Jón Snæbjörnsson skipstjóri þekkir af eigin raun þann hrylling sem skipverjar á Jökli gengu í gegnum í vikunni. Hann var um borð í flutningaskipinu Suðurlandi þegar það sökk á jólanótt árið 1986 og beið björgunar í tólf klukkustundir við mjög erfiðar aðstæður.Í samtali við Morgunblaðið í dag rifjar Jón upp þessa örlagaríku nótt fyrir tæpum 40 árum. Suðurland var á leið til Múrmansk með fullfermi af síld þegar mikið högg kom á skipið.
Jón veit hvernig það er að berjast fyrir lífi sínu í ísköldum sjó: „Þetta fer aldrei“