Hafi verið beggja vegna borðsins - Vísir

Hafi verið beggja vegna borðsins - Vísir

Hafi verið beggja vegna borðsins - Vísir

Vísir hefur undir höndum tölvupósta þar sem Karl Steinar Óskarsson, deildarstjóri fiskeldisdeildar MAST, felur Kjartani Davíð Sigurðssyni að gera tillögu að svari við erindi Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, HMS. Erindið varðaði hættu á slysasleppingum vegna ofanflóða við fyrirhugaðar sjókvíar í Seyðisfirði.

Kjartan hafði áður starfað hjá Fiskeldi Austfjarða, nú Kaldvík, og unnið umsókn félagsins um leyfi fyrir eldinu. Hann hóf störf hjá MAST árið 2024, að sögn Karls sem segir jafnframt að sérstaklega hafi verið gætt að því að Kjartan kæmi ekki að meðferð málsins hjá stofnuninni vegna fyrri starfa sinna. Hann hafi hvorki unnið áhættumatið né lagt til efni sem nýtt hafi verið í umsögninni til HMS.

Katrín Oddsdóttir lögmaður telur að skýringar stofnunarinnar breyti ekki því að farið hafi verið gegn þeirri reglu sem sett var við ráðningu Kjartans að hann kæmi hvergi nærri málum sem tengjast fyrri störfum hans fyrir Fiskeldi Austfjarða. Þetta hljómi eins og eftiráskýringar.

Aðkoman hafi einskorðast við sérþekkingu

HMS sendi erindið til MAST síðdegis 7. júlí síðastliðinn. Þar var óskað eftir mati á því hvort fyrirliggjandi gögn sýndu nægilega fram á öryggi eldisbúnaðar gagnvart ofanflóðum og hættu á slysasleppingum. Klukkan 08:02 morguninn eftir framsendi Karl erindið til Kjartans þannig:

„Skoðaðu þetta og komdu með tillögu að svari.“

Klukkan 09:43 sendi Karl umsögn MAST til HMS, með Kjartan í afriti. Ein klukkustund og 41 mínúta leið því frá fyrirmælunum þar til umsögnin var send.

Erindið til Kjartans hafi eingöngu lotið að NS 9415-staðlinum, sem gerðar séu kröfur um að eldisbúnaður hér á landi uppfylli. Kjartan búi yfir sérþekkingu á staðlinum og hafi verið beðinn um að skoða afmarkað atriði tengt honum.

Frá sjókvíar við Djúpavog.Vísir/Vilhelm

Karl áréttar að ekkert úr vinnu Kjartans hafi farið inn í endanlega umsögn MAST. Sérstaklega hafi verið passað upp á að hann kæmi ekki að málinu og gögn stofnunarinnar sýni það. Karl hafi ákveðið að nýta ekkert svar Kjartans við tölvupóstinum enda hafi Kjartan sjálfur verið mjög hikandi vegna málsins.

Katrín telur hins vegar að með því að leita til Kjartans hafi stofnunin vikið frá reglunni um að hann kæmi ekki að málinu. Að hennar mati sé sérstaklega gagnrýnivert að stofnunin hafi gert sér grein fyrir því að fyrri störf hans gætu valdið vafa um aðkomu hans en engu að síður falið honum verkefni tengt málinu.

Tölvupósturinn sem Vísir hefur undir höndum tilgreinir ekki að beiðnin til Kjartans takmarkist við staðalinn. Þar er erindi HMS framsent með beiðni um tillögu að svari. Tillaga Kjartans fylgir hins vegar ekki póstunum og af þeim einum verður því ekki ráðið hvað hann lagði til eða hvort það var nýtt.

Hættan lítil að uppfylltum skilyrðum

Umsögnin sem MAST sendi HMS varðaði áform um tíu þúsund tonna laxeldi í Seyðisfirði. Veðurstofan hafði metið ofanflóðahættu við fyrirhuguð eldissvæði en samkvæmt erindi HMS var mat á hönnun eldisbúnaðar og þeim stöðlum sem hann ætti að uppfylla utan sérsviðs hennar. Því leitaði HMS til MAST.

Með erindinu fylgdu meðal annars hættumat fyrir Selstaðavík frá júní 2023 og Sörlastaðavík frá apríl 2025, auk tæknilegs mats búnaðarframleiðandans ScaleAQ frá júní síðastliðnum.

HMS spurði hvort hætta á slysasleppingum hefði verið metin með fullnægjandi hætti og hvort þörf væri á frekari rannsóknum eða mótvægisaðgerðum. Einnig var spurt um krapa sem gæti borist að kvíum þótt flóðið sjálft næði ekki til þeirra.

Í svari MAST voru líkur á slysasleppingum metnar mjög litlar yfir gildistíma leyfisins, að uppfylltum tilteknum forsendum. Meðal þeirra var að fallið yrði frá tveimur innstu kvíunum í Sörlastaðavík. Þær væru innan B-hættusvæðis og uppfylltu ekki viðmið um ofanflóðahættu fyrir vinnustaði. Þá þyrftu endanleg hnit kvía, fóðurpramma og festinga að samræmast uppfærðum hönnunargögnum og búnaður að uppfylla viðeigandi kröfur.

MAST tók fram að stofnunin hefði ekki sjálf metið ofanflóðalíkön eða legu hættumarka. Niðurstaðan byggðist á fyrirliggjandi hættumati og forsendum um staðsetningu, hönnun og eftirlit með búnaðinum. Karl segir að áður en eldi hefjist fari MAST í úttekt þar sem bæði búnaður og staðsetning séu skoðuð.

Mega ekki taka tillit til álits íbúa

Leyfisveitingar vegna eldisins eiga sér langa forsögu. Samkvæmt samantekt málsgögnum kom Kjartan fram fyrir hönd Fiskeldis Austfjarða á árunum 2018 til 2020. Meðal þeirra er rekstrarleyfisumsókn sem barst MAST í ágúst 2018 sem hann skrifar undir og sendir sjálfur. 

Þá var umhverfismati framkvæmdarinnar enn ólokið. Í áliti Skipulagsstofnunar frá árslokum 2021 var bent á óvissu um áhrif náttúruvár á eldisbúnað. Skemmdir gætu valdið slysasleppingum og stofnunin taldi að viðbragðsáætlun vegna náttúruvár þyrfti að liggja fyrir áður en rekstrarleyfi yrði veitt.

Ofanflóð valda reglulega tjóni í firðinum.Aðsend

Strandsvæðisskipulag Austfjarða var staðfest í mars 2023. Frá febrúar 2024 gerði HMS síðan kröfu um byggingarleyfi fyrir nýjar byggingarleyfisskyldar sjókvíar utan netlaga. Til viðbótar við rekstrarleyfi MAST og starfsleyfi vegna mengunarvarna þurfti því sérstakt leyfi fyrir mannvirkjunum. Fyrirspurn HMS síðastliðið sumar var liður í því ferli.

Karl bendir á að margar stofnanir komi að undirbúningnum. Þar sé meðal annars fjallað um umfang eldis, umhverfisáhrif, skipulag, siglingaöryggi og nálægð við sæstreng. Hlutverk MAST sé að rannsaka hvort fyrirtækið uppfylli þau skilyrði sem sett séu fyrir rekstrarleyfi. Afstaða íbúa í Seyðisfirði til hugsanlegs eldis geti ekki ráðið þeirri niðurstöðu.

„Við getum ekki tekið tillit til almenningsálits, við megum það ekki,“ segir Karl.

Langt, strangt og flókið ferli

Tillögur að rekstrar- og starfsleyfum voru auglýstar í desember 2024 en afgreiðsla þeirra dróst. Í úrskurði frá desember 2025 kemur fram að meðal óútkljáðra atriða hafi verið ofanflóðahætta, afmörkun netlaga sjávarjarða og gildi strandsvæðisskipulagsins. Kaldvík vann þá að breyttri afmörkun eldissvæða.

Félagið fékk loks rekstrar- og starfsleyfi 11. september síðastliðinn. Þau heimila samtals tíu þúsund tonna eldi, þar af að hámarki 6.500 tonn af frjóum laxi.

Vidar Aspehaug, forstjóri Kaldvíkur, sagði þá að mikilvægum áfanga væri náð og eldi í Seyðisfirði myndi auka sveigjanleika í rekstri félagsins. Upphaf eldis væri þó háð eftirstandandi leyfisferlum og ákvörðunum um framleiðslu og fjárhagslega forgangsröðun.

Leyfisveitingarnar hafa mætt harðri gagnrýni. Í viðtali við Vísi 20. september lýsti Benedikta Guðrún Svavarsdóttir, formaður Vár, félags um verndun fjarðar, þeim sem áfalli. Hún gagnrýndi að haldið væri áfram þrátt fyrir andstöðu heimamanna og athugasemdir sem félagið hefði komið á framfæri við stjórnvöld.

Á föstudag, 9. október, felldi úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála öðru sinni úr gildi ákvörðun HMS um að synja landeigendum um aðild að byggingarleyfismálinu. Fyrri synjun hafði verið felld úr gildi í maí. HMS synjaði þeim aftur 9. júlí, daginn eftir að umsögn MAST um ofanflóðahættuna var send.

Ekki reyndist unnt að ná sambandi við Kjartan Davíð við vinnslu fréttarinnar.

#beggja #borðsins #hafi #vegna #verið

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262946900d/hafi-verid-beggja-vegna-bordsins

📰 Aðrar fréttir

What British expats should check before using UK online services abroad
📅 11.10.2026 👁️ 1
What British expats should check before using UK online services abroad
Moving from the UK to the Canary Islands does not necessarily mean giving up every online account or subscription. The truth is that many people conti...
Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
📅 11.10.2026 👁️ 2
Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
Mynd Gífurlegar óeirðir í Frakklandi undanfarnar vikur hafa vakið heimsathygli og
Sigvaldi Einarsson skrifar: 99,99 prósent mannkyns vilja frið – Hvers vegna ráða hinir?
📅 11.10.2026 👁️ 1
Sigvaldi Einarsson skrifar: 99,99 prósent mannkyns vilja frið – Hvers vegna ráða hinir?
Á föstudaginn tilkynnti Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, víðtækar refsiaðgerðir gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum í Haag. Dómstóllinn ve...
„Ég hef oft hugsað um þennan dag og þessa stund“
📅 11.10.2026 👁️ 1
„Ég hef oft hugsað um þennan dag og þessa stund“
Um helgina eru 40 ár frá leiðtogafundi Reagans og Gorbatsjov í Höfða. Leiðtogafundurinn olli straumhvörfum í Kalda stríðinu og setti allt í hliðina í ...
Tvenn mótmæli samtímis gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði
📅 11.10.2026 👁️ 1
Tvenn mótmæli samtímis gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði
Tvenn mótmæli gegn fyrirhuguðu sjókvíaeldi í Seyðisfirði hófust klukkan 15 í dag. Þau eru annars vegar haldin á Austurvelli í Reykjavík og á Seyðisfir...
112 new residential homes for locals will be ready in Las Chafiras in 2027
📅 11.10.2026 👁️ 1
112 new residential homes for locals will be ready in Las Chafiras in 2027
A new residential complex of 112 affordable homes for local workers and families is set to be finished in Las Chafiras, San Miguel de Abona, in 2027, ...
Gríska ríkið dæmt til að greiða 300.000 evrur vegna andláts eftir COVID-bólusetningu
📅 11.10.2026 👁️ 1
Gríska ríkið dæmt til að greiða 300.000 evrur vegna andláts eftir COVID-bólusetningu
Gríska ríkið dæmt til að greiða 300.000 evrur vegna andláts eftir COVID-bólusetningu Fréttin11. október 2026Covid bóluefni, Dómsmál, ErlentLeave a Com...
Kom af fjöllum eftir til­kynningu Trump um orku­vopna­hlé - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 1
Kom af fjöllum eftir til­kynningu Trump um orku­vopna­hlé - Vísir
Donald Trump tilkynnti um vopnahléið á samfélagsmiðli sínum Truth Social án þess að gefa miklar upplýsingar um útfærsluna, annað en að það tæki gildi ...
Poland stabbings driven by online glorification of violence, Tusk says
📅 11.10.2026 👁️ 1
Poland stabbings driven by online glorification of violence, Tusk says
The PM was speaking after violent attacks at Polish schools this week left one dead and others injured.
Eftir­minni­legir gull­molar úr fjöru­tíu ára sögu - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Eftir­minni­legir gull­molar úr fjöru­tíu ára sögu - Vísir
Kvöldfréttirnar voru fastur liður á skjánum þar til 31. ágúst síðastliðinn. Ekki leið sú Þorláksmessa að fréttamenn smökkuðu ekki skötu. Kryddsíld hef...
Nafn hestaeiganda fór úr WorldFeng í Horseday – fræðslu skorti
📅 11.10.2026 👁️ 2
Nafn hestaeiganda fór úr WorldFeng í Horseday – fræðslu skorti
Horseday ehf. veitti hestaeiganda ekki fullnægjandi fræðslu um vinnslu persónuupplýsinga hennar í smáforritinu Horseday, samkvæmt úrskurði Persónuvern...
Þrjá­tíu grindhvalir við Hólma­vík - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Þrjá­tíu grindhvalir við Hólma­vík - Vísir
„Þetta gerist ekki oft að þeir séu svona margir saman, þetta voru örugglega svona þrjátíu stykki,“ segir Júlíus í samtali við Vísi. Júlíus sem er íbúi...
„Þetta var al­gjör­lega magnað“ - Vísir

Zelenskí tilbúinn til kosninga ef Rússland samþykkir 60 daga vopnahlé
📅 11.10.2026 👁️ 2
Zelenskí tilbúinn til kosninga ef Rússland samþykkir 60 daga vopnahlé
Zelenskí tilbúinn til kosninga ef Rússland samþykkir 60 daga vopnahlé Fréttin11. október 2026ErlentLeave a Comment Volodimír Zelenskí, forseti Úkraínu...
Frakkland: Múslimir í óeirðum kyrja rapplag sem hyllir skrímslið er myrti gyðingabörn
📅 11.10.2026 👁️ 2
Frakkland: Múslimir í óeirðum kyrja rapplag sem hyllir skrímslið er myrti gyðingabörn
Frakkland: Múslimir í óeirðum kyrja rapplag sem hyllir skrímslið er myrti gyðingabörn Fréttin11. október 2026ErlentLeave a Comment Myriam Monsonego. M...
Páfinn á leið í aðgerð
📅 11.10.2026 👁️ 2
Páfinn á leið í aðgerð
Leó páfi XIV er á leið í aðgerð á næstu dögum. Hnúður fannst á lunga hans við reglubundna læknisskoðun nýlega.Páfinn tilkynnti þetta á Péturstorginu í...
Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús - Vísir
Flóðið hreif með sér hús og brýr auk þess að valda skemmdum á hluta vatnsaflsvirkjunar að sögn yfirvalda. Um fimmtíu manns hefur verið bjargað af bökk...
Ósætti á Suðurlandi vegna fyrirhugaðra komugjalda
📅 11.10.2026 👁️ 2
Ósætti á Suðurlandi vegna fyrirhugaðra komugjalda
Fólk í sveitarstjórnum og ferðaþjónustu á Suðurlandi er ósátt við áformað náttúru- og innviðagjald á ferðamenn sem ætla Gullna hringinn.„Það sem við h...
Í beinni: Niðurstöður Samtalsins kynntar
📅 11.10.2026 👁️ 3
Í beinni: Niðurstöður Samtalsins kynntar
Niðurstöður „Samtalsins“ svokallaða eru kynntar í Hörpu í dag.Spurningin „Hvernig samfélag viljum við skapa saman?“ var rædd víða um land í gær. Öllum...
Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda - Vísir
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafa borist sex tilkynningar um skemmdarverk á bílum í þessum mánuði. Málið er til rannsóknar. Mikil umræða fer nú f...
Singapore Grand Prix result: Max Verstappen wins from Charles Leclerc with Kimi Antonelli third
📅 11.10.2026 👁️ 1
Singapore Grand Prix result: Max Verstappen wins from Charles Leclerc with Kimi Antonelli third
Red Bull's Max Verstappen secures his first win in the Singapore Grand Prix, ahead of Charles Leclerc and Kimi Antonelli.
Leó páfi á leið í að­gerð eftir að hnútur fannst á lunga - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Leó páfi á leið í að­gerð eftir að hnútur fannst á lunga - Vísir
Leó páfi, sem er 71 árs gamall, sagði að læknateymi hans teldi rétt að grípa inn í og að hann hefði samþykkt að gangast undir aðgerðina. Fullvissaði h...
Fékk ár fyrir að myrða sænskan fjölskylduföður
📅 11.10.2026 👁️ 3
Fékk ár fyrir að myrða sænskan fjölskylduföður
Fékk ár fyrir að myrða sænskan fjölskylduföður Fréttin11. október 2026Dómsmál, Erlent, Helga Dögg SverrisdóttirLeave a Comment Helga Dögg Sverrisdótti...
Bein út­sending: Niður­stöður Sam­talsins kynntar - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Bein út­sending: Niður­stöður Sam­talsins kynntar - Vísir
Fyrri dagur verkefnisins fór fram í gær en þá fóru samtöl fram í menntaskólum víða um land og Halla Tómasdóttir forseti hélt einnig samtal á Bessastöð...
Steinunn verður næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna
📅 11.10.2026 👁️ 4
Steinunn verður næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna
Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, var kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna (World Medical Association, WMA) í gær. Hún tekur v...
Upp­byggi­legra sam­tal en í at­huga­semdum - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Upp­byggi­legra sam­tal en í at­huga­semdum - Vísir
Ungt fólk leiddi umræðurnar undir yfirskriftinni Tölum saman en fólk á öllum aldri tók þátt. Verkefninu var ýtt úr vör af Höllu Tómasdóttur forseta Ís...
Orðið á götunni: Klofin verkalýðshreyfing – Sólveig Anna tapsár
📅 11.10.2026 👁️ 4
Orðið á götunni: Klofin verkalýðshreyfing – Sólveig Anna tapsár
Þær Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, hafa löngum eldað grátt silfur saman. Þær eru formenn tveggja stæ...
Stofnandi Stöðvar 2 ósáttur við 40 ára afmælisþáttinn – „Vorum alveg ofsalega reið mörg hérna“
📅 11.10.2026 👁️ 4
Stofnandi Stöðvar 2 ósáttur við 40 ára afmælisþáttinn – „Vorum alveg ofsalega reið mörg hérna“
Fjölmiðlafyrirtækið Sýn hefur undanfarið minnst þess að 40 eru liðin frá stofnun sjónvarpsstöðvarinnar Stöð 2. Hámarki náði upprifjunin með 40 ára afm...
Lýsir yfir vonbrigðum með samning Trumps og Pútíns
📅 11.10.2026 👁️ 4
Lýsir yfir vonbrigðum með samning Trumps og Pútíns
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lýsir yfir vonbrigðum með ummæli Bandaríkjaforseta í gær um að Úkraína þurfi nýjan forseta. Þá segir ...
Yandex: Ukraine strikes data centre in third attack on Russian tech giant
📅 11.10.2026 👁️ 2
Yandex: Ukraine strikes data centre in third attack on Russian tech giant
It is the third time this week that Ukraine has targeted Russian tech giant Yandex, forcing the company to suspend its operations.
Nýr sjóður leitar að lausnum fyrir fólk með krabbamein
📅 11.10.2026 👁️ 4
Nýr sjóður leitar að lausnum fyrir fólk með krabbamein
Krabbameinsfélag Íslands hefur sett á laggirnar nýjan sjóð sem ætlað er að styrkja þjónustu við fólk með krabbamein og aðstandendur þess. Sjóðurinn be...
„Sól­veig Anna virðist vera með mig al­gjör­lega á heilanum“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
„Sól­veig Anna virðist vera með mig al­gjör­lega á heilanum“ - Vísir
Þetta kom fram í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Sólveig Anna hefur farið mikinn eftir að viðræður VR og SA lauk eftir að breiðfylkingin hafði þega...
Rétt og rangt um leigubremsu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Rétt og rangt um leigubremsu
Rétt og rangt um leigubremsu Frum­varp rík­is­stjórn­ar­inn­ar um leigu­bremsu set­ur þak á hækk­an­ir leigu við hækk­un vísi­tölu neyslu­verðs. Stefá...
Djibouti boat capsize: Children among 139 dead with 84 still missing, UN says
📅 11.10.2026 👁️ 1
Djibouti boat capsize: Children among 139 dead with 84 still missing, UN says
The boat was travelling from Djibouti to Yemen with 305 people on board, when it capsized near the port town of Obock on Thursday night.
Úkraínumenn hætta árásum þegar Rússar hætta þeim
📅 11.10.2026 👁️ 4
Úkraínumenn hætta árásum þegar Rússar hætta þeim
Úkraínumenn eru reiðubúnir að hætta árásum á olíuinnviði í Rússlandi um leið og Rússar hætta árásum á orkuinnviði í Úkraínu. Þetta sagði Volodymyr Zel...
Mót­mæla sjókvíaeldi í tveimur lands­hlutum - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 5
Mót­mæla sjókvíaeldi í tveimur lands­hlutum - Vísir
Mótmælin hefjast klukkan þrjú í báðum landshlutum. Breiður hópur náttúruverndarsamtaka stendur að þeim en þeirra á meðal má nefna Landvernd, félög sem...
„Ég hef á­hyggjur af Al­þýðu­sam­bandinu“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 5
„Ég hef á­hyggjur af Al­þýðu­sam­bandinu“ - Vísir
Bæði Vilhjálmur og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar gagnrýndu framgöngu Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, harðlega og kallaði Vilhjálmur atbu...
Viktor Snær gagnrýndur fyrir dónaskap við ungling sem leitaði til hans – „Þetta er ekki cool, mín skita“
📅 11.10.2026 👁️ 4
Viktor Snær gagnrýndur fyrir dónaskap við ungling sem leitaði til hans – „Þetta er ekki cool, mín skita“
Hörð umræða geisar um einka- og fjarþjálfarann Viktor Snæ Oliversson hjá VIKFIT í FB-hópnum Mæðratips vegna framkomu hans í garð 14 ára unglings sem l...
Veltihringrás og virkjanir: Fyrstu tuttugu mánuðir umhverfisráðherra
📅 11.10.2026 👁️ 4
Veltihringrás og virkjanir: Fyrstu tuttugu mánuðir umhverfisráðherra
Veltihringrás og virkjanir: Fyrstu tuttugu mánuðir umhverfisráðherra „Margt hef­ur áunn­ist í orku­mál­um,“ sagði Jó­hann Páll Jó­hanns­son um­hverf­i...
Rannsaka mögulegt banatilræði gegn ráðherrum í Póllandi
📅 11.10.2026 👁️ 5
Rannsaka mögulegt banatilræði gegn ráðherrum í Póllandi
Pólska lögreglan hefur fengið upplýsingar um mögulegar tilraunir til að ráða Donald Tusk, forsætisráðherra, og Wladyslaw Kosiniak-Kamysz, varnarmálará...
Spenna fyrir þingi ASÍ og fram­lög til sjóvarna ekki næg - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 5
Spenna fyrir þingi ASÍ og fram­lög til sjóvarna ekki næg - Vísir
Við heyrum hvað Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, sagði um stöðuna innan verkalýðshreyfingarinnar í fréttatímanum en hann var ge...
Riyadh airport attack another dangerous moment in already tense conflict
📅 11.10.2026 👁️ 4
Riyadh airport attack another dangerous moment in already tense conflict
The Houthis have stepped up their attacks on Saudi Arabian soil, and while the physical damage can be quickly repaired, its reputation for stability i...
Yorkshire Wildlife Park remains closed after fatal tiger attack
📅 11.10.2026 👁️ 5
Yorkshire Wildlife Park remains closed after fatal tiger attack
Yorkshire Wildlife Park remains closed after a man entered the tiger enclosure and was fatally attacked on Saturday.
Faraldur skemmdarverka á bifreiðum í borginni
📅 11.10.2026 👁️ 5
Faraldur skemmdarverka á bifreiðum í borginni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fengið sex tilkynningar um skemmdarverk á bifreiðum í Vesturbæ og miðbæ Reykjavíkur í október.Árni Friðleifsson a...
Dóra Sif Tynes: Hæstiréttur hefur talað skýrt – Alþingi hefur ekki innleitt bókun 35
📅 11.10.2026 👁️ 4
Dóra Sif Tynes: Hæstiréttur hefur talað skýrt – Alþingi hefur ekki innleitt bókun 35
Hæstiréttur hefur talað skýrt. Við höfum ekki innleitt bókun 35 þannig að íslenskir dómstólar geti beitt þeirri forgangsreglu sem bókunin felur í sér....
UK does not support Trump's Russia diesel deal, says Streeting
📅 11.10.2026 👁️ 4
UK does not support Trump's Russia diesel deal, says Streeting
The defence secretary says the US and its allies need to increase pressure on Vladimir Putin to end the war with Ukraine.
Leiðin­leg frekja segist hvorki leiðin­leg né frek - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Leiðin­leg frekja segist hvorki leiðin­leg né frek - Vísir
Undanfarið hefur borið á því að fólk hafi fordæmt vinnubrögð fjölmiðla á meðan aðrir hrósa og lofa. Á dögunum var Elísabet Inga Sigurðardóttir til að ...
Vara við því að fara um flug­velli í Sádí-Arabíu - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Vara við því að fara um flug­velli í Sádí-Arabíu - Vísir
Í umfjöllun BBC kemur fram að Hútar hafi þagað þunnu hljóði eftir árás gærdagsins þar til í dag. Hútar hafa um árabil barist gegn Sádí-Arabíu og banda...
Pope Leo XIV to have surgery after lump found on lung
📅 11.10.2026 👁️ 4
Pope Leo XIV to have surgery after lump found on lung
The 71-year-old pontiff said the nodule was identified "at a very early stage".
Pope Leo XIV to have surgery after nodule found on lung
📅 11.10.2026 👁️ 4
Pope Leo XIV to have surgery after nodule found on lung
The 71-year-old pontiff said the nodule was identified "at a very early stage".