Agnes Aðalsteinsdóttir, dóttir Aðalsteins Steinþórssonar, minnist föður síns í færslu á Facebook, eins og Vísir og DV greina frá. Aðalsteinn, sem var 59 ára, er einn þeirra þriggja skipverja sem fórust þegar fiskiskipið Jökull ÞH 299 sökk á miðvikudag. Fjórtán var bjargað á lífi, eins og Nútíminn greindi frá.
Í færslunni skrifar Agnes: „Pabbi minn var hörkutól. Villimaður með stórt hjarta og maður sem lét ekki mikið stoppa sig. Hann var ein stærsta lífsgjöf sem ég og börnin mín höfum fengið. Maðurinn sem elskaði mig, studdi mig og stóð við bakið á mér í einu og öllu. Ekki bara þegar lífið var auðvelt heldur líka þegar það reyndi hvað mest á mig.“
„Og ef ég gæti fengið eina mínútu í viðbót með þér myndi ég ekki biðja um neitt annað en að fá að faðma þig, segja þér hversu mikið þú skiptir mig máli og þakka þér fyrir allt sem þú varst mér og börnunum mínum.“
Jökull, sem er gerður út frá Raufarhöfn, sökk um sextíu sjómílur austur af landinu síðdegis á miðvikudag. Þrír skipverjar fórust og fjórtán var bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Auk Aðalsteins hefur Eggert Ellertsson, 41 árs, verið nafngreindur, eins og Nútíminn greindi frá. Þriðji maðurinn sem fórst hefur enn ekki verið nafngreindur en pólska sendiráðið hefur greint frá því að sá maður hafi verið pólskur að uppruna.