Háskóli Íslands hefur nýlega tekið við því hlutverki að sjá um prófin og segir í tilkynningu að starfsmenn skólans vinni hörðum höndum að því að undirbúa próf. Vonin er að gefa sem flestum tækifæri til að þreyta prófið eins fljótt og auðið er.
Prófið er eitt skilyrða sem þarf að uppfylla til að ljúka umsókn um ríkisborgararétt hér á landi. Fyrsta prófið í tvö ár verður haldið í desember og er þegar fullskipað.
Helga Ragnarsdóttir, sem á breskan eiginmann, gagnrýndi fyrirkomulagið fyrr í mánuðinum. Maðurinn hennar hafi flutt til Íslands árið 2020 og loksins þegar þau sáu að bjóða ætti upp á próf hafði það ekki verið auglýst og þegar fullskipað í prófið.
„Áformað er að halda fleiri próf á nýju ári fyrir mun stærri hópa og verða þau auglýst í byrjun árs 2027 á island.is,“ segir í tilkynningu HÍ sem birt var í gær.
Að auki er tekið fram að hægt sé að skrá sig á lista til að fá tilkynningar um nýjar prófdagsetningar þegar þær verða tilkynntar. Vonir standi til að hægt verði að bjóða nokkur hundruð umsækjendum um ríkisborgararétt að þreyta íslenskupróf á fyrri hluta árs.