Vísindafólk frá bandarískri stofnun um fornleifaarfleið, Archaeological Legacy Institute, og Purdue-háskóla kemur til Nikumaroro-eyju í Kyrrahafi á mánudag. Þau vonast til þess að geta leyst ráðgátuna um hvarf flughetjunnar og afrekskonunnar Ameliu Earhart í leiðangri sínum. Breska ríkisútvarpið greinir frá.
Vísindafólkið ætlar að reyna að finna hlut sem hefur fengið heitið Taraia-fyrirbærið og er talið að gæti verið flak flugvélar Earhart. Taraia-fyrirbærið er grafið í grynningunum við Nikumaroro og sást fyrst á gervihnattamyndum árið 2020.
Margir hafa reynt að finna flak flugvélarinnar áratugum saman en án árangurs. Leiðangursmaðurinn Ric Gillespie, sem er sérfræðingur í að endurheimta gömul flugvélaflök, blæs á þessar kenningar um að flakið sé við Nikumaroro-eyju og segir að fyrirbærið sem um ræðir virðist vera tré sem hefur fallið af eyjunni.
Earhart var fyrsta konan til að fljúga yfir Atlantshafið ein síns liðs árið 1932. Earhart ætlaði sér að verða fyrsta konan til að fljúga umhverfis jörðina og var í þeim leiðangri ásamt aðstoðarmanni sínum Freed Noonan þegar þau hurfu sporlaust.
Þau flugu frá Papúa Nýju-Gíneu 2. júlí 1937 og til stóð að þau hefðu viðkomu á Howland-eyju til að taka flugvélaeldsneyti, áður en þau héldu áfram til Hawaii og síðan Kaliforníu. Þau komu þó aldrei til Howland-eyju og æ síðan hafa örlög þeirra verið mikil ráðgáta og tilefni fjölmargra rannsóknarleiðangra, vísindagreina og kenninga.
Fyrir þau sem hafa áhuga á að rifja upp sögu Ameliu Earhart er hægt að hlusta á þátt Veru Illugadóttur, Í ljósi sögunnar, um Earhart hér fyrir neðan.
Á heimasíðu Purdue-háskóla er hægt að fylgjast með rannsóknarleiðangrinum.