Við heyrum hvað Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, sagði um stöðuna innan verkalýðshreyfingarinnar í fréttatímanum en hann var gestur á Sprengisandi í morgun líkt og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR.
Þingmaður Framsóknar segir að framlög til sjóvarna séu ekki í samræmi við mat Veðurstofunnar og þá segjum við frá mótmælum vegna sjókvíaeldis á Seyðisfirði sem fara fram samtímis fyrir austan og á Austurvelli í dag.
Einnig verður rætt við forstjóra Rio Tinto um brunann í álverinu í Straumsvík í gær og forseta Landssamtaka íslenskra stúdenta um niðurstöður þjóðarsamtals en niðurstöðurnar verða kynntar í Hörpu í dag.
Hútar eru taldir standa á bakvið árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh, höfuðborg Sádi-Arabíu, í gær og hafa varað við því að farþegar ferðist um flugvelli landsins.
Í íþróttunum verður farið yfir stórleik dagsins í enska boltanum sem og leik Fram og KR í Bestu deild karla í gærkvöldi.
Allt þetta og meira til í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf.