Fólk í sveitarstjórnum og ferðaþjónustu á Suðurlandi er ósátt við áformað náttúru- og innviðagjald á ferðamenn sem ætla Gullna hringinn.
„Það sem við höfum verið að mótmæla er fyrst og fremst það að það skuli verið að targeta einhverja þrjá staði á Suðurlandi, á Bláskógasvæðinu. Í staðinn fyrir að fara í eitthvað almennara þar sem við værum að tala um öll þau svæði sem ríkið á úti um allt land,“ segir Ingunn Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Suðurlandi (SASS).
Til stendur að leggja nýtt gjald á ferðamenn sem ætla á Þingvelli, Gullfoss og Geysi frá og með maí á næsta ári. Þá eru uppi áform um að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11 í 24%.
Ingunn veltir því fyrir sér hvort það samræmist jafnræðisreglu að byrja að leggja á komugjöld einungis við Gullna hringinn.
Hún segir fólk á svæðinu heilt yfir ósátt með þessi áform og fyrirhugaða skattahækkun á baðlón. Hún segir upplifun fólks að hækka eigi gjöld á þessum stöðum vegna þess að þar hefur gengið vel.
Hvað viljið þið að sé gert núna?
„Við viljum gjarnan fá að hafa aðkomu að málinu – að við okkur sé rætt og að það sé hægt að finna einhverja lausn sem allir geta sætt sig við. Það eru allir tilbúnir að skoða það hvernig hægt er að byggja betur upp alla innviðina sem við eigum í ferðaþjónustu,“ segir Ingunn.