Maður var handtekinn í hverfi 108 í Reykjavík í gær eða nótt vegna líkamsárásar og brots á vopnalögum. Í dagbók lögreglunnar segir að maðurinn hafi verið vistaður í fangaklefa.
Annar maður var handtekinn í miðborginni vegna líkamsárásar og sá var einnig vistaður í fangaklefa. Í hverfi 105 var maður handtekinn vegna eignaspjalla og var hann sömuleiðis vistaður í fangaklefa.
Í Kópavogi var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna manns sem var vopnaður hnífi og hamri og var að reyna að brjóta sér leið inn í íbúð. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa.