Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fengið sex tilkynningar um skemmdarverk á bifreiðum í Vesturbæ og miðbæ Reykjavíkur í október.
Árni Friðleifsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að svo virðist vera sem einhver faraldur sé í gangi. Hann segir málið í rannsókn.
Lögreglan greindi frá því á fimmtudag að þrjár tilkynningar hefðu borist um skemmdarverk á kyrrstæðum bifreiðum í Vesturbæ. Þar segir að skemmdarvargurinn, eða skemmdarvargarnir, hafi rispað bifreiðarnar með lykli eða öðru áhaldi svo mikið tjón hlaust af.
Í hverfahópi Vesturbæjar Reykjavíkur á Facebook má sjá að hakakross var rispaður á minnst einn bíl í hverfinu á miðvikudag.
Síðan á fimmtudag hafa þrjár tilkynningar til viðbótar borist lögrelgu, tvær vegna skemmdarverka á bifreiðum í Vesturbæ og ein í miðbæ Reykjavíkur.