Frjálsar risaskjaldbökur eru mun fleiri en áður hefur verið talið.
Ný talning hefur leitt í ljós að um 180 þúsund Aldabra-risaskjaldbökur eru á Aldabra-rifi, eyjaklasa sem tilheyrir Seychelles-eyjum í Indlandshafi.
Stofn risaskjaldbakanna er margfalt stærri en íbúafjöldi eyjanna.
Vísindamenn við Exeter-háskóla og rannsóknarstofu á Seychelles-eyjum hafa greint niðurstöður talninga yfir fimm ára tímabil, frá 2018-2022.
Risaskjaldbökur lifa á tveimur stöðum í heiminum
Aldabra-rifið er aðeins annar tveggja staða í heiminum þar sem risaskjaldbökur lifa enn í náttúrunni. Hinn er Galapagoseyjar, þar sem stofninn er mun minni.
Samkvæmt talningunni eru 183 þúsund fullorðnar eða hálfvaxnar risaskjaldbökur á Aldabra-rifinu.
Niðurstöðurnar benda til þess að verndun risaskjaldbakanna hafi skilað árangri. Risaskjaldbökur voru mikið veiddar á 19.öld og á tímabili er talið að færri en þúsund skjaldbökur hafi verið eftir á eyjunum.
Árið 1981 var Aldabra-rifið hins vegar gert að náttúruverndarsvæði og ári síðar skráð á heimsminjaskrá UNESCO.
Einn vísindamannanna, Frauke Fleischer-Dogley, segir að stærð stofnsins nú sé sönnun þess að langtímaáætlanir í náttúruvernd skili árangri.
Áhrif loftslagsbreytinga á híbýli risaskjaldbakanna
Vísindamenn segja að þrátt fyrir þessar jákvæðu niðurstöður sé stofn risaskjaldbakanna ekki úr hættu.
Loftslag á Aldabra er að breytast og búist er við lengri og tíðari þurrkatímabilum. Þau gætu dregið úr því skjóli og fæðu sem skjaldbökurnar hafa aðgang að.
Hækkandi sjávarstaða gæti einnig ógnað láglendum svæðum á rifinu.