Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lýsir yfir vonbrigðum með ummæli Bandaríkjaforseta í gær um að Úkraína þurfi nýjan forseta. Þá segir hún samning Trumps við Pútín um kaup á dísilolíu ekki réttu skrefin á þessum tíma. Nær væri að herða þvingunaraðgerðir gegn Rússum.
„Fyrst og síðast er hugur minn hjá úkraínsku þjóðinni sem er búin að búa núna í á fimmta ár við hörmulegar afleiðingar innrásarstríðsins og grimmilegar árásir Rússa. Ég, eins og aðrir leiðtogar, lýsi yfir vonbrigðum með þessa ákvörðun forseta Bandaríkjanna,“ sagði Þorgerður Katrín í viðtali í hádegisfréttum.
Ekki bestu skilaboðin á þessum tíma
Utanríkisráðherra segir Ísland eðlilega í hópi með hinum Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum sem vilji auka enn frekar á þrýsting á Rússland.
„Við erum að sjá að þvingunaraðgerðir eru að skila árangri og þetta er ekki tíminn til þess að létta á þeim og sérstaklega ekki núna þegar vetur er að færast yfir Úkraínu. Þannig að þetta fannst mér ekki bestu skilaboðin á þessum tíma, hreint út sagt.“
Nær að herða refsiaðgerðir gegn Rússum en að semja um olíukaup
Trump samdi við Pútín á föstudag um að Bandaríkin myndu kaupa dísilolíu af Rússlandi næstu þrjá mánuði. Stutt er síðan hann undirritaði lög um að hertar refsiaðgerðir gegn Rússum.
„Það skiptir máli að vestræn ríki standi saman gegn þessu brútal innrásarstríði Rússa í Úkraínu. Undir öllu þessu er öryggi Úkraínu, frelsi og fullveldi. Undir er líka frelsi og öryggi Evrópu þannig að þetta eru ekki réttu skrefin á þessum tíma, að mínu mati, sem við höfum þurft að sjá.“
Nær hefði verið að herða þvingunaraðgerðir gegn Rússum, segir Þorgerður Katrín, því það séu fyrst og síðast þeir sem geti bundið enda á stríðið.
„Það er margbúið að ítreka það af hálfu Úkraínu og annarra að það er hægt að hætta þessum stríðsrekstri strax ef hægt er að setjast niður og fá réttlátan og varanlegan frið. Þetta hefur Úkraína margoft ítrekað og þeir hafa sýnt raunverulegan vilja til að setjast að samningaborðinu en Rússar ekki,“ segir utanríkisráðherra.
Áhyggjur og vonbrigði vegna stöðunnar
Leiðtogar vinaþjóða Úkraínu hafa verið í óformlegum samskiptum eftir viðburði helgarinnar. Eðlilega hafi fólk áhyggjur og hafi orðið fyrir vonbrigðum með stöðuna núna, segir Þorgerður Katrín. „Það breytir ekki því að samstaða Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna ásamt mun fleiri ríkjum er órofa gagnvart Úkraínu og þvingunaraðgerðir eru að skila árangri og við verðum að halda áfram að þrýsta á Rússland að setjast niður og semja um réttlátan og varanlegan frið.“