Erfðaprinsinn Alois og átökin um réttindi kvenna í Lichtenstein

Erfðaprinsinn Alois og átökin um réttindi kvenna í Lichtenstein

Erfðaprinsinn Alois og átökin um réttindi kvenna í Lichtenstein

Í Lichtenstein er við lýði það sem kallað er stjórnarskrárbundið furstadæmi. Furstinn - eða prinsinn eins og kannski væri réttara að kalla hann, heitir Hans Adam, en sonur hans, erfðaprinsinn Alois Philipp Maria Liechtenstein, tók hins vegar við hlutverkinu - og völdunum sem því fylgja, árið 2004.

Sem erfðaprins og verðandi fursti, þá hefur Alois talsvert mikil völd og ekki síður áhrif: titilinn og embættið eru þannig mun meira en einhverjar skrauthúfur og arfleið frá þeim tíma þegar konungar, drottningar og prinsar réðu lögum og lofum í Evrópu fyrr á öldum.

Alois getur þannig vísað ríkisstjórn landsins frá, skipað dómara, hafnað því að staðfesta lög sem þingið í Lichtenstein samþykkir - og það sem meira er: hann getur hafnað því að viðurkenna ákvörðun sem borin er undir þjóðaratkvæðagreiðslu í Lichtenstein.

Þjóðaratkvæðagreiðslur eru nefnilega mjög tíðar í Lichtenstein; það er frekar auðvelt að stofna til þeirra og á undanförnum áratugum hafa tugir slíkra verið haldnar í þessu örsmáa ríki milli Austurríkis og Sviss; stundum um tiltölulega óáhugaverða hluti eins og lagningu vega eða leyfi til að byggja ný hús, en líka um mál sem varða grundvallarréttindi þeirra ríflega 40 þúsund íbúa sem eiga heima í Lichtenstein.

Eitt slíkt mál hefur ítrekað borið á góma á undanförnum árum: það er spurningin um réttindi kvenna til að rjúfa þungun. Gildandi lög um þungunarrof í Lichtenstein eru nefnilega með þeim ströngustu sem fyrirfinnast í Evrópu: Slíkt er bannað nema líf og heilsa móður sé í hættu, eða þungunin stafi af kynferðisglæp; það er bannað að veita upplýsingar um þungunarrof, og sjúkratryggingum er ekki heimilt að greiða fyrir slíka aðgerð.

Fjallað var um furstadæmið Lichtenstein í Heimskviðum:

Líta framhjá „lögbrotum“

Afleiðingin er að konur sem vilja rjúfa þungun þurfa að fara ýmist til Austurríkis eða Sviss - sem er vissulega bara nokkurra mínútna akstur; þær þurfa sjálfar að borga fyrir aðgerðina, fyrir utan nú að þær eru - strangt til tekið - að fremja afbrot samkvæmt lögum sem í gildi eru í Lichtenstein.

Þessi spurning var tekin fyrir í þjóðaratkvæðagreiðslu í Lichtenstein árið 2011, og þá lýsti Alois erfðaprins (sem þá hafði verið við völd í sex ár) því óhikað yfir að hann væri á móti því að auka réttindi kvenna til þungunarrofs, og sagði að hann myndi ekki staðfesta niðurstöðuna, yrði tillagan samþykkt.

Niðurstaðan var að rúm 52 prósent kjósenda sögðu nei, 48 prósent sögðu já, og margir töldu að hótun erfðaprinsins hefði haft áhrif á fjölda kjósenda. Alois erfðaprins er kaþólskur og hefur sterkar skoðanir á þessum málum.

En í kjölfar þessarar atkvæðagreiðslu var hins vegar gerð ákveðin málamiðlun: stjórnvöld ákváðu að líta alfarið framhjá því að konur færu yfir landamærin til Austurríkis eða Sviss í svona aðgerð - sem var (og er) strangt til tekið, lögbrot í Lichtenstein.

Önnur tilraun var svo gerð í sumar, þegar meira en fimm þúsund íbúar í Lichtenstein (um fjórðungur kjósenda vel að merkja) skrifuðu undir yfirlýsingu um að halda aðra þjóðaratkvæðagreiðslu um þungunarrof. Tillagan fékk semsagt víðtækan stuðning og var seinnipart sumars tekin fyrir á Landtag, þinginu í Lichtenstein.

Þar var lagafrumvarp um frjálsari reglur samþykkt með naumum meirihluta - en tillagan um þjóðaratkvæðagreiðslu hins vegar felld; þeir sem það gerðu, sögðu að fyrst þingið hefði samþykkt ný lög, væri óþarfi að halda þjóðaratkvæðagreiðslu. Sú ákvörðun losaði Alois erfðaprins auðvitað undan því að þurfa að hafna niðurstöðunni - hann hefur sagt að hann hafni því að staðfesta lögin - en sé hins vegar tilbúinn til þess að ræða einhvers konar málamiðlun - og þannig standa málin núna, þegar þessi grein er skrifuð.

Hótaði því að yfirgefa Lichtenstein

Þjóðaratkvæðagreiðslan árið 2011 um þungunarrof leiddi í ljós þann núning sem stundum hefur verið milli valdaskipulagsins í Lichtenstein og vilja stórs hluta íbúa þar. Í kjölfarið var boðað til annarrar þjóðaratkvæðagreiðslu árið eftir; í þetta skiptið var lagt til að völd erfðaprinsins til að hafna niðurstöðu slíkrar atkvæðagreiðslu yrðu takmörkuð (og vel að merkja, erfðaprinsinn getur ekki hafnað niðurstöðu spurningar af þessu tagi).

Hreyfingin sem stóð fyrir þessu framtaki 2012 kallaðist „Damit Deine Stimme Zahlt“ sem gæti útlagst sem „Þannig að þitt atkvæði telji (eða skipti máli)“. Andstæðingarnir (sem vildu ekki takmarka völd erfðaprinsins) mynduðu samtök sem kölluð voru „ Fur Gott, Furst und Vaterland“ (Fyrir Guð, Furstann og Föðurlandið), og þau stóðu sig öllu betur, því niðurstaðan var að 76 prósent kjósenda höfnuð því að takmarka völd Aloisar erfðaprins - enda hafði hann sjálfur lýst yfir andstöðu og reyndar gefið til kynna að hann myndi segja af sér, yrði tillagan samþykkt.

Þau skilaboð erfðaprinins endurómuðu reyndar álíka hótun sem kom frá föður hans, Hans Adam, í tengslum við enn eina þjóðaratkvæðagreiðsluna, í þetta skiptið árið 2003.

Þá lagði furstinn, Hans Adam, nefnilega til að völd hans yrðu aukin - að hann gæti vísað ríkisstjórninni frá völdum, sjálfur útnefnt dómara og hafnað niðurstöðum í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Þetta samþykktu 64 prósent kjósenda - sumir líklega vegna þess að Hans Adam hótaði því beinlínis að flytja úr landi ef tillagan yrði ekki samþykkt - sem hefði að líkindum þýtt að Lichtenstein fjölskyldan - með öll sín auðæfi - hefði yfirgefið landið sem ber þeirra nafn.

Auðæfi upp á milljarða evra

Lichtenstein fjölskyldan er nefnilega vellauðug. Nýlegum úttektum á eignum fjölskyldunnar ber reyndar ekki saman, en samkvæmt þeim á Lichtenstein fjölskyldan eignir upp á þetta 4.6 til 9 milljarða evra, sem gerir fjölskylduna eina þá auðugustu af öllum konungsfjölskyldum í Evrópu.

Til samanburðar er talið að eignir bresku konungsfjölskyldunnar - sem er vissulega ekki á flæðiskeri stödd - séu um 640 milljónir evra.

Aðal uppspretta þessa auðs Lichtenstein fjölskyldunnar er talin vera bankinn sem þau keyptu snemma á síðustu öld - LGT - eða Lichtenstein Global Trust bankinn - sem markaðssetur sig sem einkabanka. Þessi stofnunn var í fyrra að sýsla með um 650 milljarða evra eignir fyrir ríkt fólk, aðra banka og lífeyrissjóði, og er undir stjórn annars prins - sem heitir Max og er bróðir Alois erfðaprins.

Fjölskyldan á einnig hlutabréf í margskonar fyrirtækjum vítt og breitt um heiminn og er til dæmis hluthafi í landbúnaðarfyrirtækjum í Bandaríkjum sem framleiða hrísgrjón sem seld hafa verið á Íslandi undir vörumerkinu Uncle Ben´s.

Og svo er það listaverkasafnið, sem Lichtenstein fjölskyldan hefur verið að safna undanfarin fjögur hundruð ár eða svo. Í því safni eru, eftir því sem næst verður komist, um það bil sjö hundruð höggmyndir og sextán hundruð málverk - þar á meðal mörg eftir gömlu meistarana eins og Raphael, Rembrant og Rubens.

Þetta safn er líklegast erfitt að meta til fjár, en það gefur líka af sér, því það er stöðugt verið að lána verk úr því á listasýningar vítt og breitt um heiminn.

Saga sem hefst á 12. öld

Auðæfi Lichtenstein fjölskyldunnar eru þannig að hluta til ný, en þau byggja á gömlum grunni. Fyrsti Lichtensteininn var Hugo nokkur von Lichtenstein, sem byggði sér kastala nálægt Vín í kringum 1130.

Í gegnum aldirnar eignaðist fjölskyldan mikið af landi í mið Evrópu - ekki síst í byrjun sexándu aldar eftir að þrír Lichtenstein bræður, þeir Karl, Maximilian og Gundakar, bundu trúss sitt við þáverandi leiðtoga hins heilaga rómverska keisaradæmis, studdu hann og kaþólikka í þrjátíu ára stríðinu - og fengu að launum víðáttumikið land á svæðum sem síðar urðu hluti af Tékkóslóvakíu og svo Tékklandi og Slóvakíu.

Ættin var semsagt nátengd valdhöfum, en var ekki með stöðu innan keisaradæmisins, fyrr en Hans Adam - sonur Karls Lichtenstein - fékk að kaupa tvö lítil svæði við landamærin að Sviss, sem hétu Schellenberg og Vaduz - sem urðu síðan að nokkurn vegin sjálfstæða ríkinu Lichtenstein árið 1719.

Lichtenstein fjölskyldan var þannig í, eða nálægt hringiðu evrópskra stjórnmála og stórveldasviftinga á miðöldum og naut góðs af tengslum sínum. En þeytivinda sögunnar sem fór á yfirsnúning um miðja síðustu öld, fór ekki vel með Lichtensteinana, eins og svo marga aðra. Ákvarðanir sem fjölskyldan tók í aðdraganda seinni heimsstyrjaldar, þegar nasistar voru að komast til valda í Þýskalandi, áttu eftir að draga dilk á eftir sér.

Frans Jósef - afi Aloisar erfðaprins - var mótfallinn því að nasistar í Þýskalandi innlimuðu Súdetaland, svæðin í Tékkóslóvakíu þar sem þýskumælandi íbúar voru í meirihluta (sem var svo auðvitað gert eftir að Munchen sáttmálinn illræmdi var samþykktur.

Langvinn deila um landareignir og kastala

Svo fór að nasistastjórnin gerði upptækar allar landareignir og kastala Lichtensteina á þessu svæði. Frans Jósef tókst hins vegar að sjá til þess að Lichtenstein var hlutlaust, þannig að þetta litla ríki var aldrei hernumið eða innlimað eins og Austurríki; hann fór meira að segja til Berlínar 1939 og hitti Adolf Hitler, til að minna á sjálfstæði Lichtenstein og mikilvægi góðra tengsla. Frans Jósef sendi Hitler svo reglulega skeyti, meðal annars eftir að Hitler lifði af banatilræði árið 1942.

Eftir að stríðinu lauk vildi Lichtenstein fjölskyldan fá landareignir sínar til baka, en ný stjórnvöld í Tékkóslóvaíku voru ekki á því: þau litu á Lichtensteina sem Þjóðverja og ljáðu ekki máls á samkomulagi: tengsl mili ríkjanna voru rofin og í gang fóru langvinn málaferli. Tékkóslóvakía vildi ekki viðurkenna sjálfstæði Lichtenstein og við það sat fram eftir tuttugustu öld.

Árið 2004 leiddu þessir atburðir fortíðarinnar hins vegar að deilu sem Ísland átti óbeina aðkomu að. Þá var Tékkland (sem varð til 1992 í kjölfar falls Sovétríkjanna) að ganga inn í Evrópusambandið, rétt eins og níu önnur ríki í austurhluta Evrópu, og verða þar með hluti af Evrópska efnahagssvæðinu - sem Lictenstein (og Ísland og Noregur) höfðu verið hluti af síðan 1994, þegar EES-samningurinn tók gildi.

Öll þessi ríki (aðildarríki ESB og EES-ríkin) þurftu að staðfesta þessa stækkun, sem þeim var auðvitað ljúft og skylt að gera - nema þegar kom að því að stjórnvöld í Lichtenstein áttu að staðfesta innkomu Tékklands: það stóð nefnilega í veginum að Tékkland hafði ekki viðurkennt sjálfstæði Lichtenstein.

Þessi fortíðardeila var leyst á nokkrum vikum; innkoma Tékklands var staðfest, og nokkrum árum síðar var allt fallið í ljúfa lög milli þessara tveggja ríkja - nema að deilan um landareignir Lichtenstein fjölskyldunnar stendur ennþá, og er nú rekin frammi fyrir Mannréttindadómstól Evrópu.

#alois #erfðaprinsinn #kvenna #réttindi #átökin


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-10-11-erfdaprinsinn-alois-og-atokin-um-rettindi-kvenna-i-lichtenstein-489379

📰 Aðrar fréttir

Dóra Sif Tynes: Hæstiréttur hefur talað skýrt – Alþingi hefur ekki innleitt bókun 35
📅 11.10.2026 👁️ 0
Dóra Sif Tynes: Hæstiréttur hefur talað skýrt – Alþingi hefur ekki innleitt bókun 35
Hæstiréttur hefur talað skýrt. Við höfum ekki innleitt bókun 35 þannig að íslenskir dómstólar geti beitt þeirri forgangsreglu sem bókunin felur í sér....
Leiðin­leg frekja segist hvorki leiðin­leg né frek - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 0
Leiðin­leg frekja segist hvorki leiðin­leg né frek - Vísir
Undanfarið hefur borið á því að fólk hafi fordæmt vinnubrögð fjölmiðla á meðan aðrir hrósa og lofa. Á dögunum var Elísabet Inga Sigurðardóttir til að ...
Sendum Möggu Stínu í Euro­vision - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Sendum Möggu Stínu í Euro­vision - Vísir
Klippa: Í bóli Bjarnars - Friðrik Ómar Jólin eru á næsta leiti. Eða eru þau það? Október er rétt að byrja. Fólk, margt hvert, amast við því að fá ekki...
Erfitt að sjá að ávinningurinn af fölsuðum peptíðum sé áhættunnar virði
📅 11.10.2026 👁️ 2
Erfitt að sjá að ávinningurinn af fölsuðum peptíðum sé áhættunnar virði
Notkun ólöglegra peptíða hefur sprungið út á Íslandi síðasta árið. Á samfélagsmiðlum eru markaðssettar mismunandi tegundir peptíða sem eru sagðir hafa...
Lóð flugskýlis minnkuð um nær helming – kröfum kaupenda hafnað
📅 11.10.2026 👁️ 2
Lóð flugskýlis minnkuð um nær helming – kröfum kaupenda hafnað
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfum kaupenda eignarhluta í flugskýli á Akureyrarflugvelli um að fella úr gildi samþykkt bygg...
Opna tvær nýjar deildir á Akureyri
📅 11.10.2026 👁️ 2
Opna tvær nýjar deildir á Akureyri
Tvær nýjar deildir eru á teikniborðinu hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri. Markmiðið með þeim er að skapa svigrúm innanhúss, fækka innlögnum og tryggja betra...
Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengi­sandi - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengi­sandi - Vísir
Í dag eru nákvæmlega 40 ár liðin frá því að leiðtogar stórveldanna, Reagan og Gorbatsjoff, hittust hér í Reykjavík til að freista þess að ljúka kjarno...
Tugir slösuðust vegna ský­stróka á Sikil­ey - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Tugir slösuðust vegna ský­stróka á Sikil­ey - Vísir
Að minnsta kosti ellefu voru fluttir á sjúkrahús eftir að hafa orðið fyrir braki og glerbrotum, að því er Guardian greinir frá. Sjötugur maður var með...
Reyndi að brjóta sér leið inni í íbúð í Kópavogi vopnaður hnífi og hamri
📅 11.10.2026 👁️ 2
Reyndi að brjóta sér leið inni í íbúð í Kópavogi vopnaður hnífi og hamri
Óskað var eftir aðstöð lögreglu vegna manns í Kópavogi sem reyndi að brjóta sér leið inn í íbúð vopnaður hnífi og hamri. Þetta kemur fram í dagbók lög...
Fáni hryðjuverkasamtaka vekur athygli í Palestínugöngu í Reykjavík
📅 11.10.2026 👁️ 2
Fáni hryðjuverkasamtaka vekur athygli í Palestínugöngu í Reykjavík
Fáni hryðjuverkasamtaka vekur athygli í Palestínugöngu í Reykjavík Fréttin11. október 2026InnlentLeave a Comment Rauður fáni með merki Alþýðufylkingar...
Mannskæðasta árás í Sádi-Arabíu í rúman áratug
📅 11.10.2026 👁️ 2
Mannskæðasta árás í Sádi-Arabíu í rúman áratug
Að minnsta kosti tólf eru látnir og yfir þrjú hundruð eru særðir eftir árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad, höfuðborg Sádi-Arabíu, í gær. Nokkrir hinna s...
Eitt „læk“ getur sprengt sam­bandið – hjá bæði tví­tugum og átt­ræðum - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Eitt „læk“ getur sprengt sam­bandið – hjá bæði tví­tugum og átt­ræðum - Vísir
Samt eiga flest pör eitt sameiginlegt:  Þau langar svo að vera hamingjusöm! „Yngsta parið sem hefur leitað til mín var 17 ára gamalt,“ segir Íris Eik ...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Enn skapar Þorgerður Katrín óróa
📅 11.10.2026 👁️ 2
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Enn skapar Þorgerður Katrín óróa
Mynd Koma utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio
Veðurstofan varar við stormi á Suðurlandi
📅 11.10.2026 👁️ 3
Veðurstofan varar við stormi á Suðurlandi
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna storms á Suðurlandi í kvöld og nótt.Vaxandi lægð nálgast landið með suðaustan hvassviðri eða sto...
Minnir  helst á fangabúðir nasista
📅 11.10.2026 👁️ 3
Minnir helst á fangabúðir nasista
Hundruð Íslendinga voru send til afplánunar í dönskum fangelsum á 18. og 19. öld. Dánartíðni íslenskra fanga var hærri en fanga af öðrum þjóðernum og ...
Rony the hero police dog honoured for finding missing people in the Canary Islands
📅 11.10.2026 👁️ 2
Rony the hero police dog honoured for finding missing people in the Canary Islands
Meet Rony, a Springer Spaniel serving with the National Police in the Canary Islands, who has received a special honour for his remarkable work helpin...
40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða
📅 11.10.2026 👁️ 3
40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða
Óhætt er að segja að allt hafi farið á annan endann í íslensku samfélagi árið 1986 þegar tilkynnt var með aðeins tólf daga fyrirvara að leiðtogar Band...
Suð­austan stormur og gul við­vörun - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Suð­austan stormur og gul við­vörun - Vísir
Í hugleiðingum sínum segir veðurfræðingur Veðurstofunnar að vaxandi lægð á Grænlandshafi sé á norðurleið og að skilin frá henni nálgist landið. Hægt v...
Braust inn með hníf í einni og hamar hinni - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Braust inn með hníf í einni og hamar hinni - Vísir
Samkvæmt dagbók lögreglu var maðurinn handtekinn og vistaður í fangaklefa. Í Háaleitis- og Bústaðahverfi var maður handtekinn fyrir líkamsárás og brot...
Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni - Vísir
Samkvæmt dagbók lögreglu var maðurinn handtekinn og vistaður í fangaklefa. Í Háaleitis- og Bústaðahverfi var maður handtekinn fyrir líkamsárás og brot...
Stal heilum sjóðsvélum og braust inn í skip – ekki gerð refsing
📅 11.10.2026 👁️ 4
Stal heilum sjóðsvélum og braust inn í skip – ekki gerð refsing
Maður sem stal meðal annars heilum sjóðsvélum, golfpoka og bjórkútum og færði rúma eina og hálfa milljón króna inn á eigin reikning með stolnum greiðs...
Óttast stefnubreytingu hjá DR
📅 11.10.2026 👁️ 4
Óttast stefnubreytingu hjá DR
Óttast stefnubreytingu hjá DR Dansk­ir leik­ar­ar, leik­stjór­ar, hand­rits­höf­und­ar, mynda­töku­menn og fleiri sem unn­ið hafa að gerð leik­inna sj...
Jet2 cancels all flights to La Palma just months after launch
📅 11.10.2026 👁️ 4
Jet2 cancels all flights to La Palma just months after launch
Jet2 has confirmed it is withdrawing its flights and holiday packages to La Palma, just six months after launching its first direct service to the isl...
Handtekinn vegna líkamsárásar og brots á vopnalögum
📅 11.10.2026 👁️ 4
Handtekinn vegna líkamsárásar og brots á vopnalögum
Maður var handtekinn í hverfi 108 í Reykjavík í gær eða nótt vegna líkamsárásar og brots á vopnalögum. Í dagbók lögreglunnar segir að maðurinn hafi ve...
Rain eases across the Canary Islands this bank holiday Sunday
📅 11.10.2026 👁️ 4
Rain eases across the Canary Islands this bank holiday Sunday
The Canary Islands are expecting an improvement in weather conditions today, Sunday 11th October, although occasional rain showers remain possible acr...
Drónaárás á rússneskt gagnaver
📅 11.10.2026 👁️ 4
Drónaárás á rússneskt gagnaver
Þetta er þriðja árás Úkraínuhers á gagnaver rússneska fyrirtækisins Yandex á innan við viku. Fyrirtækið hefur verið kallað rússneska Google, en það re...
Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
CJP at Jantar Mantar: Delhi sees more protests as 'Cockroach' group's arrested leaders freed
📅 11.10.2026 👁️ 2
CJP at Jantar Mantar: Delhi sees more protests as 'Cockroach' group's arrested leaders freed
Police say they will keep restricting access to the city centre after thousands of people were detained and released on Saturday.
Liverpool v Manchester City: Toxicity and uncertainty await City at Liverpool - will their season even matter?
📅 11.10.2026 👁️ 4
Liverpool v Manchester City: Toxicity and uncertainty await City at Liverpool - will their season even matter?
Manchester City visit Liverpool on Sunday with a lot of uncertainty hanging over them. Phil McNulty looks at what lies ahead.
Mikil reiði vegna morðs á japanskri konu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Mikil reiði vegna morðs á japanskri konu
Anna Yagi, japönsk kona á fertugsaldri, fannst látin á hótelherbergi í Okinawa í byrjun mánaðarins eftir að hafa verið kyrkt.The Times segir að lögreg...
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 5
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
„Það var ömurlegt. Það er svo mikið stress að starta svona túrum. Maður er bara á fullu og maður er ekki búinn að spila í langan tíma og það er allt a...
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
📅 11.10.2026 👁️ 5
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
Vísindafólk frá bandarískri stofnun um fornleifaarfleið, Archaeological Legacy Institute, og Purdue-háskóla kemur til Nikumaroro-eyju í Kyrrahafi á má...
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
📅 11.10.2026 👁️ 5
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
Maður á fimmtugsaldri skaut sjö ættingja sína og fjölskylduvin á heimili í borginni Erie í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í gær, áður en hann tók sitt e...
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
📅 11.10.2026 👁️ 4
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
The White House had blocked access for CNN, MS Now and Politico, leading them to restrict pool coverage.
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
📅 11.10.2026 👁️ 4
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
The Environment Agency has warned approximately 6.3 million homes and businesses in England remain at risk of flooding.
UK launches flood taskforce to prepare for extreme winter weather
📅 11.10.2026 👁️ 4
UK launches flood taskforce to prepare for extreme winter weather
The Environment Agency has warned approximately 6.3 million homes and businesses in England remain at risk of flooding.
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
📅 11.10.2026 👁️ 4
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
Fellibylurinn Isaias sem skall að landi við Flórída og Alabama í gær hefur raskað olíuframleiðslu Bandaríkjanna við strendur Mexíkóflóa.Orkumálaráðher...
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND)
📅 11.10.2026 👁️ 4
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND)
Úkraína ætti að kjósa nýjan forseta – Trump (MYNDBAND) Fréttin11. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Úkraína ætti að skipta út V...
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
Samkvæmt umfjöllun Reuters særðust 309 manns og voru sumir þeirra fluttir á sjúkrahús í lífshættu. Árásin hafi verið gerð fyrirvaralaust og er þetta s...
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir
Blóðug árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – 12 látnir og yfir 300 særðir Fréttin10. október 2026ErlentLeave a Comment King Khalid-alþjóðaflugvöllurinn...
I was told I had depression for 14 years until I got sectioned - it was bipolar
📅 10.10.2026 👁️ 3
I was told I had depression for 14 years until I got sectioned - it was bipolar
Kimberley Atkinson assumed her symptoms were depression until her behaviour started to change dramatically.
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
Þúsundir mótmælenda voru handteknir í Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, í dag þegar mótmælt var breytingum á kjörskrá landsins. Þetta kemur fram í tilkyn...
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
📅 10.10.2026 👁️ 4
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
Film-maker Sue Kim talks about having unprecedented access to K-Pop idol Lisa Manobal at her most candid.
AI is creating a 'human premium' for art created by people
📅 10.10.2026 👁️ 4
AI is creating a 'human premium' for art created by people
Amid a surge in AI content, many are placing extra value on art that's obviously made by a human. But can that last, asks Ros Atkins
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
📅 10.10.2026 👁️ 4
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
Lizzy, Charlotte and Libby studied at the same time, but their student debt now looks very different.
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
📅 10.10.2026 👁️ 4
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
MPs are seeking to stop immunity applying when police fabricate evidence or are dishonest or negligent.
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
📅 10.10.2026 👁️ 5
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
Að minnsta kosti fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias sem skall á strönd Flórída og Alabama í gærkvöld.Dregið hefur úr krafti Isaias en enn e...
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
Í fréttum af fornleifafundinum í síðustu viku kom fram að menn hafi lengi grunað að þarna væri kirkjurúst frá tímum norrænu byggðarinnar. Sönnunin vær...
Tóku samtalið um land allt
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tóku samtalið um land allt
„Samtalið“ svokallaða fór fram í dag, þar sem fólk hittist, ræddi framtíðina og hvernig samfélag það vill. Verkefnið heitir „Tölum saman“ og varð til ...
Frakkland í krísu og fjarhægrið sækir á
📅 10.10.2026 👁️ 4
Frakkland í krísu og fjarhægrið sækir á
Frakkland í krísu og fjarhægrið sækir á Að­eins 15 pró­sent hafa já­kvætt álit á Macron Frakk­lands­for­seta. Eldsneytis­verð í Frakklandi er í sögu­l...