Donald Trump tilkynnti um vopnahléið á samfélagsmiðli sínum Truth Social án þess að gefa miklar upplýsingar um útfærsluna, annað en að það tæki gildi þegar í stað.
Í tilkynningu Trump segir að bæði ríki hafi fallist á að hætta árásum á orkuinnviði og lauk færslunni með orðunum „rjúfið þetta ekki!“.
Trump hefur að undanförnu þrýst á Úkraínumenn að hætta árásum á rússneska olíuinnviði sem Kænugarður hefur sagt að sé lykilatriði til að draga úr tekjum Rússa til stríðsrekstursins. Trump tilkynnti á föstudag um samkomulag Bandaríkjanna og Rússa um útflutning olíu, samkomulag sem Selenskí gagnrýndi harðlega. Trump sagði í kjölfarið að Úkraína þyrfti nýjan forseta sem væri tilbúinn að semja um endalok stríðsins.
„Við erum tilbúin og munum fallast á það“
Selenskí sagði fyrr í dag að hann væri reiðubúinn til að stöðva árásirnar ef Rússar hættu að ráðast á orkuinnviði í Úkraínu en þær árásir hafa færst í aukana síðustu vikur.
Samkvæmt Barak Ravid, fréttamanni Axios, komu tíðindin um orkuvopnahlé Selenskí hins vegar í opna skjöldu. Er haft eftir Trump að ef Rússar samþykki vopnahlé á orkusviðinu þá muni Úkraína gera það líka.
„Ef Trump forseti hefur samið um þetta við Pútín, vinsamlegast látið okkur vita þegar vopnahléið tekur gildi. Við erum tilbúin og munum fallast á það,“ á Selenskí að hafa sagt.
Þá tjáði Selenskí sig á samfélagsmiðlinum X þar sem hann sagðist hafa rætt við Mark Carney forseta Kanada, Alexander Stubb forseta Finnlands og Mark Rutte framkvæmdastjóra NATO um tilkynningu Trump og sagðist bíða þess að fá frekari fregnir frá Bandaríkjamönnum.
I just spoke with @MarkJCarney, @alexstubb, and @SecGenNATO Mark Rutte. We discussed the energy ceasefire announced by President Trump. Ukraine supports the ceasefire, and it is important that Russia support it as well. We are awaiting details from the American side. For our part, Ukraine always FULLY supports steps toward de-escalation, the protection of lives, and the decisions needed to end the war and guarantee lasting peace. Thank you!
— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) October 11, 2026
Tilkynning Trump kom í kjölfar þess að Selenskí sagðist í viðtali við ABC fréttastofuna vera reiðubúinn að boða til kosninga ef Pútín samþykkti sextíu daga vopnahlé. Voru ummælin svar við gagnrýni Trumps um að Úkraína þyrfti nýjan forseta.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Selenskí opnar á kosningar gegn vopnahléi en hann tjáði sig á svipaðan hátt í viðtali við Axios í febrúar. Þá er þetta ekki í fyrst sinn sem Trump tilkynnir um vopnahlé að öðrum aðilum samkomulags forspurðum.