Ungt fólk leiddi umræðurnar undir yfirskriftinni Tölum saman en fólk á öllum aldri tók þátt. Verkefninu var ýtt úr vör af Höllu Tómasdóttur forseta Íslands og sneri að því hvernig samfélag fólk vill skapa til framtíðar.
Að verkefninu stendur Samtal, félag til almannaheilla, í samstarfi við ungt fólk, skóla, félagasamtök, stofnanir og stjórnvöld um allt land.
Þátttakendur frá öllum heimsins hornum
Stúdentahreyfingin sameinaðist um viðburð í Háskóla Íslands. Lísa Margrét Gunnarsdóttir, forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta, segir það hafa verið eina samtalið sem fór fram á ensku.
Hjá þeim hafi komið saman fólk af að minnsta kosti átta eða níu þjóðernum. Gervigreind, menntun og samfélagsmál hafi meðal annars brunnið á þátttakendum.
„Við vorum öll svolítið sammála um hið sammannlega,“ segir Lísa.
Þrjár klukkustundir reyndust ekki of langar
Lísa segir skýrt hafa komið fram við öll borð að þátttakendur vildu fá fleiri tækifæri til slíkra umræðna. Fólk væri orðið vant því að ræða stór samfélagsmál í gegnum skjái og í athugasemdakerfum, þar sem umræðan gæti orðið neikvæð.
„Það sem við tókum eftir í þessu samtali í eigin persónu er að það er þegar fólk situr saman og horfist í augu að þá verður samtalið miklu uppbyggilegra,“ segir Lísa.
Ein niðurstaðan sé því sú að vilja endurtaka viðburðinn og jafnvel standa reglulega fyrir slíkum samtölum.
Gervigreind dregur saman umræðurnar
Niðurstöður samtalanna verða kynntar í Hörpu í dag, þegar fjörutíu ár eru liðin frá upphafi leiðtogafundarins í Höfða. Gervigreind hefur verið nýtt til að taka saman það sem kom fram á viðburðunum um land allt.
Lísa segir að við kynninguna verði dregið fram það sem hafi verið sameiginlegt í umræðunum. Kórar komi jafnframt fram og forsetinn setji frið og samtal á dagskrá.
Hún lýsir niðurstöðunum sem sneiðmynd af því sem ungt fólk og þjóðin er að hugsa. Þótt ungt fólk hafi leitt umræðurnar hafi þátttaka allra kynslóða verið mikilvæg.
Þeir sem komast ekki í Hörpu geti fylgst með kynningunni í streymi.
„En það sem mér fannst eiginlega fallegast var bara að markmiðið var samtal og það tókst alveg svakalega vel.“