Frumvarp ríkisstjórnarinnar um leigubremsu hefur vakið miklar deilur og seðlabankastjóri sagði áformin vera heimskuleg. Stefán Ólafsson, hagfræðiprófessor emeritus og sérfræðingur hjá Eflingu, fer yfir málið í aðsendri grein í Heimildinni en hann segir rangfærslur og misskilning í gangi um leigubremsu, t.d. að allar hækkanir á leigu verið bannaðar: „Skiljanlega hafa sumir talið að allar hækkanir á leigu verði bannaðar, fyrst frumvarpið er kallað „leigubremsa“. En svo er ekki. Einungis er um að ræða hömlur á hækkun leigu, bæði innan árs og árlega.
Segir leigubremsu lækka verðbólgu