar og vitni, fjölskyldur og aðstandendur fólksins, jafnt sem lögreglumenn og bráðaliðar sem komu fyrst á vettvang. Fjölmiðillinn Erie News Now segir að viðbragðsaðilum verði boðin áfallahjálp.