Unnur Blær Bartsch skriðusérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að í gærkvöldi hafi skriða fallið á Fagradalsveg og önnur síðar á Vattarnessveg sem sé þó ekki svo fjölfarinn reyndar. „Og svo erum við með óljósar, heimildir um skriðu eða einhverjar hreyfingar í Fannardal,“ bætir hún við.
Hún segir að stærð skriðunnar hafi ekki komið í ljós fyrr en við birtingu í morgun. „Við vissum ekkert um stærðina á henni í gær, það var bara ekkert hægt að sjá, það var rosalegt myrkur og ekkert hægt að kanna aðstæður en við erum komin með myndir af henni núna. Hún er ekki mjög stór en það fór svolítið mikið efni með henni.“
Unnur segir að Vegagerðin hafi svo strax ráðist í að hreinsa veginn í morgun og er hann nú opinn fyrir umferð á ný.
Hún segir að minni úrkomu sé spáð í dag auk þess sem það fer að kólna. „Þannig að eftir því sem líður á daginn að þá dregur úr skriðuhættunni. Viðvörun okkar tekur, er þá úr gildi klukkan tvö eftir hádegi í dag að öllu óbreyttu,“ segir Unnur Blær Bartsch, skriðusérfræðingur á Veðurstofu Íslands.