Bæði Vilhjálmur og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar gagnrýndu framgöngu Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, harðlega og kallaði Vilhjálmur atburðarásina leikrit. Hana hafi þó þurft að útskýra fyrir félagsmönnum en hún hafi ekki þýtt betri niðurstöðu fyrir VR.
„Ég meira að segja fullyrði það að þetta er verri niðurstaða því að þetta er niðurstaða varðandi forsenduákvæðið. Það mun sko að mínum dómi bara ekki virkjast, þau munu ekki fá styttingu.“
Þá segir Vilhjálmur að forsætisráðherra ekki sagt allan sannleikann því búið hafi verið að kynna ákvæði um vaxtabótaauka, sem formaður VR hefur fullyrt að hafi átt eftir að útfæra þegar Breiðfylkingin skrifaði undir framlengingu samninga.
„Auðvitað er það alltaf þannig og ég skil alveg forsætisráðherra og ég skil líka Samtök atvinnulífsins og annað þegar að forystumenn í verkalýðshreyfingunni eru kannski búnir að mála sig dálítið út í horn með hástemmdum yfirlýsingum þá þarf oft einhvern veginn að hjálpa fólki út úr þeim ógöngum sem það er komið í og ég held að það hafi verið gert þarna og ég held að það hafi verið gert bara nokkuð snyrtilega.“
Fertugasta og sjöunda þing Alþýðusambandsins verður sett í vikunni en formaður Eflingar skrifaði pistil á Facebook að hún teldi að formaður VR ætlaði að sölsa undir sig sambandið.
„Hvernig verður andrúmsloftið þar? Klofnar sambandið? Ég hef áhyggjur af stöðunni. Ég ætla bara að segja það alveg nákvæmlega eins og er. Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu sem er mjög mikilvægt.“