Í umfjöllun BBC kemur fram að Hútar hafi þagað þunnu hljóði eftir árás gærdagsins þar til í dag. Hútar hafa um árabil barist gegn Sádí-Arabíu og bandamönnum landsins í borgarastyrjöld í nágrannaríkinu Jemen. Í yfirlýsingu sinni í dag ítreka Hútar að ekkert lát verði á árásum á flugvelli í landinu.
Haft er eftir Yahya Seree talsmanns hers Húta að helgustu borgir Íslams Mekka og Medína yrðu hinsvegar undanskildar í árásum Húta. Aðrir flugvellir í Sádí-Arabíu geti hinsvegar orðið að skotmörkum og telja Hútar þá innan síns aðgerðarsvæðis.
Hvatti hann almenning til að taka viðvörunum Húta alvarlega. Yfirvöld í Sádí-Arabíu beri ábyrgð á öllum flugskeytum sem lendi á borgurum þar í landi.
Átök milli Sádí-Araba og Húta hafa stigmagnast undanfarnar vikur samhliða hernaði milli Írans og Bandaríkjanna en Hútar eru bandamenn Írana og Sádar bandamenn Bandaríkjanna. Fram kemur í umfjöllun BBC að Sádar hafi óskað eftir fleiri varnareldflaugum frá Bandaríkjunum og vestrænum bandamönnum sínum síðan að átökin stigmögnuðust.
Seree segir að Hútar muni halda áfram árásum sínum. Hver og einn einasti flugvöllur í Sádí-Arabíu utan tveggja séu undir.