Rætt verður einnig við móður eins skipverjanna sem komust lífs af þegar fiskiskipið Jökull ÞH sökk á miðvikudag. Hún segir ekki hægt að lýsa þeirri tilfinningu sem fylgdi því að hitta son sinn heilan á húfi í gær. Kyrrðar- og samverustund fer fram í Fossvogskapellu vegna slyssins í dag.
Svandís Svavarsdóttir segir að vinstrimenn og sósíaldemókratar séu ekki lengur samherjar í íslenskri pólitík. Hún gagnrýnir Samfylkinguna töluvert fyrir hægrisinnaðar áherslur, líkir hallalausum fjárlögum og núllinu fræga við trúartákn og telur víst að innan flokksins séu vinstrisinnaðar gagnrýnisraddir sem haldi sig til hlés á meðan flokkurinn njóti fylgis. Svandís er í ítarlegu viðtali við Elísabetu Ingu fréttamann í nýjasta þættinum af Sætinu, en við heyrum í ráðherranum fyrrverandi í hádegisfréttum.
Greiningum á öndunarfærasýkingum fer fjölgandi og sömuleiðis eykst álagið á Læknavaktinni. Inflúensan er fyrr á ferð að sögn yfirlæknis hjá Læknavaktinni. Rætt er við hann í fréttatímanum.
Skriðuviðvaranir verða í gildi fyrir austan fram yfir hádegið að öllu óbreyttu. Nokkrar skriður hafa fallið á vegi, þar á meðal á Fagradalsveg. Farið verður yfir stöðuna.
Þéttur fréttatími og snarpur sporpakki í hádeginu á Bylgjunni, á slaginu tólf. Umsjónarmaður er Telma L. Tómasson