Samkvæmt dagbók lögreglu var maðurinn handtekinn og vistaður í fangaklefa.
Í Háaleitis- og Bústaðahverfi var maður handtekinn fyrir líkamsárás og brots á vopnalögum og í miðborginni var maður handtekinn vegna líkamsárásar.
Í Árbænum var aðstoðar lögreglu óskað á matsölustað vegna manns sem var að sögn lögreglu víðáttuölvaður og til vandræða. Hann var fjarlægður af staðnum.