Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna storms á Suðurlandi í kvöld og nótt.
Vaxandi lægð nálgast landið með suðaustan hvassviðri eða stormi sunnan- og suðvestan til og rigningu. Á Suðurlandi tekur veðurviðvörun gildi klukkan 22 og gildir til 4 í fyrramálið. Þar er búist við suðaustan 18 til 23 m/s en staðbundnum vindhviðum yfir 35 m/s. Ferðaveður getur orðið varasamt.
Í pistli veðurfræðings á Veðurstofu Íslands segir að skilin gangi yfir í nótt:
Á Grænlandshafi er vaxandi lægð á norðurleið og skilin frá henni nálgast landið. Það verður því hægt vaxandi suðaustanátt með dálítilli vætu en á Norður- og Austurlandi verður hægari vindur og bjartviðri. Búast má við suðaustan hvassviðri eða stormi sunnan- og suðvestanlands með rigningu í kvöld og gul viðvörun vegna storms á Suðurlandi tekur gildi klukkan 22 í kvöld. Hiti 5 til 12 stig.
Skil ganga norður yfir landið í nótt og í fyrramálið verður komin sunnan stinningsgola eða kaldi og skúrir en austan allhvass vindur og rigning norðaustan- og austantil fram undir hádegi.