Í Liechtenstein er við lýði það sem kallað er stjórnarskrárbundið furstadæmi. Furstinn - eða prinsinn eins og kannski væri réttara að kalla hann, heitir Hans Adam, en sonur hans, erfðaprinsinn Alois Philipp Maria Liechtenstein, tók hins vegar við hlutverkinu - og völdunum sem því fylgja, árið 2004.
Sem erfðaprins og verðandi fursti, þá hefur Alois talsvert mikil völd og ekki síður áhrif: titilinn og embættið eru þannig mun meira en einhverjar skrauthúfur og arfleið frá þeim tíma þegar konungar, drottningar og prinsar réðu lögum og lofum í Evrópu fyrr á öldum.
Alois getur þannig vísað ríkisstjórn landsins frá, skipað dómara, hafnað því að staðfesta lög sem þingið í Liechtenstein samþykkir - og það sem meira er: hann getur hafnað því að viðurkenna ákvörðun sem borin er undir þjóðaratkvæðagreiðslu í Liechtenstein.
Þjóðaratkvæðagreiðslur eru nefnilega mjög tíðar í Liechtenstein; það er frekar auðvelt að stofna til þeirra og á undanförnum áratugum hafa tugir slíkra verið haldnar í þessu örsmáa ríki milli Austurríkis og Sviss; stundum um tiltölulega óáhugaverða hluti eins og lagningu vega eða leyfi til að byggja ný hús, en líka um mál sem varða grundvallarréttindi þeirra ríflega 40 þúsund íbúa sem eiga heima í Liechtenstein.
Eitt slíkt mál hefur ítrekað borið á góma á undanförnum árum: það er spurningin um réttindi kvenna til að rjúfa þungun. Gildandi lög um þungunarrof í Liechtenstein eru nefnilega með þeim ströngustu sem fyrirfinnast í Evrópu: Slíkt er bannað nema líf og heilsa móður sé í hættu, eða þungunin stafi af kynferðisglæp; það er bannað að veita upplýsingar um þungunarrof, og sjúkratryggingum er ekki heimilt að greiða fyrir slíka aðgerð.
Fjallað var um furstadæmið Liechtenstein í Heimskviðum:
Líta framhjá „lögbrotum“
Afleiðingin er að konur sem vilja rjúfa þungun þurfa að fara ýmist til Austurríkis eða Sviss - sem er vissulega bara nokkurra mínútna akstur; þær þurfa sjálfar að borga fyrir aðgerðina, fyrir utan nú að þær eru - strangt til tekið - að fremja afbrot samkvæmt lögum sem í gildi eru í Liechtenstein.
Þessi spurning var tekin fyrir í þjóðaratkvæðagreiðslu í Liechtenstein árið 2011, og þá lýsti Alois erfðaprins (sem þá hafði verið við völd í sex ár) því óhikað yfir að hann væri á móti því að auka réttindi kvenna til þungunarrofs, og sagði að hann myndi ekki staðfesta niðurstöðuna, yrði tillagan samþykkt.
Niðurstaðan var að rúm 52 prósent kjósenda sögðu nei, 48 prósent sögðu já, og margir töldu að hótun erfðaprinsins hefði haft áhrif á fjölda kjósenda. Alois erfðaprins er kaþólskur og hefur sterkar skoðanir á þessum málum.
En í kjölfar þessarar atkvæðagreiðslu var hins vegar gerð ákveðin málamiðlun: stjórnvöld ákváðu að líta alfarið framhjá því að konur færu yfir landamærin til Austurríkis eða Sviss í svona aðgerð - sem var (og er) strangt til tekið, lögbrot í Liechtenstein.
Önnur tilraun var svo gerð í sumar, þegar meira en fimm þúsund íbúar í Liechtenstein (um fjórðungur kjósenda vel að merkja) skrifuðu undir yfirlýsingu um að halda aðra þjóðaratkvæðagreiðslu um þungunarrof. Tillagan fékk semsagt víðtækan stuðning og var seinnipart sumars tekin fyrir á Landtag, þinginu í Liechtenstein.
Þar var lagafrumvarp um frjálsari reglur samþykkt með naumum meirihluta - en tillagan um þjóðaratkvæðagreiðslu hins vegar felld; þeir sem það gerðu, sögðu að fyrst þingið hefði samþykkt ný lög, væri óþarfi að halda þjóðaratkvæðagreiðslu. Sú ákvörðun losaði Alois erfðaprins auðvitað undan því að þurfa að hafna niðurstöðunni - hann hefur sagt að hann hafni því að staðfesta lögin - en sé hins vegar tilbúinn til þess að ræða einhvers konar málamiðlun - og þannig standa málin núna, þegar þessi grein er skrifuð.
Hótaði því að yfirgefa Liechtenstein
Þjóðaratkvæðagreiðslan árið 2011 um þungunarrof leiddi í ljós þann núning sem stundum hefur verið milli valdaskipulagsins í Liechtenstein og vilja stórs hluta íbúa þar. Í kjölfarið var boðað til annarrar þjóðaratkvæðagreiðslu árið eftir; í þetta skiptið var lagt til að völd erfðaprinsins til að hafna niðurstöðu slíkrar atkvæðagreiðslu yrðu takmörkuð (og vel að merkja, erfðaprinsinn getur ekki hafnað niðurstöðu spurningar af þessu tagi).
Hreyfingin sem stóð fyrir þessu framtaki 2012 kallaðist „Damit Deine Stimme Zahlt“ sem gæti útlagst sem „Þannig að þitt atkvæði telji (eða skipti máli)“. Andstæðingarnir (sem vildu ekki takmarka völd erfðaprinsins) mynduðu samtök sem kölluð voru „ Fur Gott, Furst und Vaterland“ (Fyrir Guð, Furstann og Föðurlandið), og þau stóðu sig öllu betur, því niðurstaðan var að 76 prósent kjósenda höfnuð því að takmarka völd Aloisar erfðaprins - enda hafði hann sjálfur lýst yfir andstöðu og reyndar gefið til kynna að hann myndi segja af sér, yrði tillagan samþykkt.
Þau skilaboð erfðaprinins endurómuðu reyndar álíka hótun sem kom frá föður hans, Hans Adam, í tengslum við enn eina þjóðaratkvæðagreiðsluna, í þetta skiptið árið 2003.
Þá lagði furstinn, Hans Adam, nefnilega til að völd hans yrðu aukin - að hann gæti vísað ríkisstjórninni frá völdum, sjálfur útnefnt dómara og hafnað niðurstöðum í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þetta samþykktu 64 prósent kjósenda - sumir líklega vegna þess að Hans Adam hótaði því beinlínis að flytja úr landi ef tillagan yrði ekki samþykkt - sem hefði að líkindum þýtt að Liechtenstein-fjölskyldan - með öll sín auðæfi - hefði yfirgefið landið sem ber þeirra nafn.
Auðæfi upp á milljarða evra
Liechtenstein-fjölskyldan er nefnilega vellauðug. Nýlegum úttektum á eignum fjölskyldunnar ber reyndar ekki saman, en samkvæmt þeim á Liechtenstein fjölskyldan eignir upp á þetta 4.6 til 9 milljarða evra, sem gerir fjölskylduna eina þá auðugustu af öllum konungsfjölskyldum í Evrópu.
Til samanburðar er talið að eignir bresku konungsfjölskyldunnar - sem er vissulega ekki á flæðiskeri stödd - séu um 640 milljónir evra.
Aðal uppspretta þessa auðs Liechtenstein fjölskyldunnar er talin vera bankinn sem þau keyptu snemma á síðustu öld - LGT - eða Liechtenstein Global Trust bankinn - sem markaðssetur sig sem einkabanka. Þessi stofnunn var í fyrra að sýsla með um 650 milljarða evra eignir fyrir ríkt fólk, aðra banka og lífeyrissjóði, og er undir stjórn annars prins - sem heitir Max og er bróðir Alois erfðaprins.
Fjölskyldan á einnig hlutabréf í margskonar fyrirtækjum vítt og breitt um heiminn og er til dæmis hluthafi í landbúnaðarfyrirtækjum í Bandaríkjum sem framleiða hrísgrjón sem seld hafa verið á Íslandi undir vörumerkinu Uncle Ben´s.
Og svo er það listaverkasafnið, sem Liechtenstein-fjölskyldan hefur verið að safna undanfarin fjögur hundruð ár eða svo. Í því safni eru, eftir því sem næst verður komist, um það bil sjö hundruð höggmyndir og sextán hundruð málverk - þar á meðal mörg eftir gömlu meistarana eins og Raphael, Rembrant og Rubens.
Þetta safn er líklegast erfitt að meta til fjár, en það gefur líka af sér, því það er stöðugt verið að lána verk úr því á listasýningar vítt og breitt um heiminn.
Saga sem hefst á 12. öld
Auðæfi Liechtenstein-fjölskyldunnar eru þannig að hluta til ný, en þau byggja á gömlum grunni. Fyrsti Liechtensteininn var Hugo nokkur von Liechtenstein, sem byggði sér kastala nálægt Vín í kringum 1130.
Í gegnum aldirnar eignaðist fjölskyldan mikið af landi í mið Evrópu - ekki síst í byrjun sexándu aldar eftir að þrír Liechtenstein-bræður, þeir Karl, Maximilian og Gundakar, bundu trúss sitt við þáverandi leiðtoga hins heilaga rómverska keisaradæmis, studdu hann og kaþólikka í þrjátíu ára stríðinu - og fengu að launum víðáttumikið land á svæðum sem síðar urðu hluti af Tékkóslóvakíu og svo Tékklandi og Slóvakíu.
Ættin var semsagt nátengd valdhöfum, en var ekki með stöðu innan keisaradæmisins, fyrr en Hans Adam - sonur Karls Liechtenstein- fékk að kaupa tvö lítil svæði við landamærin að Sviss, sem hétu Schellenberg og Vaduz - sem urðu síðan að nokkurn vegin sjálfstæða ríkinu Liechtenstein árið 1719.
Liechtenstein-fjölskyldan var þannig í, eða nálægt hringiðu evrópskra stjórnmála og stórveldasviftinga á miðöldum og naut góðs af tengslum sínum. En þeytivinda sögunnar sem fór á yfirsnúning um miðja síðustu öld, fór ekki vel með Liechtensteinana, eins og svo marga aðra. Ákvarðanir sem fjölskyldan tók í aðdraganda seinni heimsstyrjaldar, þegar nasistar voru að komast til valda í Þýskalandi, áttu eftir að draga dilk á eftir sér.
Frans Jósef - afi Aloisar erfðaprins - var mótfallinn því að nasistar í Þýskalandi innlimuðu Súdetaland, svæðin í Tékkóslóvakíu þar sem þýskumælandi íbúar voru í meirihluta (sem var svo auðvitað gert eftir að Munchen sáttmálinn illræmdi var samþykktur).
Langvinn deila um landareignir og kastala
Svo fór að nasistastjórnin gerði upptækar allar landareignir og kastala Liechtensteina á þessu svæði. Frans Jósef tókst hins vegar að sjá til þess að Liechtenstein var hlutlaust, þannig að þetta litla ríki var aldrei hernumið eða innlimað eins og Austurríki; hann fór meira að segja til Berlínar 1939 og hitti Adolf Hitler, til að minna á sjálfstæði Liechtenstein og mikilvægi góðra tengsla. Frans Jósef sendi Hitler svo reglulega skeyti, meðal annars eftir að Hitler lifði af banatilræði árið 1942.
Eftir að stríðinu lauk vildi Liechtenstein-fjölskyldan fá landareignir sínar til baka, en ný stjórnvöld í Tékkóslóvaíku voru ekki á því: þau litu á Liechtensteina sem Þjóðverja og ljáðu ekki máls á samkomulagi: tengsl mili ríkjanna voru rofin og í gang fóru langvinn málaferli. Tékkóslóvakía vildi ekki viðurkenna sjálfstæði Liechtenstein og við það sat fram eftir tuttugustu öld.
Árið 2004 leiddu þessir atburðir fortíðarinnar hins vegar að deilu sem Ísland átti óbeina aðkomu að. Þá var Tékkland (sem varð til 1992 í kjölfar falls Sovétríkjanna) að ganga inn í Evrópusambandið, rétt eins og níu önnur ríki í austurhluta Evrópu, og verða þar með hluti af Evrópska efnahagssvæðinu - sem Liechtenstein (og Ísland og Noregur) höfðu verið hluti af síðan 1994, þegar EES-samningurinn tók gildi.
Öll þessi ríki (aðildarríki ESB og EES-ríkin) þurftu að staðfesta þessa stækkun, sem þeim var auðvitað ljúft og skylt að gera - nema þegar kom að því að stjórnvöld í Liechtenstein áttu að staðfesta innkomu Tékklands: það stóð nefnilega í veginum að Tékkland hafði ekki viðurkennt sjálfstæði Liechtenstein.
Þessi fortíðardeila var leyst á nokkrum vikum; innkoma Tékklands var staðfest, og nokkrum árum síðar var allt fallið í ljúfa lög milli þessara tveggja ríkja - nema að deilan um landareignir Liechtenstein-fjölskyldunnar stendur ennþá, og er nú rekin frammi fyrir Mannréttindadómstól Evrópu.