Veltihringrás og virkjanir: Fyrstu tuttugu mánuðir umhverfisráðherra
„Margt hefur áunnist í orkumálum,“ sagði Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra eftir þinglok í júní. Virkjanaframkvæmdir, veltihringrásin AMOC, hafið og loftslagsvendipunktar hafa verið meðal verkefna ráðherra undanfarið. Heimildin fór yfir störf Jóhanns Páls síðustu tuttugu mánuði.
„Fyrsta verkefni er að tryggja forgang almennings þegar kemur að raforku á tímum umframeftirspurnar í kerfinu,“ sagði Jóhann Páll Jóhannsson spurður út í áherslur sínar sem nýr umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fyrir utan Bessastaði 21. desember 2024. Daginn sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við. „Á að virkja meira?“ spurði einn blaðamannanna. „Það verður virkjað meira en það verður líka gætt að náttúruverndinni,“ svaraði nýi ráðherrann.
Hann var þá inntur eftir svari varðandi loftslagsmálin en Ísland hafði ekki verið á áætlun hvað varðar markmið sín um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. „Það verður að taka loftslagsmálin miklu fastari tökum,“ svaraði Jóhann Páll og gekk á fund forseta Íslands.
„Það verður virkjað meira en það verður líka gætt að náttúruverndinni
Áherslur Jóhanns Páls í viðtali við blaðamenn þennan dag má segja að hafi haldist þær sömu. Virkjanaframkvæmdir, veltihringrásin AMOC, hafið og loftslagsvendipunktar eru meðal málefna sem hafa verið í forgrunni hjá ráðherranum …