Minnir helst á fangabúðir nasista

Minnir helst á fangabúðir nasista

Minnir  helst á fangabúðir nasista

Hundruð Íslendinga voru send til afplánunar í dönskum fangelsum á 18. og 19. öld. Dánartíðni íslenskra fanga var hærri en fanga af öðrum þjóðernum og rúmlega 60% Íslendinganna létust í prísundinni. Sá skammlífasti lifði í tæpan mánuð. Sigríður Hjördís Jörundsdóttir sagnfræðingur segir að fangarnir hafi komið til Kaupmannahafnar með haustskipum danskra kaupmanna eftir að hafa verið í harðindaástandi á Íslandi. „Þannig að maður getur ímyndað sér hversu líkamlega skertir þeir voru orðnir,“ segir Sigríður og bætir við að þeir hafi ekki verið vanir þeim pestum sem grasseruðu í fangelsum Kaupmannahafnar.

Þetta kemur fram í þáttaröðinni Betrun á Rás 1 þar sem fjallað er um fangelsismál Íslendinga í fortíð og nútíð.

Í hlekkjum allan sólarhringinn

Langsamlega stærstur hluti íslensku sakamannanna lenti í Stokkhúsinu eða tæp 74%. Sérstaða íslensku fanganna var sú að þeir voru flestir ærulausir og með lífstíðardóm á bakinu.

Stokkhúsið var ekki betrunarhús heldur þrælahús þar sem fangarnir voru hlekkjaðir í járn. Smíðuð voru fótajárn á ærulausu fangana við komuna í fangelsið og þau voru aldrei tekin af þeim fyrr en þeir annað hvort gáfu upp öndina eða voru látnir lausir, segir Sigríður Hjördís.

Í rannsókn hennar á afdrifum íslenskra fanga í þrælakistum Kaupmannahafnar á 18. og 19. öld er að finna lýsingu á Stokkhúsinu.

„Þegar komið var inn fyrir hlið Stokkhússins kom maður í garð. Þar voru fjórir tréstaurar, hver með tveimur þverörmum efst. Þessir staurar voru notaðir til þess að hýða nýkomna fanga. Einnig voru morðingjar hýddir við þessa staura ár hvert meðan á refsivist þeirra stóð á þeim degi sem morðið var framið. Umhverfis garðinn stóðu byggingar Stokkhússins. Í einu húsanna var hinn alræmdi sakamálaréttur. Þar voru sakamenn yfirheyrðir og oft og tíðum píndir til sagna. Undir þeirri byggingu voru fangaholur, ætlaðar fyrir fanga sem verið var að yfirheyra. Sú bygging sem sakamennirnir voru hafðir í var byggð á 4. áratug 18. aldar og var hún tvær hæðir. Á efri hæðinni var geymsluherbergi og kirkja. Á neðri hæðinni var vistarvera þrælanna, þrælakistan. Þrælakistan var aðskilin í tvennt, vistarverur ærlegra þræla og æruleysingja. Meðfram veggjum voru kojur sem þeir sváfu í. Í þessum kojum voru engar dýnur fyrr en um aldamótin 1800 voru settar í þær hálmdýnur og koddar.“

Í Stokkhúsinu var því þannig háttað að þegar nýr þræll kom inn var skráð í fangaskrána hvort hann hefði æru eður ei. Þeir ærulausu voru ekki látnir í sama herbergi og aðrir fangar. Hvað vinnu áhrærði voru þeir látnir vinna skítverkin, svo sem hirða um kamra, segir Sigríður sem er meðal viðmælenda í öðrum þætti Betrunar á Rás 1.

Hún segir að hér á landi hafi verið dæmt eftir svonefndum norsku lögum Kristjáns V. Nánar verður fjallað um refsilöggjöfina á 18. öld í fjórða þætti Betrunar sem er á dagskrá Rásar 1 þriðjudaginn 20. október.

Sigríður segir að árið 1751 hafi verið sett viðbótarákvæði í norsku lögin hér á landi um að einstaklingar sem eru brennimerktir fyrir þjófnað séu dæmdir í lífstíðarfangelsi. Hún segist telja að hugsunin hafi verið sú að það væri mannúðlegri lausn en að setja þá út á guð og gaddinn vegna þess að þeir væru með sýnilegt mark á líkamanum um hvað þeir gerðu af sér. Því gætu þeir aldrei orðið hluti af mannlegu samfélagi og þá væri bara best að koma þeim í fangelsi og láta þá vera þar alla sína lífstíð.

Leigðir út til betri borgara

Fyrir fyrstu brot voru sakamenn brenndir á hrygginn og fyrir endurtekin brot voru þeir brennimerktir á andlitið. Við þetta urðu sakamenn ærulausir og settir skör lægra í þrælakistum Kaupmannahafnar; þeir voru til dæmis ekki leigðir út líkt og þeir sem héldu ærunni.

Sigríður segir að Kaupmannahafnarbúar hafi á þessum tíma getð óskað eftir ódýru vinnuafli hjá fangelsismálayfirvöldum. Fyrirkomulagið var þannig að sá sem leigði þrælinn kom að morgni, borgaði einhverja skildinga fyrir og tók hann svo með heim til sín. Þar var viðkomandi settur í garðvinnu og önnur tilfallandi verk af þeim toga og síðan skilað í fangelsið að nýju að vinnudegi loknum.

Aðbúnaðurinn svipaður og í Auschwitz

Sigríður segir að aðbúnaðurinn hafi verið skelfilegur í þessum fangelsum og lýsingarnar minni helst á fangabúðir nasista. „Ég hef einu sinni komið í fangabúðir Þjóðverja frá því í seinni heimsstyrjöld og lýsingin á aðbúnaðnum í Stokkhúsinu er svolítið sambærileg við upplifunina að koma inn í svefnskálana í Auschwitz eða eitthvað slíkt.“

Ef fangar brutu af sér var þeim refsað og fuglabúrið var sennilega það hræðilegasta í Stokkhúsinu.

„Þetta var trébúr sem einstaklingurinn var settur nakinn inn í og það voru gaddar sem sneru að honum úr öllum áttum. Þannig að hann gat ekki hvílt sig á nokkurn hátt í þessu fuglabúri.“

Árið 1781 kom Englendingur að nafni John Howard í Stokkhúsið og Tugt-, Rasp- og Betrunarhúsið. Howard fór víða og kannaði ástand evrópskra fangelsa og sjúkrahúsa.

Howard lýsir aðbúnaðinum í Stokkhúsinu í bók sinni The State of the Prisons in England and Wales with Preliminary Observations and Account of some Foreign Prisons and Hospitals.

„Einn sá ég sem var hlekkjaður við hjólbörur. Mér var sagt að það væri refsing þeirra sem reynt hefðu að strjúka. Eymdin og vonleysið sem skein út úr fölum og tærðum andlitum þessara þræla bar ekki vott um mannúðlega meðferð. Ég kom fyrst í fangelsið á laugardegi. Næsta dag var ég við messu í fangakirkjunni og maðurinn með hjólbörurnar var einn hinna fáu sem komu til kirkju. Þrælarnir sátu saman á bekkjunum en varðmenn voru hingað og þangað um guðshúsið og við dyrnar stóðu tveir hermenn með brugðna byssustingi. Þegar ég gekk í gegnum þrælahúsið að lokinni messu lágu flestir á fletum sínum en þilin yfir þeim voru útkrotuð alls konar áletrunum. Viðbjóðslegt ástand þessa fangelsis olli mér alltaf höfuðverk.“

Enginn Íslendingur lifði af dvölina í Rasphúsinu

Aðbúnaðurinn var slæmur í Stokkhúsinu en hann var jafnvel enn verri í Rasphúsinu í Kristjánshöfn og þangað voru morðingjar meðal annars sendir að sögn Sigríðar. Þar var raspað niður litunartré til að lita fatnað. Fangarnir voru látnir ganga í hring til að raspa litunartré í öreindir og þeir voru annaðhvort rauðir eða bláir á lit, allt eftir því hvaða lit þeir voru að raspa niður. Þarna mátti ekki vera birta þar sem þetta var svo eldfimt þannig að þetta var bara það hræðilegasta sem hægt var að lenda í. Sigríður telur að enginn Íslendingur hafi lifað af vistina þar. „Ef þú fórst inn í Rasphúsið voru ekki miklar líkur á að þú kæmir lifandi þaðan, því miður.“

Sultur, fátækt og örþrifaráð

Eiríkur Hermannsson sagnfræðingur rannsakaði afdrif fimm bændafjölskyldna sem gerðust sekar um sauðaþjófnað og rakti afleiðingar afbrotanna fyrir fjölskyldurnar og nærsamfélag þeirra, fólk sem aldrei áður hafði gerst brotlegt við lög né haft orð á sér fyrir óráðvendni.

Með rannsókninni vildi hann draga upp mynd af aðstæðum almúgafólks og tíðaranda á árunum 1790 til 1810. Hann segir að í kjölfar móðuharðindanna hafi staða margra verið afar erfið og freistandi fyrir svangt fólk að grípa sauðfé ef það komst í það.

Einn kaflinn í MA-ritgerð Eiríks heitir Sultur, fátækt og örþrifaráð fólksins á Brekku. Að Brekku í Aðaldal bjuggu hjónin Benjamín Egilsson og Þórunn Jónsdóttir. Hann var 27 ára og hún 33 ára. Þau áttu tvö börn á öðru og þriðja ári. Þórunn var barnshafandi og komin langt á leið með þriðja barn þeirra. Á heimilinu var einnig Gunnvör, móðir Benjamíns, en faðir hans var í vinnumennsku á öðrum bæ. Þorgerður, 12 ára systir Benjamíns, bjó einnig á bænum en Einar bróðir þeirra, 15 ára, var í vist að Hólum í Laxárdal.

Rúmföst vegna hungurs

Eiríkur segir að fátækt fjölskyldunnar hafi verið yfirgengileg og hún meira og minna rúmföst vegna hungurs. Eitt sinn er Einar kom í heimsókn á Brekku var Benjamín ekki heima þar sem hann hafði farið til Húsavíkur til að biðja um aðstoð vegna neyðarinnar á heimilinu.

„Einar kemur sem sagt að tómum kofanum. Það er móðir hans og mágkona og bara allir eru rúmliggjandi. Þannig að hann fer á næsta bæ og stelur lambi úr fjárhúsi, sker það strax og matbýr handa fólkinu. Síðan fer hann aftur í vistina daginn eftir eða daginn þar á eftir. Benjamín kemur heim og veit ekkert af þessum þjófnaði,“ segir Eiríkur og bætir við að Benjamín hafi skömmu síðar fundið kind í hópnum sínum sem hann þekkti ekki og þar sem allt er matarlaust í kotinu sker hann kindina. „Þetta eru tveir glæpir og ótengdir í rauninni en samt náttúrlega kemst þetta upp nokkrum dögum seinna og þeir eru dæmdir báðir en Einar, sá yngri, fær mun harðari dóm þar sem hann hafði brotist inn,“ segir Eiríkur í öðrum þætti Betrunar.

Vatn og brauð ekki slæmur kostur

Sýslumaður dæmir Einar til þess að strýkjast við kagann og erfiða í Kaupmannahöfn og við réttarhöldin er hann spurður hvort hann viti hvað það þýði, hver viðurlögin eru við slíkum þjófnaði. Þá svarar Einar, já það er Brimarhólmsvist þar sem maður stritar upp á vatn og brauð. „Og það er greinilegt að honum finnst það ekkert slæmur kostur. Hann fær þá að minnsta kosti vatn og brauð. Það segir ákveðna sögu,“ segir Eiríkur.

Benjamín er dæmdur í tveggja ára fangelsi á Íslandi og Þórunn kona hans í árs fangelsi og afplánuðu þau bæði dóma sína.

Aftur á móti var dómurinn yfir Einari mildaður þar sem talið var að það mætti ekki dæma óharðnaða unglinga í lífstíðarþrælkun. Hann var dæmdur til hýðingar og vegna þess að dómendur kenndu því um að hann hefði farið á þessa glapstigu vegna lélegs uppeldis þá var Egill faðir hans, sem hvergi kom að málinu, látinn hýða Einar opinberlega.

Eiríkur segir í þættinum frá afdrifum tveggja Íslendinga, karls og ungrar konu, sem voru dæmdir til dauða fyrir margvísleg brot, svo sem morðtilraunir og þjófnað, en tókst að sleppa undan fallöxinni. Lýsingar Eiríks á ungu konunni, Þrúði, eru átakanlegar en hún var lausaleiksbarn, alin upp í Borgarfirði. Á unglingsaldri er hún send á heimili móður sinnar og stjúpa þar sem var mikil óregla og þar hefst sorgarsaga þessarar ungu konu sem endar í Kaupmannahöfn og hverfur.

Vel skæddur heiðarbóndi

Í öðrum þætti Betrunar segir Eiríkur einnig sögu vel skædds heiðarbónda sem var sendur í lífstíðarþrælavist til Kaupmannahafnar eftir dóm ólærðs sýslumanns, Guðmundar Einarssonar.

Síðar sá Guðmundur að sér og þegar hann er staddur í Kaupmannahöfn nokkrum árum síðar ritar hann bænaskjal til yfirvaldsins og biðst vægðar fyrir fangann, að honum verði veitt æran að nýju svo hægt væri að náða hann. Guðmundur sýslumaður hét því að koma þeim dæmda heim og svo fór að sakamaðurinn komst aftur heim en sýslumaðurinn ekki.

Meira um það í öðrum þætti Betrunar en hægt er að hlusta á þáttinn í heild hér fyrir neðan.

#fangabúðir #helst #minnir #nasista


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-10-11-minnir-helst-a-fangabudir-nasista-489281

📰 Aðrar fréttir

Reyndi að brjóta sér leið inni í íbúð í Kópavogi vopnaður hnífi og hamri
📅 11.10.2026 👁️ 0
Reyndi að brjóta sér leið inni í íbúð í Kópavogi vopnaður hnífi og hamri
Óskað var eftir aðstöð lögreglu vegna manns í Kópavogi sem reyndi að brjóta sér leið inn í íbúð vopnaður hnífi og hamri. Þetta kemur fram í dagbók lög...
Eitt „læk“ getur sprengt sam­bandið – hjá bæði tví­tugum og átt­ræðum - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Eitt „læk“ getur sprengt sam­bandið – hjá bæði tví­tugum og átt­ræðum - Vísir
Samt eiga flest pör eitt sameiginlegt:  Þau langar svo að vera hamingjusöm! „Yngsta parið sem hefur leitað til mín var 17 ára gamalt,“ segir Íris Eik ...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Enn skapar Þorgerður Katrín óróa
📅 11.10.2026 👁️ 1
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Enn skapar Þorgerður Katrín óróa
Mynd Koma utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio
Veðurstofan varar við stormi á Suðurlandi
📅 11.10.2026 👁️ 2
Veðurstofan varar við stormi á Suðurlandi
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna storms á Suðurlandi í kvöld og nótt.Vaxandi lægð nálgast landið með suðaustan hvassviðri eða sto...
Rony the hero police dog honoured for finding missing people in the Canary Islands
📅 11.10.2026 👁️ 1
Rony the hero police dog honoured for finding missing people in the Canary Islands
Meet Rony, a Springer Spaniel serving with the National Police in the Canary Islands, who has received a special honour for his remarkable work helpin...
40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða
📅 11.10.2026 👁️ 2
40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða
Óhætt er að segja að allt hafi farið á annan endann í íslensku samfélagi árið 1986 þegar tilkynnt var með aðeins tólf daga fyrirvara að leiðtogar Band...
Suð­austan stormur og gul við­vörun - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Suð­austan stormur og gul við­vörun - Vísir
Í hugleiðingum sínum segir veðurfræðingur Veðurstofunnar að vaxandi lægð á Grænlandshafi sé á norðurleið og að skilin frá henni nálgist landið. Hægt v...
Braust inn með hníf í einni og hamar hinni - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Braust inn með hníf í einni og hamar hinni - Vísir
Samkvæmt dagbók lögreglu var maðurinn handtekinn og vistaður í fangaklefa. Í Háaleitis- og Bústaðahverfi var maður handtekinn fyrir líkamsárás og brot...
Stal heilum sjóðsvélum og braust inn í skip – ekki gerð refsing
📅 11.10.2026 👁️ 3
Stal heilum sjóðsvélum og braust inn í skip – ekki gerð refsing
Maður sem stal meðal annars heilum sjóðsvélum, golfpoka og bjórkútum og færði rúma eina og hálfa milljón króna inn á eigin reikning með stolnum greiðs...
Óttast stefnubreytingu hjá DR
📅 11.10.2026 👁️ 3
Óttast stefnubreytingu hjá DR
Óttast stefnubreytingu hjá DR Dansk­ir leik­ar­ar, leik­stjór­ar, hand­rits­höf­und­ar, mynda­töku­menn og fleiri sem unn­ið hafa að gerð leik­inna sj...
Jet2 cancels all flights to La Palma just months after launch
📅 11.10.2026 👁️ 3
Jet2 cancels all flights to La Palma just months after launch
Jet2 has confirmed it is withdrawing its flights and holiday packages to La Palma, just six months after launching its first direct service to the isl...
Handtekinn vegna líkamsárásar og brots á vopnalögum
📅 11.10.2026 👁️ 3
Handtekinn vegna líkamsárásar og brots á vopnalögum
Maður var handtekinn í hverfi 108 í Reykjavík í gær eða nótt vegna líkamsárásar og brots á vopnalögum. Í dagbók lögreglunnar segir að maðurinn hafi ve...
Rain eases across the Canary Islands this bank holiday Sunday
📅 11.10.2026 👁️ 3
Rain eases across the Canary Islands this bank holiday Sunday
The Canary Islands are expecting an improvement in weather conditions today, Sunday 11th October, although occasional rain showers remain possible acr...
Drónaárás á rússneskt gagnaver
📅 11.10.2026 👁️ 3
Drónaárás á rússneskt gagnaver
Þetta er þriðja árás Úkraínuhers á gagnaver rússneska fyrirtækisins Yandex á innan við viku. Fyrirtækið hefur verið kallað rússneska Google, en það re...
Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Liverpool v Manchester City: Toxicity and uncertainty await City at Liverpool - will their season even matter?
📅 11.10.2026 👁️ 3
Liverpool v Manchester City: Toxicity and uncertainty await City at Liverpool - will their season even matter?
Manchester City visit Liverpool on Sunday with a lot of uncertainty hanging over them. Phil McNulty looks at what lies ahead.
Mikil reiði vegna morðs á japanskri konu
📅 11.10.2026 👁️ 3
Mikil reiði vegna morðs á japanskri konu
Anna Yagi, japönsk kona á fertugsaldri, fannst látin á hótelherbergi í Okinawa í byrjun mánaðarins eftir að hafa verið kyrkt.The Times segir að lögreg...
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
„Það var ömurlegt. Það er svo mikið stress að starta svona túrum. Maður er bara á fullu og maður er ekki búinn að spila í langan tíma og það er allt a...
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
📅 11.10.2026 👁️ 4
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
Vísindafólk frá bandarískri stofnun um fornleifaarfleið, Archaeological Legacy Institute, og Purdue-háskóla kemur til Nikumaroro-eyju í Kyrrahafi á má...
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
Maður á fimmtugsaldri skaut sjö ættingja sína og fjölskylduvin á heimili í borginni Erie í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í gær, áður en hann tók sitt e...
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
📅 11.10.2026 👁️ 3
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
The White House had blocked access for CNN, MS Now and Politico, leading them to restrict pool coverage.
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
📅 11.10.2026 👁️ 3
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
The Environment Agency has warned approximately 6.3 million homes and businesses in England remain at risk of flooding.
UK launches flood taskforce to prepare for extreme winter weather
📅 11.10.2026 👁️ 3
UK launches flood taskforce to prepare for extreme winter weather
The Environment Agency has warned approximately 6.3 million homes and businesses in England remain at risk of flooding.
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
📅 11.10.2026 👁️ 3
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
Fellibylurinn Isaias sem skall að landi við Flórída og Alabama í gær hefur raskað olíuframleiðslu Bandaríkjanna við strendur Mexíkóflóa.Orkumálaráðher...
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND)
📅 11.10.2026 👁️ 3
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND)
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND) Fréttin11. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Úkraína ætti að skipta út V...
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
Samkvæmt umfjöllun Reuters særðust 309 manns og voru sumir þeirra fluttir á sjúkrahús í lífshættu. Árásin hafi verið gerð fyrirvaralaust og er þetta s...
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir
📅 10.10.2026 👁️ 3
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir Fréttin10. október 2026ErlentLeave a Comment King Khalid-alþjóðaflugvöllurinn...
I was told I had depression for 14 years until I got sectioned - it was bipolar
📅 10.10.2026 👁️ 2
I was told I had depression for 14 years until I got sectioned - it was bipolar
Kimberley Atkinson assumed her symptoms were depression until her behaviour started to change dramatically.
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
Þúsundir mótmælenda voru handteknir í Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, í dag þegar mótmælt var breytingum á kjörskrá landsins. Þetta kemur fram í tilkyn...
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
📅 10.10.2026 👁️ 4
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
Film-maker Sue Kim talks about having unprecedented access to K-Pop idol Lisa Manobal at her most candid.
AI is creating a 'human premium' for art created by people
📅 10.10.2026 👁️ 4
AI is creating a 'human premium' for art created by people
Amid a surge in AI content, many are placing extra value on art that's obviously made by a human. But can that last, asks Ros Atkins
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
📅 10.10.2026 👁️ 4
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
Lizzy, Charlotte and Libby studied at the same time, but their student debt now looks very different.
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
📅 10.10.2026 👁️ 4
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
MPs are seeking to stop immunity applying when police fabricate evidence or are dishonest or negligent.
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
📅 10.10.2026 👁️ 5
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
Að minnsta kosti fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias sem skall á strönd Flórída og Alabama í gærkvöld.Dregið hefur úr krafti Isaias en enn e...
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
Í fréttum af fornleifafundinum í síðustu viku kom fram að menn hafi lengi grunað að þarna væri kirkjurúst frá tímum norrænu byggðarinnar. Sönnunin vær...
Tóku samtalið um land allt
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tóku samtalið um land allt
„Samtalið“ svokallaða fór fram í dag, þar sem fólk hittist, ræddi framtíðina og hvernig samfélag það vill. Verkefnið heitir „Tölum saman“ og varð til ...
Frakkland í krísu og fjarhægrið sækir á
📅 10.10.2026 👁️ 3
Frakkland í krísu og fjarhægrið sækir á
Frakkland í krísu og fjarhægrið sækir á Að­eins 15 pró­sent hafa já­kvætt álit á Macron Frakk­lands­for­seta. Eldsneytis­verð í Frakklandi er í sögu­l...
Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið - Vísir
Hin fimmtuga Pike lifði af tvær banvænar sprautur sem hún fékk á miðvikudaginn í síðustu viku í Tennessee í Bandaríkjunum. Hún komst aftur til meðvitu...
Tveir látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Tveir látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
Að minnsta kosti tveir eru látnir eftir árás á King Khalid-alþjóðaflugvöllinn í Ríad í Sádi-Arabíu í dag. Frá þessu greinir AFP-fréttastofan og hefur ...
Tólf látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tólf látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
Að minnsta kosti tólf manns eru látnir og 309 særðir eftir árás á King Khalid-alþjóðaflugvöllinn í Ríad í Sádi-Arabíu í dag, að sögn flugmálayfirvalda...
Kalla eftir að­gerðum ekki yfir­lýsingum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Kalla eftir að­gerðum ekki yfir­lýsingum - Vísir
„Íslensk stjórnvöld voru nýlega meðal 12 ríkja sem sendu frá sér yfirlýsingu um fyrirhugaðar aðgerðir gegn viðskiptum með vörur frá ólöglegum landtöku...
Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum - Vísir
Nú fást lausasölulyf að jafnaði í apótekum. Lyfjastofnun getur þó leyft verslunum að selja ákveðin lyf ef meira en tuttugu kílómetrar eru í næsta apót...
Northern Lights: Aurora stun UK down to England's south coast
📅 10.10.2026 👁️ 4
Northern Lights: Aurora stun UK down to England's south coast
The natural phenomenon, known as the Aurora Borealis, is the result of increased solar activity.
Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri
Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi, segir líflína fólks á Gaza að fólk muni eftir þeim, fjármagni hjálp sem það þurfi og ýti á st...
Vill nýjan Úkraínuforseta - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Vill nýjan Úkraínuforseta - Vísir
Í gær greindi Trump frá samkomulagi sínu við Vladímír Pútín Rússlandsforseta um að Rússar hefji þegar í stað útflutning á hundruðum þúsunda tonna af d...
„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“ - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“ - Vísir
Kennarasamband Íslands boðaði til blaðamannafundar í vikunni þar sem sambandið kynnti stefnumótun og áherslur í menntamálum. Kallaði sambandið eftir s...
Mestu skiptir að engan sakaði
📅 10.10.2026 👁️ 4
Mestu skiptir að engan sakaði
Innan við tvær klukkustundir tók að slökkva eldinn í álverinu í dag og var kerskáli tekinn úr rekstri á meðan.„Það er ekki vitað að svo stöddu hvað ol...
Frá dísilsamningi við Pútín til ákalls Trumps um nýjan forseta Úkraínu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Frá dísilsamningi við Pútín til ákalls Trumps um nýjan forseta Úkraínu
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði við fréttamenn fyrir utan Hvíta húsið í dag að hann teldi kominn tíma til að Úkraína fengi nýjan forseta. Hann la...
K-kúrfu hagkerfið
📅 10.10.2026 👁️ 4
K-kúrfu hagkerfið
K-kúrfu hagkerfið Verð­bólga var ekki til­kom­in vegna launa og eyðslu neðri hluta K-leggs­ins í hag­kerf­inu, held­ur vegna að­gerða at­vinnu­lífs­in...
Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði - Vísir
Lögreglunni barst tilkynning um að maðurinn hefði farið inn á girt svæði klukkan hálf tvö að staðartíma í dag. Í kjölfarið hafi tígrisdýrið ráðist á m...