Í dag eru nákvæmlega 40 ár liðin frá því að leiðtogar stórveldanna, Reagan og Gorbatsjoff, hittust hér í Reykjavík til að freista þess að ljúka kjarnorkuvopnakapphlaupinu - og kalda stríðinu. Enginn samningur var undirritaður – en markaði fundurinn samt upphafið að því sem á eftir kom?
Rósa Magnúsdóttir, prófessor í stjórnmálasögu, skrifaði nýja bók um þennan sögufræga fund, sem kom út núna í vikunni. Hún kemur til Páls hér á eftir.
Það eru engar ýkjur að segja að það logi allt stafnana á milli í deilum í verkalýðshreyfingunni eftir atburðarásina og samningana núna um daginn. Þau koma til mín – hvort í sínu lagi – Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR.
Formenn þingflokka Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins, Guðmundur Ari Sigurjónsson (sem reyndar var líka kjörinn varaformaður Samfylkingarinnar í gær) og Ólafur Adolfsson, verða hérna á eftir og takast á um pólitíkina - og það sem er framundan í þeim efnum.
Fyrst af öllum kemur þó Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri í Borgarbyggð, sem í fyrradag kærði Menntamálaráðuneytið og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu fyrir að neita að veita henni upplýsingar úr PISA könnunum - sem að gagni mættu koma til að bæta skólastarfið í sveitarfélaginu.