Þetta er þriðja árás Úkraínuhers á gagnaver rússneska fyrirtækisins Yandex á innan við viku. Fyrirtækið hefur verið kallað rússneska Google, en það rekur vinsælustu vefleitarvél Rússlands, auk matar- og leigubílapöntunarsmáforrita sem notuð eru af tugum milljóna manna.
Fyrirtækið greindi frá árásunum á Telegram. Enginn særðist í árásinni en tjón varð á gagnaverinu og starfsemin hefur verið stöðvuð. Unnið er að viðgerðum.
Á föstudag gerði Úkraínuher drónaárás á gagnaver í Kaluga-héraði sem raskaði starfseminni og olli truflunum. Á fimmtudag kviknaði eldur í byggingu Yandex í Ryazan-héraði eftir drónaárás sem hafði mikil áhrif á flutninga og rafræn viðskipti.