Að minnsta kosti ellefu voru fluttir á sjúkrahús eftir að hafa orðið fyrir braki og glerbrotum, að því er Guardian greinir frá. Sjötugur maður var meðal þeirra sem verst varð út úr því. Hann var lagður inn á sjúkrahús í bænum Mazara del Vallo með mörg beinbrot og var ástand hans talið lífshættulegt.
Myndskeið sem birtust á föstudagsmorgun sýndu tvo skýstróka nálgast bæinn af hafi. Miklar skemmdir urðu þegar þeir gengu á land.
Sex börn slösuðust í skóla
Sex börn hlutu minniháttar skurði og skrámur þegar strokkur skall á skóla í bænum. Byggingin var rýmd í snatri.
Á drónamyndum sem teknar voru eftir á mátti sjá umfangsmiklar skemmdir á skólanum. Rúður höfðu brotnað og borð og stólar oltið um koll. Ljósmyndir frá bænum sýndu jafnframt bíla á hvolfi og skemmdir á öðrum byggingum.
Óvenjuhlýr sjór magni byli
Óveðurskerfið myndaðist við aðstæður þar sem mikill hiti var yfir Norður-Afríku og sjór í Miðjarðarhafi óvenjuhlýr miðað við árstíð.
Vísindamenn hafa varað við því að hækkandi sjávarhiti vegna loftslagsbreytinga geti aukið tíðni öflugar storma á svæðinu. Á Miðjarðarhafi myndast stöku sinnum lægðir með einkenni hitabeltisfellibylja. Þeim geta fylgt vindhraði yfir 27 metrum á sekúndu og allt að fimm metra háar öldur.
Sérfræðingar hafa meðal annars tengt metsjávarhita við óveðrið sem grandaði lúxussnekkjunni Bayesian undan ströndum Sikileyjar í ágúst 2024. Sjö fórust í því slysi, þar á meðal breski tæknifjárfestirinn Mike Lynch og dóttir hans á unglingsaldri.