Anna Yagi, japönsk kona á fertugsaldri, fannst látin á hótelherbergi í Okinawa í byrjun mánaðarins eftir að hafa verið kyrkt.
The Times segir að lögreglu hafi tekist að bera kennsl á tvítugan bandarískan hermann, Devin Ballard, í upptökum úr öryggismyndavél á hótelinu. Hann var stuttu síðar handtekinn nærri Futenma, bandarísku herstöðinni þar sem hann er útsendur. Hermaðurinn neitar öllum ásökunum.
Ekki liggur fyrir hvernig Yagi og Ballard þekktust eða hversu mikið. Samskipti japanskra kvenna og bandarískra hermanna hafa lengi verið hluti af daglegu lífi á Okinawa. Morðið hefur þó vakið hörð viðbrögð í Japan enda ekki í fyrsta sinn sem bandarískir hermenn beita japanskar konur ofbeldi.
Forsætisráðherra Japan, Sanae Takaichi, fordæmdi morðið harðlega. Héraðsstjóri Okinawa, Genta Koja, sagði morðið sérlega illgjarnt og ófyrirgefanlegt. Hann sagði jafnframt að þar sem þetta hefði komið fyrir áður væri ekki hægt að draga aðra ályktun en þá að aginn í bandaríska hernum, kennsla í mannréttindum og aðrar leiðir væru engan veginn að ná tilætluðum árangri.
Mikil viðvera bandaríska hersins veldur spennu
Bandaríkjaher hefur verið með mikla viðveru á Okinawa allt frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Um 30.000 bandarískir hermenn eru að jafnaði útsendir á Futenma-herstöðinni. Um 70% allrar landnotkunar bandaríska hersins er í Okinawa.
Eyjan er þéttbýl og þar búa um 1% japönsku þjóðarinnar, eða um 1,5 milljónir íbúa. Hermennirnir eiga að verja landið gegn árásum en viðvera þeirra á svo þéttbýlu svæði hefur valdið gremju og angist meðal íbúa. Íbúar Okinawa þurfa að búa við flugvélahávaða, stöku hrap flugvéla á borgarsvæði og glæpi, sér í lagi kynferðisafbrot gegn konum.
950 glæpir gegn konum síðan 1945
Aðgerðarsinnar hafa tekið saman upplýsingar um 950 glæpi gegn konum síðan 1945. Þá er talið að aðeins eitt af hverjum tíu kynferðisafbrotamálum sé tilkynnt.
Þar á meðal eru gróf ofbeldisbrot líkt og nauðgun og morð á sex ára stúlku árið 1955 og árið 1995 var 12 ára stúlku rænt og henni hópnauðgað af þremur bandarískum hermönnum. Það mál vakti hörð viðbrögð í samfélaginu og 85.000 íbúar fóru í mótmælagöngu.
Til umræðu hefur verið að flytja Futenma-herstöðina, sem staðsett er í mið Okinawa, til Heneko-flóa sem er fámennari.
Ekki öll á eitt sátt um viðveru hersins
Ofbeldismál eins og morðið á Önnu Yagi og hugmyndir um flutning herstöðva geta haft áhrif á samskipti bandarísku hermannanna og íbúa á Okinawa. Margir íbúar Okinawa reiða sig á viðskipti við bandarísku hermennina, á börum, veitingastöðum, húðflúrstofum og víðar þar sem hermennirnir eiga í viðskiptum.
Herstöðvarandstæðingar segja þó að með því að leggja niður herstöðvar sé hægt að byggja upp ferðaþjónustu í staðinn en þau sem hafa hag af viðskiptum við hermennina mótmæla þeim hugmyndum.
Yuko Ouakawa, baráttukona fyrir jafnrétti kynjanna, sagði í viðtali við The Times að þetta ylli átökum milli íbúa Okinawa en „reiði okkar ætti fyrst og fremst að beinast að bandaríska hernum ekki hvor öðru“.