Fékk ár fyrir að myrða sænskan fjölskylduföður

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
Fékk ár fyrir að myrða sænskan fjölskylduföður
Sænskur faðir tók þátt í fótboltaveislu á Islands Brygge í Kaupmannahöfn þegar VM í fótbolta var s.l. sumar. Hann horfði ásamt mörgum öðrum á leik Noregs og Fílabeinsstrandarinnar.
Það varð hans bani.

Sænski fjölskyldufaðirinn hélt með Noregi, varð fyrir áras annars manns sem hélt með Fílabeinsströndinni. Maðurinn heitir Nkumba Tsheiembe og er frá Kongó, en hefur danskan ríkisborgararétt.
Afríkubúinn fór upp á borð og kastaði af afli tveimur bjórdósum að hópi manna, þar sem hinn lánti Christian Zedig stóð. Eftir að hafa kasta brjódósunum sló hann Svíann vinstra megin í höfuðið með hnefanum.
Það varð til þess að stór æð rifnaði.
Hann lést 3. júlí af völdum áverkans. Christian Zedig lætur eftir sig eiginkonu og tvær ungar dætur.
Gerandinn fékk árs fangelsi
Um daginn féll dómur yfir Afríkubúanum.
Ríkisborgararétturinn kemur í veg fyrir að hægt sé að vísa honum úr landi. Að auki fékk hann bara eins ár fangelsisdóm, því hann var dæmdur eftir milda ofbeldisákvæðinu.
Saksóknari og dómarinn tölu að höggið hafi ekki verið sérstaklega þungt og því ekki hægt að nota ákæruna –ofbeldi sem leiddi til dauða.
,,Þegar við höfum komist að ákvörun refsningar um eitt ár höfum við lagt áherslu á eðli málsins og kringumstæðurnar tengdar ofbeldinu“ sagði dómsformaðurinn um dóminn.
,,Við höfum lagt áherslu á að ákærði var árásargjarn og stuðlaði að átökum í framvindu málsins. Það er einnig íþyngjandi að hann hefur dóma á bakinu fyrir alvarlega glæpi og sérstaklega afleiðingar ofbeldis.“
Þessi 31 árs gamli Afríkubúi fékk dóm fyrir tilraun til manndráps, nauðgun og ofbeldi. Hann fékk sjö ára dóm fyrir tilraunina til manndráps.
Í síðustu viku var hann dæmdur fyrir ofbeldi gegn samfanga.
Dómurinn, upp á eitt ár, hefur opnað pólitíska umræðu um harðari refsingu. Það er ekki að undra, almenningur er líka undrandi á að morð gefi eins árs fangelsi. Og sem verra er, mörgum Dönum finnst að vísa eigi manninum til síns heima. En girðingar í lögum um ríkisborgararétt koma í veg fyrir það.
Krafa um að herða lögin
Dómsmálaráðherrann Nicolai Wammen hefur þegar tilkynnt að lagabreyting verði, þannig að refsingin verði hærri þegar gerandinn hefur áður verið dæmdur.
Frederik Block Münster, Íhaldsflokknum, segir að flokkinn sé tilbúinn í að hækka refsirammann og segir að dæma eigi eftir harða ákvæðinu þegar ofbeldi hefur dauða í för með sér. ,,Eftir nokkra mánuði er gerandinn laus. Tilbúinn að finna næsta fórnarlamb,“ skrifar Danski þjóðarflokkurinn.
Í Svíþjóð hefur ung kona misst eiginmann sinn og tvær litlar stúlkur hafa misst föður sinn.
Ofbeldismaðurinn fékk árs fangelsi og vegna laga um ríkisborgararétt er ekki hægt að svipta morðingjann ríkisborgararéttinum og senda hann til síns heima, Kongó.
Það er verulegur galli í lögum um ríkisborgararétt þegar ekki er hægt að svipta ,,aðkomumenn“ réttinum eftir svona hegðun. Ljóst er að menn sitja uppi með heimamenn sem haga sér svona, og kannski ekki á bætandi með aðkomufólki.
Byggt á skrifum: Den Korte Avis | Efter dødsvold mod svensk familiefar: Afrikaner fik kun et års fængsel og kan ikke udvises, fordi han er blevet dansk statsborger