Pólska lögreglan hefur fengið upplýsingar um mögulegar tilraunir til að ráða Donald Tusk, forsætisráðherra, og Wladyslaw Kosiniak-Kamysz, varnarmálaráðherra, af dögum.
„Lögreglu barst tilkynning um mögulega morðtilraun gegn Donald Tusk forsætisráðherra og Wladyslaw Kosiniak-Kamysz, aðstoðarforsætisráðherra og varnarmálaráðherra,“ sagði Karolina Galecka, talskona innanríkisráðuneytisins, á blaðamannafundi. Tilkynningin barst í gegnum öryggisþjónustu ríkisins (SOP).
Innanríkisráðuneyti Póllands hefur skipað yfirvöldum að grípa til aðgerða vegna þessa, segir talsmaður innanríkisráðuneytisins í tilkynningu.
Ekki hefur verið gefið upp hvers konar árásir voru í bígerð, né hvenær og hvar átti að fremja þær.
Lögregla og öryggisstofnanir Póllands funduðu í morgun um viðbrögð við þessum nýju upplýsingum.
„Í þessu tilviki teljum við töluverðar líkur á því að hótununum verði í raun fylgt eftir,“ sagði Jacek Dobrzynski, talsmaður samhæfingarstöðvar pólskra leyniþjónustustofnana, að loknum blaðamannafundi í morgun.