Sendum Möggu Stínu í Euro­vision - Vísir

Sendum Möggu Stínu í Euro­vision - Vísir

Sendum Möggu Stínu í Euro­vision - Vísir
Klippa: Í bóli Bjarnars - Friðrik Ómar

Jólin eru á næsta leiti. Eða eru þau það? Október er rétt að byrja. Fólk, margt hvert, amast við því að fá ekki að halda jólunum við desember. En jólin eru komin í Costco, jólin eru komin í Bónus og jólin eru heldur betur komin inn í auglýsingar þeirra sem standa fyrir jólatónleikum. Og þar fer Friðrik Ómar fyrir fríðum flokki tónlistarmanna með Vitringana sína þrjá. Friðrik segist glaður taka það á kassann.

„Ég er náttúrulega búinn að vera í jólaham síðan ég man eftir mér. Það er bara þannig. Þetta er ekkert nýtt fyrir mér sko. Ég meina, ég gaf út mína fyrstu plötu 16 ára og það var jólakassetta,“ segir Friðrik Ómar. En hann segist svo sem alveg skilja þessar raddir.

„Jólin eru bara svo mikilvæg fyrir marga. En það er bara þannig með tónleikahald að við þurfum oft að byrja sölu á tónleika með fimm, sex mánaða fyrirvara og það þýðir að það er bara í júní sem við þurfum að byrja. Það er bara þannig. Við í bransanum þurfum að skipuleggja okkur fram í tímann og vita hvort við séum með einhverja vinnu í desember eða ekki.“

Ó helga nótt í enn einni útsetningunni

Friðrik Ómar segist ekki vita hversu margir eru að gera út á þessi mið en hann segist hafa séð jólafíling Baggalúts auglýstan í tuttugu ár. Hann segist yfirleitt svo upptekinn að hann hafi bara einu sinni komist á jólatónleika hjá Baggalúti og þá skemmti hann sér afbragðs vel að sögn.

„Svo hefur formatið á þessum stærri jólatónleikum undanfarin ár breyst. Fólk er kannski minna að fara að koma í Laugardalshöllina til að setjast þar á stól að hlusta á Ó, helga nótt í enn einni útsetningunni. Fólk var farið að kalla eftir meiri skemmtun í bland við jólalögin. 

Friðrik segist hafa átt í sérkennilegu sambandi við föður sinn en hann andaðist á þessu ári.vísir/anton brink

Og þetta eru ekkert endilega jólalög. Þannig að við lásum í stöðuna að kannski væri sniðugt að setja upp sketsa og fleira og svo er músíkin á milli. Við fórum bara í myndatöku, auglýstum og þetta hitti bara strax í mark,“ segir Friðrik Ómar en velgengni Vitringanna hefur verið með ágætum. Og það er endalaus eftirspurn?

„Já, það virðist vera. Við höfum allavega verið á pari núna í þrjú ár og haldið 25 til 27 sýningar á aðventunni á rúmlega þremur vikum.“

Það er vel af sér vikið, ekki síst þegar til þess er litið að jólatónleikahald hleypur á tugum þúsunda. Samkeppnin er mikil.

„Undanfarin ár hafa verið flottir viðburðir: Iceguys í Höllinni og ýmislegt sem er meira fyrir yngra fólk. Svo eru þeir Jóli Hólm og Ari Eldjárn. Markhópur okkar Vitringanna er flottar konur frá 30 upp í 80, mestmegnis, sem svo draga einstaka karl með sér,“ segir Friðrik Ómar.

Mikil velgengni vitringanna þriggja

Vitringarnir halda sýningu í Hörpu og Hofi á Akureyri. Þó að Harpa sé glæsilegur tónleikasalur hefur Vísir heimildir fyrir því að þar sé aðstaðan baksviðs ekki alveg eins og best verður á kosið?

„Það er náttúrulega, eins og í öllum svona húsum sem eru byggð, að það hefði kannski mátt halda fleiri fundi, kannski með okkur, þegar þetta var byggt. Við erum í Silfurbergi og þar var náttúrulega, og að sjálfsögðu, enginn að reikna með því þegar byggt var að þar yrði sýnd revía í tuttugu skipti. 

Friðrik Ómar er maður margra hæfileika, hann er auk þess að vera tónlistarmaður framleiðandi og hann hefur undanfarin ár framleitt við miklar vinsældir jólasýningu Vitringanna þriggja.vísir/anton brink

En við höfum bara unnið afskaplega vel með húsinu við að finna út úr því hvernig þessu verður best komið. Búningsherbergin okkar eru bara svona drappir hingað og þangað. Catering-þjónustan er rétt hjá en þetta gengur mjög vel, sko. Húsið á enn þá einhvern veginn eftir að setjast. Þú veist hvernig þetta er …“

Nei, ég veit ekkert hvernig þetta er.

„Ert þú ekki gömul poppstjarna úr Kátum piltum?!

Jú, reyndar. Og vel á minnst.

„Jæja, en það þarf að finna út úr því hvernig þetta fúnkerar best fyrir okkur sem komum fram og gestina. Það er endalaust púsluspil. Hljóðið lekur stundum á milli sala og allt þetta en ég myndi aldrei kvarta yfir því. En, jú, aðstaðan í þessu sjóvi er svona smá… já, við þurfum að redda okkur.“

Mikil samkeppni í jólatónleikabransanum

Smitast á milli. Talandi um það. Nú er íslenskur tónlistarbransi ekki mjög stór. Smitast söngvararnir ekki svolítið á milli sýninga? Þú með þína vitringa, þú hefur til að mynda sungið á jólatónleikum Bós, blessuð sé minning hans, þess konungs jólatónleikanna?

„Ég hef náttúrlega verið með mína tónleika lengi. En jú, ég hef sungið með Bó, og Frostrósum og Siggu Beinteins … Það var held ég gert grín að þessu í Áramótaskaupinu einhvern tímann, að raða söngvurum hverjum á sitt plakatið,“ segir Friðrik Ómar og hlær. „Þessi jólatónleikabransi er svolítið þannig, glys og grín.“

Friðrik Ómar Friðrik Ómar Hjörleifsson tónlistarmaður

Friðrik segir þetta skemmtilegt umhugsunarefni. Og hann sagknar Björgvins Halldórssonar sem var fyrirmynd hans í lífinu. En Vitringarnir hafa gengið vonum framar.

„En sennilega er þetta bara af því að þetta hefur gengið vel og margir sem sækja tónleikana. En ég tek það skýrt fram að við leggjum alveg svakalega vinnu í þetta. Við erum allt árið að undirbúa á fullu þennan viðburð. Þetta er ekki bara einhver heppni.“

Maður margra hæfileika

Friðrik Ómar er maður margra hæfileika. Hann er ekki bara tónlistarmaður heldur er hann viðburðastjóri eða framleiðandi fram í fingurgóma.

„Jú, ég sá um að framleiða Fiskitónleikana á Dalvík, ég hef gert sýningar með Friðriki Dór í Eldborg, Páli Óskari og fleiri listamönnum. Þá er ég bara með heyrnartólin baksviðs, hleyp um og svitna. Mér finnst það æðislegt.“

Hvernig er að vera svona tvískiptur, listamaður og svo maðurinn sem lætur þetta allt gerast?

„Ég var mikið í leikhúsinu mikið sem unglingur og krakki. Að mála sviðsmyndir og í öllu þessu umstangi og hef alveg bara rosalega gaman af því. Ástríða mín liggur alveg jafnt þar og svo að framreiða tónlist á sviði.“

Friðrik ræddi einnig í viðtalinu um samskiptin við föður sinn sem andaðist á árinu. Þau voru tragíkómísk, en faðir hans var grjótharður Miðflokksmaður og dýrkaði Trump. Þann hluta viðtalsins má lesa hér:

Ekki bara ertu tvískiptur milli þess að vera listamaður og framleiðandi, þú hefur samhliða söngnum starfað í útvarpi. Hvað er það?

„Já. Það væri kannski einhvers konar framlenging á því að koma fram, þú veist, það er bara þetta að vera í sambandi við fólk. Ég byrjaði í útvarpi kornungur á Dalvík, þar voru settar upp framhaldsskólatengdar útvarpsstöðvar. Og einhvern veginn hef ég alltaf dottið svona inn og út þar og hef að undanförnu verið svolítið á Rás 2, eða síðastliðin þrjú, fjögur ár og það hefur verið ótrúlega gaman.“

Bjargaði honum að vera í útvarpinu í sumar

Friðrik Ómar er þarna að lýsa útvarpsþáttunum Félagsheimilið sem hann segir skemmtilegt konsept.

„Þetta er svolítið svona landið og miðin og hefur undið upp á sig. Ég var í sumar í alveg sex vikur, alla virka daga og það var æði. Svo deyr pabbi, sem var óvænt en þetta eiginlega bjargaði mér í sumar, að vera í loftinu. Þó að maður sitji einn við míkrófóninn þá er svo mikið af fólki sem er að hlusta og eru virkir hlustendur, hringja mikið inn. Það er eitthvað við útvarpið. Þetta eru töfraveiðar miðað við sjónvarpið.“

Friðrik lýsir undrum útvarpsins sem miðils en hann höfðar ekki síst til ímyndunaraflsins. En hvað finnst honum almennt um að virkir tónlistarmenn séu í útvarpinu? Stangast þar ekki hagsmunir á hvað varðar spilun á tónlist? 

Friðrik Ómar hefur auk þess að vasast í tónlistinni starfað í útvarpi. Hann segir þetta tengjast því að vilja koma fram.vísir/anton brink

Það þarf ekki að virka þannig að þú sért að spila tónlist með sjálfum þér en vinir þínir í radíóinu gætu viljað gera kollega sínum greiða og laumað einhverju með honum undir nálina?

„Ég get allavega sagt í mínu tilfelli að ég er aldrei spilaður á Rás 2. Þannig að ef ég næ lögum í spilun þá er það bara á Bylgjunni.“

Ók?

„Ég þekki alla á rásinni og bara eins og í sumar, þá fæ ég náttúrulega „playlista“ í hendurnar sem hefur þegar verið ráðstafað, þótt ég hafi nú ráðið ansi miklu um playlistana líka. En það sem nær eyrum hlustenda á Rás 2 er bara svo ólíkt því sem ég er að bardúsa. Þannig að, nei, þetta hefur aldrei rekist saman, ekki hvað mig varðar.“

Flutti óvænt upp í Borgarnes

En af hverju sækja svona margir tónlistarmenn og söngvarar í radíóið?

„Hver ætli sé ástæðan? Heldurðu að það sé af því við viljum láta spila okkur? Ég held ekki. Ég held að þetta sé einhvers konar framlenging á því að vilja koma fram og allt það.“

Gamla góða athyglissýkin?

„Já, þetta er athyglissýki. Það er hægt að kannski segja það líka, sko,“ segir Friðrik Ómar og kímir.

Friðrik Ómar er búsettur uppi í Borgarnesi og er til þess að gera nýfluttur þangað. Hvað, hvað gerðist?

„Já, ég heyri bara á röddinni þinni að þú ert mjög hissa.“

Já, ég get ekki neitað því.

„Jú, það eru margir sem segja þetta. En svo þegar þeir koma til mín í heimsókn þá bara ókei, ég skil. Ég ætlaði náttúrulega ekkert að fara til Borgarness. 

Friðrik flutti mörgum á óvart upp í Borgarnes þar sem hann unir hag sínum vel. Ágætt að fá örlitla fjarlægð á sollinn.vísir/anton brink

Það eru þrjú ár síðan ég keypti og við flytjum 1. febrúar 2024. Það lágu einhver 5-6 tilboð á borðinu en mitt bauð upp á langan afhendingarfrest, eða sjö mánuði. Þeir sem áttu húsið voru að fara að byggja annars staðar þannig að þeir sáu sér náttúrulega leik á borði að geta búið þarna á meðan.“

Þannig að gengið var að tilboði Friðriks.

Hefur alltaf farið vel með peningana sína

„Það var bara samþykkt og ég sagði bara: Sjitt, hvað er ég búinn að koma mér út í? Er ég að fara að flytja til Borgarness? En þetta hefur verið dásamlegt. Og ég þurfti á einhverju svona að halda, að fara úr skarkalanum og af hlaupahjólinu. Ég var búinn að vera að vinna ofsalega mikið, hafði verið mjög duglegur en það var farið að taka svolítið frá mér gleðina.“

Fá fjarlægð á sollinn?

„Já, ég þurfti að gera það. Og þegar þú ert kominn svona aðeins út úr, þegar vinirnir koma og gista, þá eigum við öðruvísi og frábærar stundir, þótt þær séu kannski færri. Já, þetta hefur verið mjög gott fyrir mig.“

Friðrik segist ekki sjá eftir þessu skrefi.

„Nei, ég geri það alls ekki. Ég svona er farinn að horfa til þess að mig langar að eignast einhverja svona litla íbúð í Reykjavík, eitthvað svona afdrep en það hefur sinn tíma, maður er bara duglegur að safna.“

Er hægt að safna á Íslandi?

„Já, já, ég hef alltaf farið frekar vel með peningana mína. Ég hef það frá pabba. Hann átti aldrei mikla peninga og svo er mamma líka með þessa hluti á hreinu, sko. Þannig að ef ég hef eignast einhverja peninga þá hef ég sett þá í steypuna mína.“

Steinsteypan er besta fjárfesting sem landsmönnum stendur til boða og á Íslandi er staðinn grjótharður vörður um nákvæmlega það.

Bakslag og bakslag

En í framhaldi af spjalli okkar um föður þinn heitinn, hvað með þetta svokallaða bakslag? Er bakslag?

„Já, já. Þetta er reyndar gild spurning. Ég held að það sem fyrst og fremst hafi gerst í hinsegin senunni sé að hún er náttúrulega bara svo breytt, til dæmis frá því ég var að koma út. Þá voru bara hommar, lesbíur og þetta er orðið flókið fyrir hinn venjulega leikmann að skilja þetta allt. Og margir innan senunnar átta sig ekkert á þessu endilega heldur, sko, eða frekar.“

Já, þar er þetta ekkert endilega svo að þar standi allir saman sem einn maður?

„Nei. En fyrir mér persónulega er þetta bara mjög einfalt. Fólk á bara að fá að vera eins og það vill, sko. Það sem hefur hins vegar gerst í pólitíkinni hér heima eins og víðar er að það eru viss öfl sem notfæra sér þetta. 

Friðrik Ómar segir að hann muni alltaf vera tilbúin í baráttu fyrir málefnum hinsegin senunnar.vísir/anton brink

Og ég held að þau meini stundum sjálf í raun kannski ekki mikið með þessu. Þetta er bara taktík til að fá fólk til liðs við sig. Bakslag? Ég held bara að það sé rosaleg barátta fram undan og hefur, fyrir part af senunni, verið fyrir. Ég held að það verði alltaf. Ég held að maður muni seint upplifa þann dag sem verði ekki eitthvað sem kalla megi bakslag. Og við berjumst áfram. Ég berst að sjálfsögðu fyrir hinsegin samfélagið.“

En það þykir öllum á Íslandi vænt um hinsegin samfélagið, eða er það ekki?

„Öllum?“

Skrítið að sjá BDSM-klædda í hinsegin göngunni

Tjahh, þegar hommar og lesbíur komu út úr skápnum á sínum tíma þá var ekki annað hægt en dást að því hvernig þau höguðu baráttu sinni, brutu lönd á skömmum tíma með jákvæðni og slógu þannig vopnin úr höndum allra sem vildu eitthvað vera að fetta fingur út í þetta. En nú er kominn annar tónn og harðari?

„Jú. Það eru kannski líka einhver kynslóðaskipti sem ég upplifi. Nú er ég orðinn 45 ára, kíki í eina veislu og átta mig allt í einu á því að ég er elstur og þekki engan. Þú veist, það er líka bara sú breyta. Menn og konur sem hafa verið í forsvari eru oftast hommar og lesbíur, allt frá Herði Torfa, Palla og fleirum sem náttúrulega hafa verið ómetanlegir fyrir okkur. 

Nú eru, að mati Friðriks Ómars, kynslóðaskipti í baráttunni fyrir réttindum hinsegin senunnar.vísir/anton brink

Já, það eru einhvers konar kynslóðaskipti í gangi og það er ekki lengur verið að berjast fyrir homma og lesbíur heldur alls konar og það er örlítið flóknara.“

Friðrik Ómar telur að það þurfi að gefa sér betri tíma til að kynna sér málin. Þegar BDSM-félagið gekk inn í Samtökin '78 var klofningur í félaginu og þá var tekist hart á.

„Já, ég held það hafi verið svona 2018 eða 2019, þetta er orðið langt síðan, tíminn flýgur. En þetta er orðið sjónrænna. Það er skrýtið fyrir marga að sjá fólk í BDSM-félaginu í göngunni á Hinsegin dögum.“

Já, það virðist trufla marga.

„Já, ef við bara tölum bara um búningablæti. Og þú með alla fjölskylduna á staðnum. En þetta hafa hommar svo sem gert í gegnum tíðina, þeir hafa klætt sig alls konar. En þetta er allt í gangi. En það er eitt að berjast fyrir hagsmunum, það má örugglega og það geta allir gert betur.“

Ísrael má ekki lengur sigra í keppninni

En ágreiningurinn snérist kannski um að þá var verið að taka inn í samtökin hóp sem haldinn var blæti frekar en hneigð?

„Já. Ég skil það sjónarmið. En ég held að það séu viss kynslóðaskipti, breyttir tímar. Fólk vitnar oft í gamla tímann eins og þegar hommarnir voru að berjast fyrir tilvist sinni. Nú er bara annars konar annað í gangi. En á endanum, sko, af öllu sem er í gangi í heiminum, þá held ég að við getum alveg látið þetta allt „slæda“ sko. Það eru verri hlutir í gangi.“

Friðrik Ómar, með þig í talfæri þá er ekki hægt að sleppa því að nefna Eurovision. Fáir vita eins mikið um það fyrirbæri og einmitt þú. Við vorum ekki með í fyrra og ekki í ár. Útvarpsráð hefur ályktað þar um. Hvað finnst þér um þetta?

„Mér finnst þetta bara mjög sorglegt. Já. Nú er EBU búið að ákveða að Ísrael geti ekki unnið keppnina.“

En þeir eru hvort sem er alltaf í öðru sæti, sem hentar Ísrael fullkomlega?

„En þeir fá ekki að vinna. Ég held að við séum ekki búin að átta okkur á því hversu kjánalegt það verður fyrir listafólkið að stíga á svið, vera með atriði og lag og allt þetta, sitja inni í græna herberginu vitandi að þau fá ekki einu sinni að vinna. Mér finnst það alveg ótrúlega kjánalegt. 

Friðrik Ómar spyr hvenær komi eiginlega að þeim tímapunkti að Ísland megi aftur taka þátt í Eurovision?vísir/anton brink

Og hvenær eigum við að fara aftur af stað? Hvenær er rétti tímapunkturinn til þess að gera það? Það er svo margt í gangi í heiminum og við erum með þessa hátíð, Söngvakeppnina, sem er fjölskylduvæn. Þetta er svolítið eins og aðventa og jól einu svona ári og krakkar hafa alist upp við þetta.“

Blússandi barátta við Mercedes Club

Friðrik Ómar segir þessa óvissu óásættanlega og hann er ósáttur við þá ákvörðun að draga Ísland úr keppninni.

„Ég vil að við höldum áfram að taka þátt í Eurovision. Það er mín skoðun og mín tilfinning. Þú veist, ég hef oft mjög oft verið í kringum þessa keppni og séð hvað margt í tengslum við hana er frábært og gott. Ég skil allt allar þessar gagnrýnisraddir. Mér finnst í rauninni að þjóð sem er í stríði eigi ekkert að vera að taka þátt í keppninni. EBU hefði mátt grípa fyrr inn í og fastar. En ég vil sjá okkur keppa og vera með.“

Eins og þú segir sjálfur hefur þú oft verið viðriðinn þessa keppni og tekið þátt. Þú varst í þriðja sæti 2006, öðru 2007 og svo 2008, þegar þú hafðir sigur, stefndi í að Merzedes Club Valla Sports myndi setja strik í reikninginn og allt sauð upp úr.

„Já, það var skemmtilegt,“ segir Friðrik Ómar. Honum þykir ekki verra að rifja upp það sem gekk á þá.

„Þetta var náttúrulega alveg ótrúlegt tímabil. Símakosningin var orðin svolítið stórt batterí hérna heima, það var farið að telja í alvöru, held ég að megi fullyrða. Silvía Nótt fór 2006, hún rústar keppninni hér heima og kemur með fyrsta atriðið sem nær fólkinu heima með símtækin.“

Vann Gillzenegger og það var aðalmálið

Friðrik Ómar segir það atriði stórkostlegt og hann hefði ekki fyrir nokkra muni viljað missa af því þó að hún hafi kannski stuðað menn í útlandinu með leikþætti sínum. En 2008 verður stríð.

„Ég endaði í Kastljósi til að útskýra hvað var í gangi. Það sem gerist þarna á lokakvöldinu er að þau í Merzedes Club eru náttúrulega með sinn áhangendahóp og ég er með mína fjölskyldu og eitthvað svona. Það voru gerð einhver myndbönd þar sem mömmur okkar kynntu okkur inn. Þegar mamma kemur á skjáinn upphefjast dólgslæti og miður falleg orð voru látin falla. Þetta voru ekki þau heldur þeirra áhangendahópur. Það lið var á endanum tekið og rekið út en þetta var þvílíka havaríið. 

Svo í öllu spennustiginu, allt að sjóða upp úr, kemur frændi minn og segir mér þetta. Það sauð á mér og ég náði ekki alveg að fókusera á þeim tímapunkti. Þegar ég vinn tek ég þennan frábæra málshátt og sný honum á hlið og segi að hæst glymji í tómri tunnu. En það er víst bylur hæst í tómri tunnu. En það var ekki aðalmálið heldur það að ég hafi notað sigurandartakið í að hella mér yfir keppinautana.“

Þórhallur Gunnarsson dagskrárstjóri þurfti að grípa inn í atburðarásina en þar var allt að sjóða upp úr.

„Hann tók mig afsíðis og sagði mér að telja upp á tíu. En eftir á var þetta ótrúlega gaman allt saman. Og ég meina, ég vann Gillzenegger, það var aðalmálið,“ segir Friðrik og hlær. Honum finnst ekki leiðinlegt að rifja þetta andartak upp.

Friðrik Ómar rifjar upp kostulegan slag við Merzedes Club. Það sem máli skiptir, segir hann í gríni, er að hafa sigrað Gillzenegger.vísir/anton brink

Friðrik Ómar var ekki hættur að taka þátt og hann lenti í harðri keppni við Hatara sem sigruðu 2019. Friðrik Ómar var þá með lag sem hafnaði í öðru sæti, Hatrið sigraði. Var það sárt?

„Nei, alls ekki. Það var svo allt önnur Ella. Þarna var ég með lag og texta eftir sjálfan mig og var bara rosalega ánægður með það allt saman. Ef ég hefði ekki verið að keppa sjálfur hefði ég kosið það. Og ég meina, þeir enduðu í tíunda sæti, sem er frábær árangur – voru hrikalega flottir þarna úti.“

Hefði kosið Hatara hefði hann ekki verið að keppa sjálfur

Friðrik Ómar segist ekki hafa búist við neinu öðru af Hatara-fólkinu en að það myndi gera eitthvað á borð við það að veifa palestínska fánanum og hann gerir engar athugasemdir við það.

„Já, þeir fóru þarna út og voru ákveðnir í því hvað þeir ætluðu að gera. Og það er alveg hægt að gera það aftur. RÚV gæti þess vegna valið bara einhvern til þess að fara út. Það hefur verið gert. Það þarf ekki alltaf keppni hér heima. Við ættum að senda Möggu Stínu út næst. Hvernig væri það? Með eitthvað gott lag.“

Friðrik er ósáttur við ákvörðun stjórnar Ríkissjónvarpsins að draga Ísland úr Eurovision.vísir/anton brink

Já, þetta er hugmynd!

„Og hljómsveit. Ég meina, af hverju ekki? Í staðinn fyrir að leggja niður skottið og taka ekki þátt, senda engan?! Eða Pál Óskar. Þú veist, hann yrði frábær fulltrúi við þessar aðstæður. Hann myndi örugglega segja eitthvað magnað. Það er margt hægt að gera.“

En RÚV á nú ekki hægt um vik með að taka þátt þegar einmitt Páll Óskar er fyrir utan Efstaleitið, búinn að ausa yfir sig gerviblóði og hrópar: Ekki taka þátt!?

„Já, já, algjörlega. Ég virði það alveg. Það fóru margir listamenn upp á RÚV og mótmæltu harðan. Ég var ekki einn af þeim. Mér finnst bara rökin ekki eiga við núna. Hvenær eigum við að leggja þennan ágreining til hliðar, á hvaða tímapunkti?“

Fannst ógeðfellt hvernig ráðist var á Heru

Síðustu keppendur Íslands voru Væb sem fóru með lagið Róa og þar áður, 2024, fór vinkona þín Hera Björk út með lagið „Scared of Heights“. Hún sigraði Bashar Murad í umdeildri undankeppni og allt varð vitlaust. Hún hlaut bágt fyrir sína þátttöku?

„Já, já, en það voru engin læti í tengslum við Væb-drengina. Ég held það hafi verið munur á þeim, ungu drengjunum og svo Heru. Við ætluðumst kannski ekki til þess að þeir færu í neinn slag. En, já, já, þetta var stór ákvörðun fyrir Heru. Við gerðum okkur kannski alveg grein fyrir hversu stór, hversu erfitt þetta yrði. Ég var mjög svekktur, sko, fyrir hönd Heru og mér fannst árásir á hana orðnar verulega ógeðfelldar.“

Friðrik Ómar fór ekki leynt með þá skoðun sína á þeim tíma, stakk niður penna þá og dembdi sér í baráttuna á samfélagsmiðlum, eins og hann gerði reyndar oft og sparaði sig ekki. En hann finnur það nú að hann nennir ekki að standa í slíkum látum lengur. Ekki í bili, í það minnsta.

„Ég hef alveg stungið niður penna og verið að tjá mig um menn og málefni. En kannski ekki alltaf haft nógu mikið vit á málefninu og svo, kannski af því að maður er í þessu starfi, þá fær maður bara x mikla athygli. Þannig að maður þarf kannski bara að fara aðeins varlega líka – stundum,“ segir Friðrik Ómar og hlær. Hann er hamingjusamur og sáttur við að vera einn í Borgarnesi.

#eurovision #möggu #sendum #stínu #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262946213d/sendum-moggu-stinu-i-euro-vision

📰 Aðrar fréttir

Dóra Sif Tynes: Hæstiréttur hefur talað skýrt – Alþingi hefur ekki innleitt bókun 35
📅 11.10.2026 👁️ 0
Dóra Sif Tynes: Hæstiréttur hefur talað skýrt – Alþingi hefur ekki innleitt bókun 35
Hæstiréttur hefur talað skýrt. Við höfum ekki innleitt bókun 35 þannig að íslenskir dómstólar geti beitt þeirri forgangsreglu sem bókunin felur í sér....
Erfitt að sjá að ávinningurinn af fölsuðum peptíðum sé áhættunnar virði
📅 11.10.2026 👁️ 1
Erfitt að sjá að ávinningurinn af fölsuðum peptíðum sé áhættunnar virði
Notkun ólöglegra peptíða hefur sprungið út á Íslandi síðasta árið. Á samfélagsmiðlum eru markaðssettar mismunandi tegundir peptíða sem eru sagðir hafa...
Lóð flugskýlis minnkuð um nær helming – kröfum kaupenda hafnað
📅 11.10.2026 👁️ 1
Lóð flugskýlis minnkuð um nær helming – kröfum kaupenda hafnað
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfum kaupenda eignarhluta í flugskýli á Akureyrarflugvelli um að fella úr gildi samþykkt bygg...
Erfðaprinsinn Alois og átökin um réttindi kvenna í Lichtenstein
📅 11.10.2026 👁️ 1
Erfðaprinsinn Alois og átökin um réttindi kvenna í Lichtenstein
Í Lichtenstein er við lýði það sem kallað er stjórnarskrárbundið furstadæmi. Furstinn - eða prinsinn eins og kannski væri réttara að kalla hann, heiti...
Opna tvær nýjar deildir á Akureyri
📅 11.10.2026 👁️ 2
Opna tvær nýjar deildir á Akureyri
Tvær nýjar deildir eru á teikniborðinu hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri. Markmiðið með þeim er að skapa svigrúm innanhúss, fækka innlögnum og tryggja betra...
Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengi­sandi - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 1
Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengi­sandi - Vísir
Í dag eru nákvæmlega 40 ár liðin frá því að leiðtogar stórveldanna, Reagan og Gorbatsjoff, hittust hér í Reykjavík til að freista þess að ljúka kjarno...
Tugir slösuðust vegna ský­stróka á Sikil­ey - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Tugir slösuðust vegna ský­stróka á Sikil­ey - Vísir
Að minnsta kosti ellefu voru fluttir á sjúkrahús eftir að hafa orðið fyrir braki og glerbrotum, að því er Guardian greinir frá. Sjötugur maður var með...
Reyndi að brjóta sér leið inni í íbúð í Kópavogi vopnaður hnífi og hamri
📅 11.10.2026 👁️ 2
Reyndi að brjóta sér leið inni í íbúð í Kópavogi vopnaður hnífi og hamri
Óskað var eftir aðstöð lögreglu vegna manns í Kópavogi sem reyndi að brjóta sér leið inn í íbúð vopnaður hnífi og hamri. Þetta kemur fram í dagbók lög...
Fáni hryðjuverkasamtaka vekur athygli í Palestínugöngu í Reykjavík
📅 11.10.2026 👁️ 2
Fáni hryðjuverkasamtaka vekur athygli í Palestínugöngu í Reykjavík
Fáni hryðjuverkasamtaka vekur athygli í Palestínugöngu í Reykjavík Fréttin11. október 2026InnlentLeave a Comment Rauður fáni með merki Alþýðufylkingar...
Mannskæðasta árás í Sádi-Arabíu í rúman áratug
📅 11.10.2026 👁️ 2
Mannskæðasta árás í Sádi-Arabíu í rúman áratug
Að minnsta kosti tólf eru látnir og yfir þrjú hundruð eru særðir eftir árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad, höfuðborg Sádi-Arabíu, í gær. Nokkrir hinna s...
Eitt „læk“ getur sprengt sam­bandið – hjá bæði tví­tugum og átt­ræðum - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Eitt „læk“ getur sprengt sam­bandið – hjá bæði tví­tugum og átt­ræðum - Vísir
Samt eiga flest pör eitt sameiginlegt:  Þau langar svo að vera hamingjusöm! „Yngsta parið sem hefur leitað til mín var 17 ára gamalt,“ segir Íris Eik ...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Enn skapar Þorgerður Katrín óróa
📅 11.10.2026 👁️ 2
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Enn skapar Þorgerður Katrín óróa
Mynd Koma utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio
Veðurstofan varar við stormi á Suðurlandi
📅 11.10.2026 👁️ 3
Veðurstofan varar við stormi á Suðurlandi
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna storms á Suðurlandi í kvöld og nótt.Vaxandi lægð nálgast landið með suðaustan hvassviðri eða sto...
Minnir  helst á fangabúðir nasista
📅 11.10.2026 👁️ 3
Minnir helst á fangabúðir nasista
Hundruð Íslendinga voru send til afplánunar í dönskum fangelsum á 18. og 19. öld. Dánartíðni íslenskra fanga var hærri en fanga af öðrum þjóðernum og ...
Rony the hero police dog honoured for finding missing people in the Canary Islands
📅 11.10.2026 👁️ 2
Rony the hero police dog honoured for finding missing people in the Canary Islands
Meet Rony, a Springer Spaniel serving with the National Police in the Canary Islands, who has received a special honour for his remarkable work helpin...
40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða
📅 11.10.2026 👁️ 3
40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða
Óhætt er að segja að allt hafi farið á annan endann í íslensku samfélagi árið 1986 þegar tilkynnt var með aðeins tólf daga fyrirvara að leiðtogar Band...
Suð­austan stormur og gul við­vörun - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Suð­austan stormur og gul við­vörun - Vísir
Í hugleiðingum sínum segir veðurfræðingur Veðurstofunnar að vaxandi lægð á Grænlandshafi sé á norðurleið og að skilin frá henni nálgist landið. Hægt v...
Braust inn með hníf í einni og hamar hinni - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Braust inn með hníf í einni og hamar hinni - Vísir
Samkvæmt dagbók lögreglu var maðurinn handtekinn og vistaður í fangaklefa. Í Háaleitis- og Bústaðahverfi var maður handtekinn fyrir líkamsárás og brot...
Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 1
Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni - Vísir
Samkvæmt dagbók lögreglu var maðurinn handtekinn og vistaður í fangaklefa. Í Háaleitis- og Bústaðahverfi var maður handtekinn fyrir líkamsárás og brot...
Stal heilum sjóðsvélum og braust inn í skip – ekki gerð refsing
📅 11.10.2026 👁️ 4
Stal heilum sjóðsvélum og braust inn í skip – ekki gerð refsing
Maður sem stal meðal annars heilum sjóðsvélum, golfpoka og bjórkútum og færði rúma eina og hálfa milljón króna inn á eigin reikning með stolnum greiðs...
Óttast stefnubreytingu hjá DR
📅 11.10.2026 👁️ 4
Óttast stefnubreytingu hjá DR
Óttast stefnubreytingu hjá DR Dansk­ir leik­ar­ar, leik­stjór­ar, hand­rits­höf­und­ar, mynda­töku­menn og fleiri sem unn­ið hafa að gerð leik­inna sj...
Jet2 cancels all flights to La Palma just months after launch
📅 11.10.2026 👁️ 4
Jet2 cancels all flights to La Palma just months after launch
Jet2 has confirmed it is withdrawing its flights and holiday packages to La Palma, just six months after launching its first direct service to the isl...
Handtekinn vegna líkamsárásar og brots á vopnalögum
📅 11.10.2026 👁️ 4
Handtekinn vegna líkamsárásar og brots á vopnalögum
Maður var handtekinn í hverfi 108 í Reykjavík í gær eða nótt vegna líkamsárásar og brots á vopnalögum. Í dagbók lögreglunnar segir að maðurinn hafi ve...
Rain eases across the Canary Islands this bank holiday Sunday
📅 11.10.2026 👁️ 4
Rain eases across the Canary Islands this bank holiday Sunday
The Canary Islands are expecting an improvement in weather conditions today, Sunday 11th October, although occasional rain showers remain possible acr...
Drónaárás á rússneskt gagnaver
📅 11.10.2026 👁️ 4
Drónaárás á rússneskt gagnaver
Þetta er þriðja árás Úkraínuhers á gagnaver rússneska fyrirtækisins Yandex á innan við viku. Fyrirtækið hefur verið kallað rússneska Google, en það re...
Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
CJP at Jantar Mantar: Delhi sees more protests as 'Cockroach' group's arrested leaders freed
📅 11.10.2026 👁️ 1
CJP at Jantar Mantar: Delhi sees more protests as 'Cockroach' group's arrested leaders freed
Police say they will keep restricting access to the city centre after thousands of people were detained and released on Saturday.
Liverpool v Manchester City: Toxicity and uncertainty await City at Liverpool - will their season even matter?
📅 11.10.2026 👁️ 4
Liverpool v Manchester City: Toxicity and uncertainty await City at Liverpool - will their season even matter?
Manchester City visit Liverpool on Sunday with a lot of uncertainty hanging over them. Phil McNulty looks at what lies ahead.
Mikil reiði vegna morðs á japanskri konu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Mikil reiði vegna morðs á japanskri konu
Anna Yagi, japönsk kona á fertugsaldri, fannst látin á hótelherbergi í Okinawa í byrjun mánaðarins eftir að hafa verið kyrkt.The Times segir að lögreg...
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 5
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
„Það var ömurlegt. Það er svo mikið stress að starta svona túrum. Maður er bara á fullu og maður er ekki búinn að spila í langan tíma og það er allt a...
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
📅 11.10.2026 👁️ 5
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
Vísindafólk frá bandarískri stofnun um fornleifaarfleið, Archaeological Legacy Institute, og Purdue-háskóla kemur til Nikumaroro-eyju í Kyrrahafi á má...
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
📅 11.10.2026 👁️ 5
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
Maður á fimmtugsaldri skaut sjö ættingja sína og fjölskylduvin á heimili í borginni Erie í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í gær, áður en hann tók sitt e...
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
📅 11.10.2026 👁️ 4
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
The White House had blocked access for CNN, MS Now and Politico, leading them to restrict pool coverage.
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
📅 11.10.2026 👁️ 4
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
The Environment Agency has warned approximately 6.3 million homes and businesses in England remain at risk of flooding.
UK launches flood taskforce to prepare for extreme winter weather
📅 11.10.2026 👁️ 4
UK launches flood taskforce to prepare for extreme winter weather
The Environment Agency has warned approximately 6.3 million homes and businesses in England remain at risk of flooding.
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
📅 11.10.2026 👁️ 4
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
Fellibylurinn Isaias sem skall að landi við Flórída og Alabama í gær hefur raskað olíuframleiðslu Bandaríkjanna við strendur Mexíkóflóa.Orkumálaráðher...
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND)
📅 11.10.2026 👁️ 4
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND)
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND) Fréttin11. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Úkraína ætti að skipta út V...
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
Samkvæmt umfjöllun Reuters særðust 309 manns og voru sumir þeirra fluttir á sjúkrahús í lífshættu. Árásin hafi verið gerð fyrirvaralaust og er þetta s...
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir Fréttin10. október 2026ErlentLeave a Comment King Khalid-alþjóðaflugvöllurinn...
I was told I had depression for 14 years until I got sectioned - it was bipolar
📅 10.10.2026 👁️ 3
I was told I had depression for 14 years until I got sectioned - it was bipolar
Kimberley Atkinson assumed her symptoms were depression until her behaviour started to change dramatically.
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
Þúsundir mótmælenda voru handteknir í Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, í dag þegar mótmælt var breytingum á kjörskrá landsins. Þetta kemur fram í tilkyn...
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
📅 10.10.2026 👁️ 4
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
Film-maker Sue Kim talks about having unprecedented access to K-Pop idol Lisa Manobal at her most candid.
AI is creating a 'human premium' for art created by people
📅 10.10.2026 👁️ 4
AI is creating a 'human premium' for art created by people
Amid a surge in AI content, many are placing extra value on art that's obviously made by a human. But can that last, asks Ros Atkins
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
📅 10.10.2026 👁️ 4
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
Lizzy, Charlotte and Libby studied at the same time, but their student debt now looks very different.
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
📅 10.10.2026 👁️ 4
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
MPs are seeking to stop immunity applying when police fabricate evidence or are dishonest or negligent.
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
📅 10.10.2026 👁️ 5
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
Að minnsta kosti fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias sem skall á strönd Flórída og Alabama í gærkvöld.Dregið hefur úr krafti Isaias en enn e...
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
Í fréttum af fornleifafundinum í síðustu viku kom fram að menn hafi lengi grunað að þarna væri kirkjurúst frá tímum norrænu byggðarinnar. Sönnunin vær...
Tóku samtalið um land allt
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tóku samtalið um land allt
„Samtalið“ svokallaða fór fram í dag, þar sem fólk hittist, ræddi framtíðina og hvernig samfélag það vill. Verkefnið heitir „Tölum saman“ og varð til ...
Frakkland í krísu og fjarhægrið sækir á
📅 10.10.2026 👁️ 4
Frakkland í krísu og fjarhægrið sækir á
Frakkland í krísu og fjarhægrið sækir á Að­eins 15 pró­sent hafa já­kvætt álit á Macron Frakk­lands­for­seta. Eldsneytis­verð í Frakklandi er í sögu­l...
Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið - Vísir
Hin fimmtuga Pike lifði af tvær banvænar sprautur sem hún fékk á miðvikudaginn í síðustu viku í Tennessee í Bandaríkjunum. Hún komst aftur til meðvitu...