Eitt „læk“ getur sprengt sam­bandið – hjá bæði tví­tugum og átt­ræðum - Vísir

Eitt „læk“ getur sprengt sam­bandið – hjá bæði tví­tugum og átt­ræðum - Vísir

Eitt „læk“ getur sprengt sam­bandið – hjá bæði tví­tugum og átt­ræðum - Vísir

Samt eiga flest pör eitt sameiginlegt: 

Þau langar svo að vera hamingjusöm!

„Yngsta parið sem hefur leitað til mín var 17 ára gamalt,“ segir Íris Eik Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri og eigandi fjölskyldu- og sálfræðiþjónustunnar Samskiptastöðin, en bætir við:

En það er ekki bara unga fólkið sem er duglegt að koma. Ég fæ reglulega inn fólk á sjötugs- og áttræðisaldri þar sem trúnaðarbrestur vegna samskipta á samfélagsmiðlum hefur gjörsamlega sprengt sambandið í loft upp.“

Því já, samfélagsmiðlar eru orðnir stór áhrifavaldur í öllum aldurshópum.

„Trúnaðarbrestur er trúnaðarbrestur. Hvort sem einhver er að sofa hjá öðrum eða daðra á bak við maka sinn á netinu, þá fer af stað sami sársauki og sama vinnuferlið til að endurheimta traustið.“

Að vera illt en elska

Íris hefur áður verið okkur innan handar í pararáðgjöf. En sjaldan er góð vísa of oft kveðin og í dag ætlum við því að þiggja frá Írisi nokkur bjargráð til að hjálpa okkur að rækta ástina og parsambandið.

Því áskoranir geta dúkkað upp hjá pörum, óháð aldri.

„Yngri kynslóðir eru kannski fljótari að leita sér hjálpar, en á sama tíma eru flækjurnar ólíkar eftir æviskeiðum. Pör án barna takast á við lífsskipulag og afbrýðisemi; svo koma áföll eins og ófrjósemi eða álag vegna lítilla barna; síðar áhyggjur af unglingum, tóm hreiður og að lokum nýir skór þegar barnabörnin bætast við. Mennskan í okkur er bara ótrúlega snjöll við að búa til flækjur.“

Íris segir það að samstilla tvo ólíka heila sem koma úr ólíku umhverfi líka heilmikla áskorun út af fyrir sig. Því miður búi margir við vanlíðan dags daglega án þess að átta sig alveg á hvaðan hún kemur.

Fólki er stundum hreinlega illt í sambandinu sínu, ef maður getur orðað það þannig. Og það kemur í tímabilum. 

Þetta er svolítið eins og sést í þáttunum Viltu finna milljón?

 Þegar þriðji aðili kemur að borðinu í einhverri umræðu segja pörin oft: „Vá, við höfum aldrei getað talað um þetta áður!““

Það hefur bara vantað vettvanginn til að samtalið gangi upp og þar liggur galdurinn: að greina gömul slæm mynstur og hjálpa fólki að finna nýjar leiðir til að ræða saman,“ segir Íris og bendir þar á skemmtilega samlíkingu.

Samkvæmt rannsóknum er eitt af hverjum fjórum pörum að glíma við verulegan vanda á hverjum tímapunkti. 

Þetta þýðir í raun að flestir munu á einhverjum tímapunkti lenda í blindgötu.

Spurningin er þá ekkert endilega eingöngu sú hvort sambandið lifi af ólgusjó, heldur hvaða verkfæri fólk hefur til að sigla í gegnum hann. Því í langtímasambandi munu koma upp erfiðleikar, því þannig er lífið.

„Við þurfum að hætta að líta á ágreining sem merki um dauðadæmt samband,“ útskýrir Íris og bendir á að ágreiningur sé eðlilegur í langtímasambandi og mikilvægt sé að hafa fókusinn frekar á því að auka færni okkar til að takast á við hann. 

Það mun seint verða þannig að tvær manneskjur verði alltaf sammála um allt. 

Það spilar margt inn í hvað triggerar okkur, hvernig var tekist á í upprunafjölskyldum okkar, álag og hvernig taugakerfi hvers og eins er. 

Mikilvægasta bjargráð hvers og eins er að kunna að róa sig niður þegar við finnum að eitthvað triggerar okkur.“

Gagnrýnisgusan

Íris segir að þar megi gjarnan greina ákveðin mynstur sem bandaríski sálfræðingurinn John Gottman hefur rannsakað ítarlega.

„Oftast hefur konan meiri tilhneigingu til að taka upp mál sem hvíla á henni og vill ræða þau fram og til baka. Karlmaðurinn getur hins vegar upplifað þessar aðstæður sem beina ógn eða skammir. Í stað þess að hlusta frýs hann kannski eins og dádýr á hraðbraut, fer í vörn eða lokar alveg á samskiptin.“

Íris segir gagnrýni oftast kalla á gagnrýni á móti. Þess vegna sé mikilvægt að hugsa málin aðeins í ró og næði, áður en fólk hellir sér kannski yfir makann og endar í samtali sem það ætlaði sér ekki í. Íris gefur gott ráð þessu tengt.Vísir/Anton Brink

Að sögn Írisar þurfa báðir aðilar að læra að skipta um gír og gefur okkur tvær góðar reglur til að styðjast við þegar einhver ágreiningur eða gremja er í gangi.

#1. Tökum stuttan fund með okkur sjálfum.

Ef mikil óánægja er til staðar hættir fólki til að „gusa“ öllu yfir makann í einu.

Gagnrýni kallar alltaf á gagnrýni eða vörn á móti. 

Áður en mál er tekið upp er nauðsynlegt að sortera hvað maður vill í raun segja og setja orð á eigin tilfinningar í stað þess að ráðast á hinn.“

Gott að taka fund með sjálfum sér áður en maður tekur fund með maka og spyrja sig:

  • Hvað gerðist sem truflaði mig?
  • Hvað fann ég — hvaða tilfinningar vöknuðu hjá mér?
  • Hvers þarfnast ég?



#2. Að róa taugakerfið.

Hinn aðilinn þarf að gera sér grein fyrir lífeðlisfræðilegu viðbrögðunum.

„Það er engin lífshætta í gangi. Það að snúa líkamanum að makanum, anda djúpt niður í maga og horfa í augun á honum er eitt það mikilvægasta sem hægt er að þjálfa. Að sýna skilning er ekki það sama og að samþykkja allt sem kemur fram, heldur einfaldlega að sýna að manni sé ekki sama.“

Æskuheimilið

Annar mikilvægur þáttur sem Íris nefnir er hvernig mynstur flytjast á milli kynslóða. Börn læra ekki aðeins af því sem sagt er, heldur skynja þau andrúmsloftið heima.

„Það sest í taugakerfið á okkur ef við ölumst upp við krefjandi samskipti eða þrúgandi þögn og rifrildi. Þegar fólk lendir svo í átökum í sínu eigin sambandi koma þessi gömlu viðbrögð ósjálfrátt upp. Maður heyrir fólk segja með skelfingu: „Ég er orðin alveg eins og mamma eða pabbi“.“

Íris segir mikilvægast í þessu að átta sig á eigin viðbrögðum og taka ábyrgð á þeim. Ekki að kenna fortíðinni eða makanum um allt sem úrskeiðis fer.

Íris segir okkur öll taka sitthvað af æskuheimilinu eða þeim aðstæðum sem við ólumst upp við. Miklu skipti þó að taka ábyrgð á sjálfum sér en kenna ekki öðrum um. Þá sé mikilvægt að taka smá stöðu á okkur áður en við göngum inn á seinni vaktina; mætum heim, þreytt eftir vinnu.Vísir/Anton Brink

Tómi tankurinn

Íris heldur áfram með góðu ráðin en eitt af því sem oft veldur spennu eða togstreitu í samböndum er að þegar fólk kemur heim eftir langan vinnudag er tankurinn oft tómur og fólk ekki endilega búið að stilla sig inn á þessa „seinni vakt“ sem þó hefst um leið og við komum heim.

Íris gefur okkur nokkur góð ráð til að styðjast við í daglegu lífi:

  • Vertu þinn eigin veðurfræðingur.

„Láttu vita hvernig veðrið er innra með þér þegar þú kemur heim. Ef þú ert úrvinda og með lágan þröskuld, segðu það strax: ‚Ég er alveg búin á því núna, ég þarf 15 mínútur til að jafna mig.“ Það kennir fjölskyldunni umburðarlyndi.“

  • Kveiktu á hvíldarkerfinu yfir daginn.

„Streitukerfið okkar er í stanslausri yfirvinnu en hvíldarkerfið þarf að iðka markvisst. Farðu afsíðis, lokaðu augunum, taktu djúpa andardrætti niður í maga eða hlustaðu á stutta hugleiðslu,“ segir Íris og bendir til dæmis á appið Sterk saman. Við þurfum að muna að hlaða batteríið okkar reglulega yfir daginn alveg eins og símana okkar.

  • 20 sekúndna þakklæti.

„Að stoppa í 20 sekúndur nokkrum sinnum á dag og minna sig á það sem er gott – gagnvart makanum, heilsunni eða litlu hlutunum – hjálpar heilanum að sjá heildarmyndina og minnkar líkurnar á að smámunir verði að stórátökum.“

Íris segir það jafn sjálfsagt og hvað annað að rækta parsambandið með því að sækja pararáðgjöf. Það sé oft fyrirbyggjandi leið sem unga fólkið sækir sér í meira mæli en það eldra, viðhorfið sé þó að breytast.Vísir/Anton Brink

Eðlilegt að leita aðstoðar

Íris bindur miklar vonir við að viðhorf samfélagsins til pararáðgjafar sé að breytast.

„Í vinnunni finnst okkur sjálfsagt að sækja ráðgjöf, halda fundi og fá sérfræðinga inn til að leysa vanda. Eins leitum við til fjármálaráðgjafa eða sálfræðings. Af hverju ætti parasambandið, sem er einn mikilvægasti grunnurinn í lífi okkar og barnanna okkar, að vera undanskilið?“ spyr Íris.

Orkan sem fer í að líða illa er líka svo svakalega þreytandi.

„Að vera í stöðugu þrasi og ganga með óleystan vanda veldur gríðarlegri vanlíðan og álagi sem hefur bein áhrif á andlega og líkamlega heilsu. Það er svo mikil orka sem fer í að draga svona þyngsli með sér inn í hvern einasta dag. 

Að leita sér hjálpar á ekki að vera neyðarúrræði rétt áður en gengið er að lögfræðingi, heldur sjálfsögð fyrirbyggjandi ræktun á sambandinu.“

Samkvæmt rannsóknum er eitt af hverjum fjórum pörum að glíma við verulegan vanda á hverjum tímapunkti. 

Þetta þýðir í raun að flestir munu á einhverjum tímapunkti lenda í blindgötu.

#eitt #getur #læk #sambandið #sprengt


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262946653d/eitt-laek-getur-sprengt-sam-bandid-hja-baedi-tvi-tugum-og-att-raedum

📰 Aðrar fréttir

Reyndi að brjóta sér leið inni í íbúð í Kópavogi vopnaður hnífi og hamri
📅 11.10.2026 👁️ 0
Reyndi að brjóta sér leið inni í íbúð í Kópavogi vopnaður hnífi og hamri
Óskað var eftir aðstöð lögreglu vegna manns í Kópavogi sem reyndi að brjóta sér leið inn í íbúð vopnaður hnífi og hamri. Þetta kemur fram í dagbók lög...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Enn skapar Þorgerður Katrín óróa
📅 11.10.2026 👁️ 2
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Enn skapar Þorgerður Katrín óróa
Mynd Koma utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio
Veðurstofan varar við stormi á Suðurlandi
📅 11.10.2026 👁️ 3
Veðurstofan varar við stormi á Suðurlandi
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna storms á Suðurlandi í kvöld og nótt.Vaxandi lægð nálgast landið með suðaustan hvassviðri eða sto...
Minnir  helst á fangabúðir nasista
📅 11.10.2026 👁️ 3
Minnir helst á fangabúðir nasista
Hundruð Íslendinga voru send til afplánunar í dönskum fangelsum á 18. og 19. öld. Dánartíðni íslenskra fanga var hærri en fanga af öðrum þjóðernum og ...
Rony the hero police dog honoured for finding missing people in the Canary Islands
📅 11.10.2026 👁️ 2
Rony the hero police dog honoured for finding missing people in the Canary Islands
Meet Rony, a Springer Spaniel serving with the National Police in the Canary Islands, who has received a special honour for his remarkable work helpin...
40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða
📅 11.10.2026 👁️ 3
40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða
Óhætt er að segja að allt hafi farið á annan endann í íslensku samfélagi árið 1986 þegar tilkynnt var með aðeins tólf daga fyrirvara að leiðtogar Band...
Suð­austan stormur og gul við­vörun - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Suð­austan stormur og gul við­vörun - Vísir
Í hugleiðingum sínum segir veðurfræðingur Veðurstofunnar að vaxandi lægð á Grænlandshafi sé á norðurleið og að skilin frá henni nálgist landið. Hægt v...
Braust inn með hníf í einni og hamar hinni - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Braust inn með hníf í einni og hamar hinni - Vísir
Samkvæmt dagbók lögreglu var maðurinn handtekinn og vistaður í fangaklefa. Í Háaleitis- og Bústaðahverfi var maður handtekinn fyrir líkamsárás og brot...
Stal heilum sjóðsvélum og braust inn í skip – ekki gerð refsing
📅 11.10.2026 👁️ 3
Stal heilum sjóðsvélum og braust inn í skip – ekki gerð refsing
Maður sem stal meðal annars heilum sjóðsvélum, golfpoka og bjórkútum og færði rúma eina og hálfa milljón króna inn á eigin reikning með stolnum greiðs...
Óttast stefnubreytingu hjá DR
📅 11.10.2026 👁️ 3
Óttast stefnubreytingu hjá DR
Óttast stefnubreytingu hjá DR Dansk­ir leik­ar­ar, leik­stjór­ar, hand­rits­höf­und­ar, mynda­töku­menn og fleiri sem unn­ið hafa að gerð leik­inna sj...
Jet2 cancels all flights to La Palma just months after launch
📅 11.10.2026 👁️ 3
Jet2 cancels all flights to La Palma just months after launch
Jet2 has confirmed it is withdrawing its flights and holiday packages to La Palma, just six months after launching its first direct service to the isl...
Handtekinn vegna líkamsárásar og brots á vopnalögum
📅 11.10.2026 👁️ 3
Handtekinn vegna líkamsárásar og brots á vopnalögum
Maður var handtekinn í hverfi 108 í Reykjavík í gær eða nótt vegna líkamsárásar og brots á vopnalögum. Í dagbók lögreglunnar segir að maðurinn hafi ve...
Rain eases across the Canary Islands this bank holiday Sunday
📅 11.10.2026 👁️ 3
Rain eases across the Canary Islands this bank holiday Sunday
The Canary Islands are expecting an improvement in weather conditions today, Sunday 11th October, although occasional rain showers remain possible acr...
Drónaárás á rússneskt gagnaver
📅 11.10.2026 👁️ 3
Drónaárás á rússneskt gagnaver
Þetta er þriðja árás Úkraínuhers á gagnaver rússneska fyrirtækisins Yandex á innan við viku. Fyrirtækið hefur verið kallað rússneska Google, en það re...
Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Liverpool v Manchester City: Toxicity and uncertainty await City at Liverpool - will their season even matter?
📅 11.10.2026 👁️ 3
Liverpool v Manchester City: Toxicity and uncertainty await City at Liverpool - will their season even matter?
Manchester City visit Liverpool on Sunday with a lot of uncertainty hanging over them. Phil McNulty looks at what lies ahead.
Mikil reiði vegna morðs á japanskri konu
📅 11.10.2026 👁️ 3
Mikil reiði vegna morðs á japanskri konu
Anna Yagi, japönsk kona á fertugsaldri, fannst látin á hótelherbergi í Okinawa í byrjun mánaðarins eftir að hafa verið kyrkt.The Times segir að lögreg...
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
„Það var ömurlegt. Það er svo mikið stress að starta svona túrum. Maður er bara á fullu og maður er ekki búinn að spila í langan tíma og það er allt a...
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
📅 11.10.2026 👁️ 4
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
Vísindafólk frá bandarískri stofnun um fornleifaarfleið, Archaeological Legacy Institute, og Purdue-háskóla kemur til Nikumaroro-eyju í Kyrrahafi á má...
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
Maður á fimmtugsaldri skaut sjö ættingja sína og fjölskylduvin á heimili í borginni Erie í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í gær, áður en hann tók sitt e...
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
📅 11.10.2026 👁️ 3
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
The White House had blocked access for CNN, MS Now and Politico, leading them to restrict pool coverage.
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
📅 11.10.2026 👁️ 3
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
The Environment Agency has warned approximately 6.3 million homes and businesses in England remain at risk of flooding.
UK launches flood taskforce to prepare for extreme winter weather
📅 11.10.2026 👁️ 3
UK launches flood taskforce to prepare for extreme winter weather
The Environment Agency has warned approximately 6.3 million homes and businesses in England remain at risk of flooding.
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
📅 11.10.2026 👁️ 3
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
Fellibylurinn Isaias sem skall að landi við Flórída og Alabama í gær hefur raskað olíuframleiðslu Bandaríkjanna við strendur Mexíkóflóa.Orkumálaráðher...
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND)
📅 11.10.2026 👁️ 3
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND)
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND) Fréttin11. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Úkraína ætti að skipta út V...
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
Samkvæmt umfjöllun Reuters særðust 309 manns og voru sumir þeirra fluttir á sjúkrahús í lífshættu. Árásin hafi verið gerð fyrirvaralaust og er þetta s...
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir
📅 10.10.2026 👁️ 3
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir Fréttin10. október 2026ErlentLeave a Comment King Khalid-alþjóðaflugvöllurinn...
I was told I had depression for 14 years until I got sectioned - it was bipolar
📅 10.10.2026 👁️ 3
I was told I had depression for 14 years until I got sectioned - it was bipolar
Kimberley Atkinson assumed her symptoms were depression until her behaviour started to change dramatically.
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
Þúsundir mótmælenda voru handteknir í Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, í dag þegar mótmælt var breytingum á kjörskrá landsins. Þetta kemur fram í tilkyn...
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
📅 10.10.2026 👁️ 4
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
Film-maker Sue Kim talks about having unprecedented access to K-Pop idol Lisa Manobal at her most candid.
AI is creating a 'human premium' for art created by people
📅 10.10.2026 👁️ 4
AI is creating a 'human premium' for art created by people
Amid a surge in AI content, many are placing extra value on art that's obviously made by a human. But can that last, asks Ros Atkins
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
📅 10.10.2026 👁️ 4
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
Lizzy, Charlotte and Libby studied at the same time, but their student debt now looks very different.
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
📅 10.10.2026 👁️ 4
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
MPs are seeking to stop immunity applying when police fabricate evidence or are dishonest or negligent.
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
📅 10.10.2026 👁️ 5
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
Að minnsta kosti fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias sem skall á strönd Flórída og Alabama í gærkvöld.Dregið hefur úr krafti Isaias en enn e...
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
Í fréttum af fornleifafundinum í síðustu viku kom fram að menn hafi lengi grunað að þarna væri kirkjurúst frá tímum norrænu byggðarinnar. Sönnunin vær...
Tóku samtalið um land allt
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tóku samtalið um land allt
„Samtalið“ svokallaða fór fram í dag, þar sem fólk hittist, ræddi framtíðina og hvernig samfélag það vill. Verkefnið heitir „Tölum saman“ og varð til ...
Frakkland í krísu og fjarhægrið sækir á
📅 10.10.2026 👁️ 3
Frakkland í krísu og fjarhægrið sækir á
Frakkland í krísu og fjarhægrið sækir á Að­eins 15 pró­sent hafa já­kvætt álit á Macron Frakk­lands­for­seta. Eldsneytis­verð í Frakklandi er í sögu­l...
Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið - Vísir
Hin fimmtuga Pike lifði af tvær banvænar sprautur sem hún fékk á miðvikudaginn í síðustu viku í Tennessee í Bandaríkjunum. Hún komst aftur til meðvitu...
Tveir látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Tveir látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
Að minnsta kosti tveir eru látnir eftir árás á King Khalid-alþjóðaflugvöllinn í Ríad í Sádi-Arabíu í dag. Frá þessu greinir AFP-fréttastofan og hefur ...
Tólf látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tólf látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
Að minnsta kosti tólf manns eru látnir og 309 særðir eftir árás á King Khalid-alþjóðaflugvöllinn í Ríad í Sádi-Arabíu í dag, að sögn flugmálayfirvalda...
Kalla eftir að­gerðum ekki yfir­lýsingum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Kalla eftir að­gerðum ekki yfir­lýsingum - Vísir
„Íslensk stjórnvöld voru nýlega meðal 12 ríkja sem sendu frá sér yfirlýsingu um fyrirhugaðar aðgerðir gegn viðskiptum með vörur frá ólöglegum landtöku...
Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum - Vísir
Nú fást lausasölulyf að jafnaði í apótekum. Lyfjastofnun getur þó leyft verslunum að selja ákveðin lyf ef meira en tuttugu kílómetrar eru í næsta apót...
Northern Lights: Aurora stun UK down to England's south coast
📅 10.10.2026 👁️ 4
Northern Lights: Aurora stun UK down to England's south coast
The natural phenomenon, known as the Aurora Borealis, is the result of increased solar activity.
Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri
Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi, segir líflína fólks á Gaza að fólk muni eftir þeim, fjármagni hjálp sem það þurfi og ýti á st...
Vill nýjan Úkraínuforseta - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Vill nýjan Úkraínuforseta - Vísir
Í gær greindi Trump frá samkomulagi sínu við Vladímír Pútín Rússlandsforseta um að Rússar hefji þegar í stað útflutning á hundruðum þúsunda tonna af d...
„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“ - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“ - Vísir
Kennarasamband Íslands boðaði til blaðamannafundar í vikunni þar sem sambandið kynnti stefnumótun og áherslur í menntamálum. Kallaði sambandið eftir s...
Mestu skiptir að engan sakaði
📅 10.10.2026 👁️ 4
Mestu skiptir að engan sakaði
Innan við tvær klukkustundir tók að slökkva eldinn í álverinu í dag og var kerskáli tekinn úr rekstri á meðan.„Það er ekki vitað að svo stöddu hvað ol...
Frá dísilsamningi við Pútín til ákalls Trumps um nýjan forseta Úkraínu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Frá dísilsamningi við Pútín til ákalls Trumps um nýjan forseta Úkraínu
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði við fréttamenn fyrir utan Hvíta húsið í dag að hann teldi kominn tíma til að Úkraína fengi nýjan forseta. Hann la...
K-kúrfu hagkerfið
📅 10.10.2026 👁️ 4
K-kúrfu hagkerfið
K-kúrfu hagkerfið Verð­bólga var ekki til­kom­in vegna launa og eyðslu neðri hluta K-leggs­ins í hag­kerf­inu, held­ur vegna að­gerða at­vinnu­lífs­in...
Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði - Vísir
Lögreglunni barst tilkynning um að maðurinn hefði farið inn á girt svæði klukkan hálf tvö að staðartíma í dag. Í kjölfarið hafi tígrisdýrið ráðist á m...