Óhætt er að segja að allt hafi farið á annan endann í íslensku samfélagi árið 1986 þegar tilkynnt var með aðeins tólf daga fyrirvara að leiðtogar Bandaríkjanna og Sovétríkjanna ætluðu að hittast og halda fund í Reykjavík.
Umræðuefnið var heldur ekki hversdagslegt heldur ætluðu þeir Ronald Reagan og Mikhaíl Gorbatsjev að ræða umfangsmikla afvopnun stórveldanna sem átt höfðu í köldu stríði nánast frá lokum síðari heimsstyrjaldar.
Kjarnorkuógnin var mjög raunveruleg í huga þeirrar kynslóðar sem lifði þessi óvenjulegu ár þar sem Bandaríkin og Sovétríkin skiptu heiminum upp í áhrifa- og jafnvel stríðssvæði. Aldrei kom til beinna átaka milli þeirra þótt nokkrum sinnum mætti litlu muna.
Minnistæðust eru sennilega Kúbudeilan árið 1962 og atvik árið 1983 þegar hermálayfirvöldum í Sovétríkjunum barst fölsk tilkynning um að Bandaríkin hefðu skotið á loft kjarnorkuflaug.
Mjög skammur fyrirvari
Boðað var til leiðtogafundarins með afar skömmum fyrirvara og þá komu ákveðnir kostir Íslendinga berlega í ljós, að geta undirbúið og skipulagt viðburði í snarhasti. Ísland komst óvænt í kastljós heimsfréttanna og þótt fundurinn ætti upphaflega aðeins að vera upptaktur að stærri fundum í Washington og Moskvu var áhuginn mikill.
Fylgdarlið leiðtoganna taldi hundruð manna og þúsundir erlendra blaðamanna streymdu til landsins. Undir lok september var tilkynnt að Höfði við Borgartún, opinbert gestamóttökuhús Reykjavíkur, yrði fundarstaður Reagan og Gorbatsjev.
Húsið, sem upphaflega hýsti franska konsúlinn í Reykjavík og síðar skáldið Einar Benediktsson, hefur síðan orðið eins konar táknmynd leiðtogafundarins. Þar átti að vera reimt og sá draugagangur varð ein af þungamiðjum Áramótaskaupsins á gamlárskvöld 1986.
Til greina hafði komið að halda fundinn á Hótel Sögu eða Kjarvalsstöðum, þar sem Richard Nixon Bandaríkjaforseti og Georges Pompidou Frakklandsforseti héldu leiðtogafund 1973. Þá varð Ísland fyrir valinu sem hlutlaus og hentugur fundarstaður, friðsælt land miðja vegu milli Ameríku og Evrópu.
Hið sama var uppi á teningnum 1986, Reykjavík er mitt á milli Moskvu og Washington líkt og sungið var í einu þeirra laga sem kepptu um að verða framlag Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva vorið 1986.
Gorbatsjev átti frumkvæðið
Gríðarathygli vakti í janúar 1986 þegar Mikhaíl Gorbatsjev, nýr og tiltölulega ungur leiðtogi Sovétríkjanna, lagði opinberlega til að öllum kjarnorkuvopnum heimsins yrði útrýmt í þremur stigum fyrir árið 2000.
Þótt margir litu á orð leiðtogans sem hreinan áróður hafa fræðimenn síðan bent á að honum var fullkomin alvara. Gorbatsjev átti í góðum persónulegum samskiptum við Reagan og ákvað að beita þeim frekar en að treysta á samningamenn sem honum þótti flækja sig um of í tæknileg smáatriði.
Sovétmenn lögðu loks til að leiðtogarnir hittust og ræddu þessar tillögur auk uppástungu bandaríska varnarmálaráðuneytisins að eyða öllum langdrægum kjarnorkuflaugum. Gorbatsjev lagði upphaflega til að þeir Reagan hittust á Bretlandi eða Írlandi en svo fór ákveðið var 30. september, á 20 ára afmæli Ríkissjónvarpsins, að Ísland yrði fyrir valinu.
Íslensk stjórnvöld og aðrir sem að komu þykja hafa sýnt mikið snarræði að hýsa þennan mikilvæga viðburð með jafn stuttum fyrirvara. Ísland, Reykjavík og Höfði hafa síðan orðið eins konar táknmynd þess að kjarnorkuafvopnun sé möguleg þegar leiðtogar heimsins hafa hugrekki til þess að taka slíkar ákvarðanir.
Reykjavík gerbreyttist á augabragði
Skólastarf var fellt niður í Haga- og Melaskóla í vesturbæ Reykjavíkur sem var gerður að fjölmiðlamiðstöð og eins var Hótel Saga einn af miðpunktum fréttaflutnings þeirra ótal mörgu fjölmiðlamanna frá stærstu fréttastöðvum heims sem hingað komu.
Mikið afrek þykir hafa verið unnið af hálfu starfsmanna Pósts og Síma með því að tryggja fjarskipti við umheiminn dagana sem heimsókn leiðtoganna stóð. Ronald Reagan gisti þar og öryggisgæsla því mjög ströng.
Reagan heimsótti frú Vigdísi Finnbogadóttur forseta meðan á dvölinni stóð og til eru þekktar ljósmyndir af þeim á göngu. Gorbatsjev og Raisa eiginkona hans dvöldu um borð í farþegaskipinu Baltíku við Reykjavíkurhöfn. Þau heimsóttu Vigdísi einnig.
Öll hótel og gistiheimili í borginni og nágrannabyggðum fylltust af gestum á augabragði og einhverjir gistu í farþegaskipum eða heimahúsum. Brynvarðar glæsibifreiðar voru fluttar til landsins til að flytja leiðtogana á milli staða og svæðið kringum Höfða var girt af.
Einhverjir þurftu að yfirgefa heimili sín nærri fundarstaðnum, leyniþjónustumenn beggja ríkja voru áberandi meðal annars uppi á húsþökum og íslenskir lögreglumenn og björgunarsveitarfólk önnuðust öryggisgæslu.
Dæmdur til að mistakast
Þáverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna George Schultz segir engum í sjálfu sér hafa komið á óvart hvað leiðtogarnir sögðu um kjarnorkukapphlaupið, enda höfðu þeir margoft gert það, heldur hitt að þeir væru raunverulega að tala um skipulagða afvopnun.
Samkomulag þess efnis hefði breytt heimsmyndinni stórkostlega. En leiðtogafundurinn í Höfða var að hans mati dæmdur til að mistakast ekki síst vegna lélegs og fljótfærnislegs undirbúnings beggja ríkja og lítils skipulags við samræður þeirra Gorbatsjevs og Reagans.
Fundurinn er þó talinn mikilvægur vendipunktur í aðdraganda þess að kalda stríðinu lauk. Innanmein Sovétríkjanna sem að lokum leiddu til falls þeirra fimm árum síðar voru þó ekki lýðum kunn á þeim tíma og nýi leiðtoginn talaði fyrir umbótum innanlands og utan.
Leiðtogarnir lögðu fram ýmsar tillögur um raunverulega afvopnun á fundum sem stóðu nærri hálfan sólarhring samanlagt en ásteitingarsteinninn þá reyndist svokölluð stjörnustríðs, eða geimvarnaráætlun Reagan-stjórnarinnar.
Á meðan þeir töluðu saman störðu augu heimsins á útidyrahurðina á Höfða meðan niðurstaðna var beðið í ofvæni. Gorbatsjev vildi að hægt yrði á þróun áætlunarinnar sem Reagan neitaði staðfastlega.
Fundurinn dróst því nokkuð á langinn sunnudaginn 12. október sem kveikti bjartsýni þeirra sem fyrir utan biðu. Niðurstaðan varð þó sú að honum lauk án skriflegs og þá væntanlega sögulegs samkomulags og leiðtogarnir tveir kvöddust á tröppum Höfða, heldur þungir á brún.
Síðari fundir stórveldanna leiddu af sér samkomulag árið eftir sem bannaði meðaldrægar flaugar og START-samninginn árið 1991.
Þótt leiðtogafundurinn í Reykjavík hafi um stund fallið í skuggann af árangursríkari fundum hefur vegur hans og vegsemd aukist á síðari árum enda talinn upptakturinn að breyttri heimsmynd, lokum kalda stríðsins og síðar hruns heils valdakerfis í Austur-Evrópu.
Endalok sögunnar sagði sagnfræðingurinn Francis Fukuyama. Heimildarmyndaröð um fundinn er í sýningu á RÚV og nýverið var frumsýnd kvikmyndin The Brink of War í leikstjórn Michael Russell Gunn, sem byggir á því sem gerðist í Reykjavík þessa haustdaga fyrir 40 árum og var að stórum hluta tekin upp hér á landi. Jeff Daniels túlkar Ronald Reagan og Jared Harris Gorbatsjev.