Pólski maðurinn sem fórst þegar Jökull ÞH 299 sökk úti fyrir Austurlandi á miðvikudag hét Jacek Belina. Hann var frá Ustka í Póllandi og fæddur árið 1974.
Hann var einn þriggja sem fórust í slysinu. Hinir voru Eggert Ellertsson og Aðalsteinn Steinþórsson. 14 var bjargað.