Óskað var eftir aðstöð lögreglu vegna manns í Kópavogi sem reyndi að brjóta sér leið inn í íbúð vopnaður hnífi og hamri. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu.Einnig greinir frá því að maður hafi verið handtekinn vegna eignaspjalla í hverfi 105 og vistaður í fangaklefa. Maður var handtekinn í hverfi 108 vegna líkamsárásar og brots á vopnalögum og var sömuleiðis vistaður í fangaklefa. Alls voru 84 mál skráð í kerfum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá kl. 17 í gær til kl. 5 í morgun. Sex gista fangageymslu.
Reyndi að brjóta sér leið inni í íbúð í Kópavogi vopnaður hnífi og hamri