Frá þessu er greint í fréttatilkynningu. Þar segir að samstarfið hafi verið undirritað nú í kvöld og byggi á sameiginlegum áherslum flokkanna um ábyrga fjármálastjórn, öfluga þjónustu við íbúa, uppbyggingu innviða og áframhaldandi framfarir í sveitarfélaginu.
Svavar Grétarsson verði áfram formaður bæjarráðs og Anton Kristinn Guðmundsson verði forseti bæjarstjórnar. Alexandra Jóhannsdóttir muni áfram gegna embætti bæjarstjóra Suðurnesjabæjar en hún var ráðin af fyrri meirihluta sem ópólitískan bæjarstjóra. Málefnasamningur flokkanna verði kynntur á bæjarstjórnarfundi á þriðjudaginn næstkomandi.
Meirihluti Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks sprakk meðal annars vegna ágreinings um staðsetningu íþróttavalla í sveitarfélaginu, sem samanstendur af tveimur bæjum, Garði og Sandgerði.
„Undanfarnir dagar hafa einkennst af pólitískri óvissu í Suðurnesjabæ. Með myndun nýs meirihluta vilja flokkarnir tryggja stöðugleika í stjórn sveitarfélagsins og skapa traustan grundvöll fyrir áframhaldandi uppbyggingu, segir í tilkynningu nýs meirihluta.
Samstarfið byggi á trausti, virðingu og sameiginlegri sýn að hagsmunir íbúa Suðurnesjabæjar séu í fyrirrúmi. Flokkarnir vilji leggja áherslu á gott samstarf allra kjörinna fulltrúa óháð pólitískum skoðunum og að ágreiningur um einstök málefni megi ekki standa í vegi fyrir framgangi mikilvægra verkefna.
Lögð verði áhersla á ábyrgan rekstur, aukinni skilvirkni og hagkvæmri nýtingu fjármuna.
Fréttin er í vinnslu.