Krabbameinsfélag Íslands hefur sett á laggirnar nýjan sjóð sem ætlað er að styrkja þjónustu við fólk með krabbamein og aðstandendur þess. Sjóðurinn ber heitið Framfarasjóður og er stofnfé 75 milljónir. Sigríður Mogensen er formaður stjórnar sjóðsins.
„Flestir Íslendingar hafa líklega verið snertir af þessum sjúkdómi einhvern tímann á lífsleiðinni. Núna erum við að kasta netinu út í samfélagið og sjá hvaða hugmyndir eru þar úti sem gætu hjálpað sjúklingum og aðstandendum þeirra og eflt forvarnir.“
Stjórn sjóðsins mun sjá um úthlutun ásamt sérstöku fagráði sem verður stjórninni innan handar. Meðstjórnendur Sigríðar eru þau Rögnvaldur Sæmundsson og Vala Smáradóttir. Unnið er að því að klára úthlutunarreglur sjóðsins og auglýst verður eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á næstunni. Styrkirnir verða til eins árs í senn en möguleiki verður á að sækja um framhaldsstyrk.
„Úthlutunarreglurnar verða eðli máls samkvæmt svolítið sveigjanlegar til að byrja með, þar sem við vitum ekki alveg hversu mikið framboð verður af hugmyndum, tæknilausnum, þjónustu eða ráðgjöf. Við viljum kasta netinu nokkuð vítt og sjá hvað kemur upp.“
Lausnir fyrir notendur heilbrigðiskerfisins
Krabbameinsfélag Íslands er nú þegar með starfandi rannsóknarsjóð sem snýr að krabbameinsrannsóknum. Rannsóknarsjóðurinn snýr að rannsóknum á meininu en nýja sjóðnum er ætlað að líta víðar á málið og skoða heildarsamhengið, einblínt verði á fólkið, lausnir fyrir notendur heilbrigðiskerfisins.
„Ég get ekki sagt nákvæmlega til um það núna hvernig umsóknirnar munu líta út, en það gæti til dæmis verið hugbúnaður eða tæknilausnir sem nýtast sjúklingum. Flestir sem þekkja einhvern sem hefur greinst með krabbamein vita að þetta getur verið flókin vegferð. Það er ekki aðeins erfitt að vera veikur, heldur getur líka verið flókið að rata um heilbrigðiskerfið.“