„Þetta gerist ekki oft að þeir séu svona margir saman, þetta voru örugglega svona þrjátíu stykki,“ segir Júlíus í samtali við Vísi. Júlíus sem er íbúi í Hólmavík og áhugaljósmyndari hefur áður sent fréttastofu myndefni af hvölum en líklega aldrei eins mörgum í einu og núna.
„Ég hef heldur aldrei komist svona nálægt þeim. Við drifum okkur bara út á bátinn til að ná þeim. Þetta var algjörlega magnað.“