Leó páfi, sem er 71 árs gamall, sagði að læknateymi hans teldi rétt að grípa inn í og að hann hefði samþykkt að gangast undir aðgerðina. Fullvissaði hann pílagríma um að meinið væri vel afmarkað og hefði greinst á byrjunarstigi.
Matteo Bruni, talsmaður skrifstofu Páfastóls, sagði í samtali við fjölmiðla að áætlað væri að páfinn gengist undir aðgerð á fyrstu dögum næstu viku og að það tæki hann um það bil viku að jafna sig.
Aðgerðin verður framkvæmd á Gemelli-sjúkrahúsinu í Rómarborg en þar var einmitt komið upp sérstakri páfasvítu í kjölfar misheppnaðrar morðtilraunar á Jóhannesi Páli II í maí árið 1981 og er hún enn í notkun í dag.
Í færslu á samfélagsmiðlinum X lýsti Giorgia Meloni yfir samstöðu sinni við páfann og „þeirri raun sem biði hans á næstu dögum“.
Desidero rivolgere al Santo Padre la mia vicinanza personale e quella del Governo italiano per la prova che è chiamato ad affrontare nei prossimi giorni. La serenità e la tranquillità con cui ne ha parlato nell'Angelus di oggi ci rincuorano. Sono certa che anche il popolo italiano non farà mancare il proprio sostegno e il proprio affetto.
— Giorgia Meloni (@GiorgiaMeloni) October 11, 2026
Leó páfi, sem áður hét Robert Francis Prevost, tók við af Frans páfa í maí á síðasta ári. Hann er fyrsti Bandaríkjamaðurinn sem situr á páfastóli en hann var vígður til prests árið 1982 og starfaði árum saman sem trúboði í Perú.
Í messu í dag staðfesti Leó að fyrirhuguð heimsókn hans til Úrúgvæ, Argentínu og Perú í nóvember yrði farin eins og til stóð.