Samkvæmt umfjöllun Reuters særðust 309 manns og voru sumir þeirra fluttir á sjúkrahús í lífshættu. Árásin hafi verið gerð fyrirvaralaust og er þetta sú þriðja á sádiarabíska flugvelli í vikunni.
Sendiráð í Sádi-Arabíu hafa ráðlagt ríkisborgurum sínum að halda sig fjarri flugvellinum, segir í umfjöllun BBC.
Eftir árásina endurbirti talsmaður hers Húta eigin færslu á X frá því fyrir árásina, þar sem sagði að aðeins „samþykkt mannúðarflug“ mætti lenda á flugvellinum í Ríad og bætti við orðunum: „til áminningar.“
للتذكير
— العميد/ يحيى سريع (@Yah_Saree) October 10, 2026
Árásin er sögð marka stigmögnun í átökum Húta, sem njóta stuðnings Írana, og Sáda. Donald Trump Bandaríkjaforseti var spurður af fréttamönnum fyrir utan Hvíta húsið hvort Bandaríkin hygðust taka þátt í árásum Sádi-Araba á Húta.
„Það gæti verið. Við ætlum að skoða það. Við fréttum rétt í þessu af nýjustu árásinni, þannig að við tökum ákvörðun. Við bregðumst mjög hratt við,“ sagði Trump segir í umfjöllun CNN um málið.